Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 94
MEÐ AUKINNI LÍFS-
REYNSLU OG ÞROSKA
ER ÉG ALLTAF AÐ SJÁ EITTHVAÐ
NÝTT, BÆÐI Í KVEÐSKAPNUM
OG TÓNLISTINNI.Kristinn Sigmunds-son f lytur Vetrar-ferðina eftir Franz Schubert við undir-leik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur í
Salnum í dag, laugardag, 29. febrúar,
klukkan 15.00. Vetrarferðin er með
því síðasta sem Schubert samdi og
er talin vera eitt mesta stórvirki
ljóðasöngsins.
Kristinn segist ekki hafa tölu á
því hversu oft hann hafi sungið
Vetrarferðina. „Fyrsti konsertinn
þar sem ég söng hana alla var árið
1987,“ segir hann. Spurður hvað sé
svo heillandi við verkið segir hann:
„Vetrarferðin stendur mér mjög
nærri, hún er eins og sálarspegill.
Það er ekkert sem ég hef fengist við
sem hefur leitað jafn mikið á mig
eða er jafn nálægt mér.
Í fyrsta skipti sem ég söng Vetrar-
ferðina, löngu áður en ég gerði mér
grein fyrir að ég væri allt of ungur
til að geta það, þá hugsaði ég með
mér: Jæja, þá er ég búinn að þessu.
Nú sný ég mér að öðru verkefni. Svo
leitaði Vetrarferðin á og hefur gert
með reglulegu millibili.“
Sér alltaf eitthvað nýtt
Spurður hvort skilningur hans á
á textanum og tónlistinni og um
leið túlkun hans sjálfs hafi breyst
mikið í áranna rás segir Kristinn:
„Með aukinni lífsreynslu og þroska
er ég alltaf að sjá eitthvað nýtt, bæði
í kveðskapnum og tónlistinni. Túlk-
unin er hverju sinni svo nátengd sál-
arlífinu og því hvernig manni líður
að hún er aldrei eins. Jafnvel þótt
ég syngi Vetrarferðina dag eftir dag
þá gæti ég ekki tryggt að túlkunin
yrði sú sama á morgun. Þetta gerir
verkið mjög spennandi.“
Kristinn flutti Vetrarferðina síð-
ast árið 2011 í Eldborgarsal Hörpu
með Víkingi Heiðari Ólafssyni og
f lutningur þeirra var magnaður.
Vetrarferðina flutti hann fyrst með
Jónasi Ingimundarsyni í Austur-
bæjarbíói. „Við Jónas f luttum
hana margoft, bæði hér heima og
í útlöndum, meðal annars á Spáni
og Þýskalandi. Nú flyt ég hana með
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur,
það er ekki í kot vísað þar. Ég hlakka
til, held að þetta verði gaman,“ segir
Kristinn.
Mozart í Los Angeles
Kristinn kennir í Listaháskólanum
og segist ekki syngja mikið opinber-
lega hér heima. Hann syngur samt
í Sálumessu Verdis með Söngsveit-
inni Fílharmóníu um miðjan mars
og 26. apríl syngur hann svo Vetrar-
ferðina í Hofi á Akureyri.
Í apríllok heldur hann til Los
Angeles þar sem hann syngur í
Brúðkaupi Fígarós. „Ég er alltaf að
læra eitthvað nýtt. Núna er ég að
læra óperu frá árinu 1919 eftir Alex-
ander Zemlinsky, sem heitir Dverg-
urinn, Der Zwerg. Ég syng hana á
Enescu-listahátíðinni í Búkarest.“
Spurður hvort hann stefni að
því að syngja fram í andlátið segir
Kristinn: „Já, því ekki það? Ég held
ekki kjafti fyrr en það verður þagg-
að niður í mér.“
Eins og sálarspegill
Kristinn Sigmundsson og Anna Guðný
Guðmundsdóttir flytja Vetrarferð Schu-
berts í Salnum í dag. Kristinn mun syngja
í óperum í Los Angeles og Búkarest.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt, segir Kristinn sem senn fer til Los Angeles. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Á netuppboði Gallerís Foldar og Bókarinnar er boðinn upp um helmingur merks
einkabókasafns Norðmannsins dr.
Ivars Orgland. Hann kom upphaf-
lega til Íslands sem sendikennari
og varði áratugum í að ef la menn-
ingartengsl Íslands og Noregs.
Hann þýddi íslensk verk, einkum
á nýnorsku, skáldsögur jafnt sem
ljóð frá öllum öldum Íslands-
byggðar og vann mikið og merki-
legt starf við kynningu á íslenskri
menningu. Þá hélt hann fjölda
fyrirlestra um Ísland í Noregi. Ivar
gaf einnig út ljóð sem hann orti
sjálfur, ýmis safnrit, orðabækur
og kennslubækur.
Ivar Orgland lést fyrir þó nokkr-
um árum en Ari Gísli Bragason,
eigandi Bókarinnar ehf., keypti
nýlega einkabókasafn hans af fjöl-
skyldu hans í Ósló, það er að segja
þann hluta sem tengist Íslandi. Nú
er um helmingur bókasafnsins, eða
um 50 bækur, boðinn upp en hinn
helmingurinn verður boðinn upp
síðar á árinu í samstarfi við Gallerí
Fold. Langflestar bækurnar eru árit-
aðar af höfundum þeirra og nánast
allar frumútgáfur.
Af einstökum höfundum má
nefna verk eftir Stein Steinarr en á
uppboðinu eru allar hans bækur,
bundnar í tvær bækur í rauðu
skinnbandi. Bók Dags Sigurðar-
sonar Hlutabréf í sólarlaginu er á
uppboðinu. Þar er einnig að finna
bækur Þorsteins frá Hamri Tannfé
handa nýjum heimi, 1. útgáfa, og Í
svörtum kuf li, 1. útgáfa, auk ann-
arra bóka eftir Þorstein. Sömuleiðis
eru þarna fyrstu bækur Jóhanns
Hjálmarssonar.
Einnig er þarna að finna ljóða-
bækur Hugrúnar, allar áritaðar.
Einnig áritaðar bækur eftir Snorra
Hjartarson. Þá eru tvær bækur eftir
Davíð Stefánsson á uppboðinu,
báðar áritaðar, en Davíð áritaði ekki
margar af bókunum sínum. Þarna
er einnig fyrsta bók Nínu Bjarkar
Árnadóttur, árituð. Fyrsta bók Ingi-
bjargar Haraldsdóttur er sömuleiðis
á uppboðinu og f leiri frumútgáfur
eftir konur.
Bækurnar 50 verða til sýnis
meðan uppboðið stendur í Gallerí
Fold en netuppboðinu lýkur þann
8. mars.
Slóðin er www.uppbod.is.
Frumútgáfur úr einkabókasafni á netuppboði
Þorsteinn frá Hamri, skáld, en bækur eftir hann eru meðal þeirra sem eru á netuppboði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING