Fréttablaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 46
Sviðsstjóri þinglýsinga- og
leyfasviðs
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is)
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Um sýslumenn gilda lög nr. 50/2014
um framkvæmdavald og stjórnsýslu
ríkisins í héraði. Sýslumenn fara með
framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins
í héraði, hver í sínu umdæmi. Í umdæmi
Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu búa
um 64% landsmanna.
Málaflokkar þinglýsinga- og leyfasviðs eru
einkum þinglýsingar, lögbókandagerðir,
leyfisveitingar og löggildingar, verkefni
skv. lögum um veitingastaði, gististaði
og skemmtanahald, auk kosninga utan
kjörfundar.
Hjá embætti Sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu starfa um 100
manns.
Nánari upplýsingar um verkefni
sýslumanna má finna á vef sýslumanna:
www.syslumenn.is
Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja afrit af prófskírteinum, ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélags lögfræðinga.
Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu embættisins.
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Haldgóð þekking á ákvæðum þeirra laga sem unnið er
með á þinglýsinga- og leyfasviði og helstu álitaefnum
sem reynir á við túlkun þeirra
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Stjórnunarreynsla er kostur
• Leiðtogahæfni, yfirsýn og árangursmiðað viðhorf
• Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og rík
þjónustulund
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Mjög góð almenn tölvuþekking
• Mjög gott vald á íslensku í mæltu og rituðu máli
• Þjónusta, rekstur og mannauðsmál sviðsins
• Dagleg yfirsýn yfir verkefnastöðu og eftirfylgni með
markmiðum sviðsins
• Þátttaka í þróun tölvukerfa og þróun á stafrænni
þjónustu
• Frumkvæði að þróun á starfsemi og verklagi faghópa
• Skipuleggur fundi á sviðinu og tryggir eðlilegt
upplýsingaflæði
• Vinnur að því að efla og þróa þjónustu embættisins
• Samskipti við opinbera aðila, fjölmiðla og aðra
hagsmunaaðila
• Umsjón með skipulagi og framkvæmd atkvæða-
greiðslu utan kjörfundar í umdæminu
Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni:
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir lausa til umsóknar stöðu sviðsstjóra þinglýsinga- og
leyfasviðs embættisins. Sviðsstjóri heyrir undir sýslumann og situr í framkvæmdastjórn embættisins.
Starf sviðsstjóra felst fyrst og fremst í stjórnun, skipulagningu, stefnumótun og samhæfingu á starfsemi
sviðsins og að unnið sé í samræmi við lög, reglugerðir og stjórnvaldsfyrirmæli. Sviðsstjóri er ábyrgur fyrir
stjórnun mannauðs á sviðinu og ber faglega ábyrgð á verklagi og úrlausn mála innan þess.
Leitað er að dugmiklum, faglega sterkum og metnaðarfullum einstaklingi í starfið.
RÁÐNINGAR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.
4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R