Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 106

Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 106
3. mars – fræðsluerindi Að missa barn á meðgöngu og í/eftir fæðingu Hefst kl. 20:00 Bjarney Hrafnberg Hilmarsdóttir ljósmóðir og Díana Ósk Óskarsdóttir sjúkrahúsprestur flytja erindið. Þær segja einnig frá hópastarfi sem Landspítalinn býður uppá. Allir velkomnir Lífsgæðasetur St. Jó. Suðurgötu 41, Hafnarfirði. Athugið að gengið er inn Hringbrautarmegin. Sími: 551-4141. Netfang: sorgarmidstod@sorgarmidstod.is Untitled-5 1 25.2.2020 12:07:01 Eurovison-stemningin verður hækkuð upp í 11 í úrslitunum í kvöld en auk laganna fimm sem keppa mun Hatari, sigurvegari síðasta árs, troða upp, auk norsku sveitarinnar Keiino, sem hlaut f lest símaat- kvæði áhorfenda í Eurovision í fyrra, heiðra samkomuna með söng sínum. Kosninga f y r irkomu lag ið er óbreytt frá síðasta ári. Alþjóðleg dómnefnd vegur helming á móti símakosningu almennings í fyrri hluta, en þegar tvö stigahæstu lögin mætast í einvígi gilda ein- göngu símaatkvæði almennings. Atkvæðin sem lögin fengu í fyrri kosningunni fylgja lögunum áfram í einvígið, þannig að þeir sem flytja stigahæsta lag kvöldsins munu standa uppi sem sigurvegarar. Græn viðvörun „Þá er komið að þessu. Stóra stund- in. Það missir enginn af þessu. Upp- selt er í Höllina, vinahópar hittast, Vogaídýfur í lítratali á sófaborðum landsmanna, börnin dansa og Skylmingaþrællinn horfir á keppn- ina með Jarlinum í annarri heims- álfu. Það er gaman og það á að vera gaman. Eurovision er skemmtiefni,“ segir Styrmir Örn Hansson plötu- snúður og varpar fram alvarlegri spurningu: „Eigum við að prufa að senda í aðalkeppnina skemmtilegt lag svona einu sinni? Daði Freyr og Gagnamögnin eru ekki bara góðar manneskjur heldur einnig fram- bærilegir skemmtikraftar sem yrðu landi og þjóð til sóma. Daði er með einlægan sjarma sem grípur þig bókstaflega á fyrstu sekúndu í nærmynd. Svo taka neogagnamagnakrútt- inn við með samhæfðan dans, lát- laus í takt. Öll græn, sem er mjög móðins í dag. Það er græn viðvörun á laugardagskvöldið, því við höfum fengið nóg af dimmum viðvör- unum. Höfum gaman.“ Ískrandi spenna Þá er komið að stóru stundinni sem við Júróvisjónnördar bíðum eftir Ískrandi spenna löðrandi í Vogaídýfu Stóra stundin rennur upp í kvöld þegar í ljós kemur hverjum hlotnast sú hverfula gæfa að flytja framlag Íslands í Eurovision. Sérfræðingar Fréttablaðsins spá einvígi Ivu og Gagnamagnsins. Hvað segja krakkarnir? Ísold og Helga Meet me halfway Lag: Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson 900-9901 Daði og Gagnamagnið Think about things Lag: Daði Freyr 900-9902 Nína Echo Lag: Þórhallur Halldórsson og Sanna Martinez 900-9903 Iva Oculis Videre Lag: Iva Marín Adrichem og Richard Cameron 900-9904 Dimma Almyrkvi Lag: Dimma 900-9905 Daði með Gagnamagnið og Iva komu sterk út úr seinni undanúrslitunum og skjátlist álitsgjöfum Fréttablaðsins, börnum sem fullorðnum, ekki, stendur valið fyrst og fremst á milli Daðavagnsins og Oculis Videre. MYND/KALLI LÚ ískrandi af spenningi ár hvert,“ segir sagnfræðingurinn Markús Þórhallsson, staðfastur en þó opinn fyrir öllu. „Það hefur ekkert breyst að ég er eldheitur aðdáandi Ivu og Oculis Videre. Ég er sann- færður um að þetta undursamlega og dulmagnaða lag með þessari ungu, framúrskarandi söngkonu geti orðið glæstur fulltrúi okkar í Rotter dam. Mig langar sem sé til þess að Iva hafi sigur! Iva og hennar fólk munu fylla Íslendinga stolti. Um það er engum blöðum að f letta. Reyndar er ég þeirrar skoðunar að það eigi við um öll lög og keppendur þessa árs og mér finnst söngvakeppnin satt að segja óvenju fín þetta árið. Þess vegna er ekkert öruggt í kvöld,“ segir Markús ákafur. „Gæði laganna nú og af bragðs- f lytjendur koma í veg fyrir von- brigði af minni hálfu á borð við spælinguna árið 1987 þegar hljóm- sveitin Módel með Lífið er lag, Línu- dans Ellenar Kristjáns tveimur árum síðar, Júróvísa Botnleðju 2003 eða Daði með Is this love fyrir þremur árum, urðu að láta í minni pokann fyrir öðrum keppendum. Fleiri lög sem hafa lent í öðru sæti keppninnar hafa lifað með þjóðinni sem klassísk popplög, meðan sigur- vegararnir hafa fallið í skuggann. Sagan kennir okkur því að til lengri tíma litið getur gott silfur einfald- lega verið gulli betra.“ Daðavagninn brunar „Ég er svoleiðis húrrandi á Daða- vagninum. Ekki bara af því að lagið er frábært og atriðið skemmtilegt,“ segir Freyja Steingrímsdóttir stjórn- málaráðgjafi. „Heldur vegna þess að ég held það yrði mjög gaman að senda Daða og Gagnamagnið út, fylgjast með þeim halda áfram að heilla fólk upp úr skónum. Hver held ég að vinni? Daði. Klárt mál. Annað væri skandall.“ Annað tækifæri Margrét Erla Maack skemmti- kraftur er ekki síður áköf um borð í Daðavagninum: „Daði Freyr gefur okkur þjóðinni hér annað tækifæri til að senda hann út og við skulum ekki klúðra því. Lagið og atriðið eru ekki bara á Evrópu-, heldur heims- mælikvarða og hefur nú þegar vakið athygli út fyrir landsteinana,“ segir Margrét. „Ég tengi einstaklega vel við enska textann sem saminn er til dóttur hans – Baby – I can't wait to know what do you think about things, því ég er alveg á sama stað. Og mjög ánægð með að ávarps- liðurinn Baby eigi í alvöru við um ungbarn. Daði Freyr er frumafl og ótrúlega hæfileikaríkur og öruggur á sviði og það væru mistök að senda hann ekki út. Ég er allavega búin að leggja fyrir peninga til að kjósa hann oft, oft, oft,“ segir Margrét Erla. toti@frettabladid.is steingerdur@frettabladid.is Hatrið lifir „Lagið í fyrra, ég held ennþá með því. Það er ennþá best,“ segir Soffía Ramona Devaney, fimm ára, og sér enga ástæðu til að hrófla við úrslitum síðasta árs. „Og svo vildi ég óska að lagið Draumar geta ræst myndi keppa því þá myndum við vinna alveg strax. Þá myndu allir kunna að syngja það.“ Gagnamagnað hár „Ég held með Daða Frey. Það er flott þegar þau blása í hljóðfærin. Hann er líka með flottasta hárið,“ segir Benjamín Eldjárn Snorrason, 6 ára. Grínlaus gæsahúð „Mér finnst þau í Gagnamagninu svo geggjað flottar týpur og lagið skemmtilegt og held með þeim,“ segir Ragnheiður Björt, ellefu ára. „Iva ætti samt að vinna. Ég var í salnum og þegar hún byrjaði að syngja þá fékk ég bara gæsahúð. Ég er ekki að djóka. Ég held að hún geti náð miklu lengra í Eurovision.“ 2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.