Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 47
Hrafnshóll óskar eftir að ráða starfsmann til að vinna með fjármál fyrirtækisins.
Hrafnshóll er fyrirtæki sem þróar hagkvæmar húsnæðislausnir og sérhæfir sig í að byggja húsnæði á landsbyggðinni.
Leitað er að fjármálaglöggum aðila sem hefur áhuga á að taka þátt í spennandi uppbyggingu með fyrirtækinu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars nk.
Umsækjendur eru vinsam legast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Ráðum www.radum.is.
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • radum@radum.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Agla Sigr. Björnsdóttir, agla@radum.is.
Hrafnshóll var stofnað 2017 og
byggir vandað íbúðarhúsnæði með
nútímalegum aðferðum á skjótan og
hagkvæman hátt. Fyrirtækið hefur í
samstarfi við sveitarfélög víða um land
byggt húsnæði sem meðal annars
uppfyllir skilyrði laga og reglugerða um
hagkvæmt íbúðarhúsnæði.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.hrafnsholl.is.
HELSTU VERKEFNI:
• Dagleg fjármálaumsýsla og kostnaðareftirlit
• Umsjón og ábyrgð á fjárstreymis-,
tekju- og rekstraráætlunum
• Samskipti við viðskiptavini og lánastofnanir
• Þátttaka í innkaupum og tilboðsgerð
HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun á sviði fjármála eða viðskipta
• Færni í fjármálastjórn og reynsla af áætlanagerð
• Mjög góð greiningarfærni og framúrskarandi
Excelkunnátta
• Góðir samskiptahæfileikar og samningatækni
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
FJÁRMÁLAUMSJÓN/CONTROLLER
Sviðsstjóri stjórnsýslu-
og fjármálasviðs
Nánari upplýsingar:
Ari Eyberg (ari@intellecta.is)
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 16. mars 2020.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is.
Launakjör eru í samræmi við laun annarra sviðsstjóra Ísafjarðarbæjar og taka mið af kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt bæjarmála-
samþykkt Ísafjarðarbæjar ræður bæjarstjórn sviðsstjóra.
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gerð grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteini /
prófskírteinum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum, eru hvattir til að sækja um.
Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins.
Sviðsstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra, er staðgengill hans og gegnir skyldum bæjarritara. Jafnframt
heyrir undir viðkomandi rekstur bæjarskrifstofu, menningarmál bæjarins og yfirstjórn fjármála. Um er
að ræða 100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og
fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í liði, ásamt því að vera sjálfstæður
í verkefnum þegar þörf er á. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri tungu.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi og
framhaldsmenntun er kostur
• Reynsla af rekstri og stjórnun
• Leiðtogahæfileikar
• Frumkvæði og skipulagshæfileikar
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Yfirmaður stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins
• Staðgengill bæjarstjóra
• Ritari bæjarstjórnar og bæjarráðs
• Verkefnastýring, vinnsla og eftirfylgni ákvarðana
bæjarráðs og bæjarstjórnar
• Daglegur rekstur og mannauðsmál bæjarskrifstofu
• Umsjón með persónuverndarlöggjöf og
jafnlaunavottun
• Ber ábyrgð á málaflokkunum menningar- og
atvinnumál
Í sveitarfélaginu búa tæplega 4000 íbúar
en Ísafjarðarbær varð til þann 1. júní
1996 við sameiningu sex sveitarfélaga.
Bæjarfélagið er víðfeðmt og nær allt
frá Arnarfirði að sunnanverðu að
Geirólfsnúpi á Hornströndum.
Byggðarkjarnar sveitarfélagsins eru fimm:
Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri
og Þingeyri.
Ísafjarðarbær er skemmtilegur og litríkur
bær með fjölbreytt menningarlíf. Bærinn
hefur upp á margt að bjóða; öfluga og
framsækna skóla, fjölbreytt íþrótta- og
tómstundastarf, blómlegt tónlistarlíf,
góða þjónustu og verslanir, eitt besta
skíðasvæði landsins og endalausa
möguleika til að njóta einstakrar náttúru
svæðisins.
Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má
finna á heimasíðu þess:
www.isafjordur.is
Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni og ábyrgð:
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0