Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 47

Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 47
Hrafnshóll óskar eftir að ráða starfsmann til að vinna með fjármál fyrirtækisins. Hrafnshóll er fyrirtæki sem þróar hagkvæmar húsnæðislausnir og sérhæfir sig í að byggja húsnæði á landsbyggðinni. Leitað er að fjármálaglöggum aðila sem hefur áhuga á að taka þátt í spennandi uppbyggingu með fyrirtækinu. Umsóknarfrestur er til og með 8. mars nk. Umsækjendur eru vinsam legast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Ráðum www.radum.is. RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • radum@radum.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Agla Sigr. Björnsdóttir, agla@radum.is. Hrafnshóll var stofnað 2017 og byggir vandað íbúðarhúsnæði með nútímalegum aðferðum á skjótan og hagkvæman hátt. Fyrirtækið hefur í samstarfi við sveitarfélög víða um land byggt húsnæði sem meðal annars uppfyllir skilyrði laga og reglugerða um hagkvæmt íbúðarhúsnæði. Nánari upplýsingar er að finna á www.hrafnsholl.is. HELSTU VERKEFNI: • Dagleg fjármálaumsýsla og kostnaðareftirlit • Umsjón og ábyrgð á fjárstreymis-, tekju- og rekstraráætlunum • Samskipti við viðskiptavini og lánastofnanir • Þátttaka í innkaupum og tilboðsgerð HÆFNISKRÖFUR: • Háskólamenntun á sviði fjármála eða viðskipta • Færni í fjármálastjórn og reynsla af áætlanagerð • Mjög góð greiningarfærni og framúrskarandi Excelkunnátta • Góðir samskiptahæfileikar og samningatækni Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. FJÁRMÁLAUMSJÓN/CONTROLLER Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Nánari upplýsingar: Ari Eyberg (ari@intellecta.is) Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Umsóknarfrestur: 16. mars 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Launakjör eru í samræmi við laun annarra sviðsstjóra Ísafjarðarbæjar og taka mið af kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt bæjarmála- samþykkt Ísafjarðarbæjar ræður bæjarstjórn sviðsstjóra. Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gerð grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteini / prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum, eru hvattir til að sækja um. Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins. Sviðsstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra, er staðgengill hans og gegnir skyldum bæjarritara. Jafnframt heyrir undir viðkomandi rekstur bæjarskrifstofu, menningarmál bæjarins og yfirstjórn fjármála. Um er að ræða 100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í liði, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf er á. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri tungu. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun er kostur • Reynsla af rekstri og stjórnun • Leiðtogahæfileikar • Frumkvæði og skipulagshæfileikar • Reynsla af opinberri stjórnsýslu • Góð færni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Yfirmaður stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins • Staðgengill bæjarstjóra • Ritari bæjarstjórnar og bæjarráðs • Verkefnastýring, vinnsla og eftirfylgni ákvarðana bæjarráðs og bæjarstjórnar • Daglegur rekstur og mannauðsmál bæjarskrifstofu • Umsjón með persónuverndarlöggjöf og jafnlaunavottun • Ber ábyrgð á málaflokkunum menningar- og atvinnumál Í sveitarfélaginu búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjarðarbær varð til þann 1. júní 1996 við sameiningu sex sveitarfélaga. Bæjarfélagið er víðfeðmt og nær allt frá Arnarfirði að sunnanverðu að Geirólfsnúpi á Hornströndum. Byggðarkjarnar sveitarfélagsins eru fimm: Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri og Þingeyri. Ísafjarðarbær er skemmtilegur og litríkur bær með fjölbreytt menningarlíf. Bærinn hefur upp á margt að bjóða; öfluga og framsækna skóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, blómlegt tónlistarlíf, góða þjónustu og verslanir, eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika til að njóta einstakrar náttúru svæðisins. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má finna á heimasíðu þess: www.isafjordur.is Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni og ábyrgð: ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.