Fréttablaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 25
Margir framleiðendur keppast nú við að koma með sportlegar jepplingsútgáfur af vinsælum fjölskyldubílum sínum og er Kia merkið engin undantekning.. Kia er nýkominn með Xceed á markað sem nokkurs konar jepp- lingsútgáfu Ceed. Þar bætist hann í f lóru annarra jepplinga eins og Stonic og Sportage en einnig Niro og Soul. En hver er þá munurinn? Til að byrja með er Kia Xceed ekki jepplingur því hann verður ekki fáanlegur með fjórhjóladrifi. Í raun og veru er hann toguð og teygð útgáfa Ceed enda deila þeir ansi miklu. Munurinn liggur í stærðartölum, Kia Xceed er 85 mm lengri en Ceed og hefur 35 mm meiri veghæð, en auk þess er skottið 30 lítrum stærra. Líkt og í Mazda CX-30 er útlitið vel heppnað og satt best að segja nokkuð sportlegt. Þegar haft er í huga að markaðssetningu Kia fyrir þennan bíl er beint að fólki með áhuga á sportlegum bílum mætti nafnið segja meira en að bíllinn sé einungis stærri útfærsla fólks- bílsins. Gott pláss í framsætum Það sem vekur fyrst athygli þegar sest er upp í bílinn er hversu þægileg framsætin eru miðað við bíl í þessum stærðarflokki. Þau ná ná vel undir hnésbótina sem er ótvíræður kostur sérstaklega í lengri akstri. Það er vel hugsað fyrir hólfum í hvívetna en minna er hugsað um aftursætisfarþegana sem fá þó niðurfellanlegan miðju- stokk með glasahöldum í Style útfærslu. Fótapláss er af skornum skammti og líklega er gert ráð fyrir að bíllinn henti best fjölskyldum með ung börn. Ekki er gert ráð fyrir að þau séu mikið að hlaða síma eða spjaldtölvur því að engin tengi eru fyrir slíkt afturí. Þótt rafstillanleg framsæti með minni séu ávallt kostur í hvaða bíl sem er var eitt sem passaði samt ekki. Þar sem fótarými mætti gjarnan vera meira í aftursætum var það eigin- lega galli að ökumannssæti skyldi færast aðeins aftur við útstig ökumanns, svo þrengdi verulega að fótum fyrir aftan. Farangurs- rými er svipað að stærð og í Mazda CX-30 eða 426 lítrar og getur stækkað í 1.378 litra með aftursæti niðri, en hægt er að fella þau niður 40/20/40 sem eykur hagræði við að flutning. Helsti ókosturinn við aðgengi í farangursrými er hversu hátt þarf að lyfta upp í opið, en dýptin þýðir að auðvelt er að koma fyrir töskum af stærri gerðinni. Samt er varadekk í fullri stærð. Eldsnöggur í skiptingum Það er gott að keyra venjulegan Kia Ceed og það sama má segja um Xceed, og kemur það nokkuð á óvart þar sem fjöðrun á að vera mýkri og bíllinn stærri á alla kanta. Bíllinn situr vel í beygjum og það er ekki mikil undirstýring þótt lagt sé snöggt á hann. Talandi um að leggja snöggt á stýrið, að þá virkar stýrið snöggt í hreyfingum í byrjun en hægir á þegar lagt er meira á það. Það er eins og það þrýsti aðeins á móti átaki öku- mannsins og fyrir vikið virkar bíllinn aðeins togstýrður. Fjölliða fjöðrun er að aftan en MacPherson turnar að framan, en þeir eru með vökvapúða á framdempurum sem minnka áhrif á yfirbygginguna þegar bíllinn lendir í holum eða ójöfnum. Sjálfskipting er sjö þrepa Bíllinn sem vantar Sport í nafnið Það eru rennilegar línur í Kia Xceed og bungan á vélarhlífinni setur kraftasvip á hann. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Vélin í Style útfærslu er spræk 1,4 lítra bensínvél. Tveir stórir litaskjáir eru áberandi í mælaborðinu og efnisval er í betra lagi. Fótapláss gæti verið betra í Kia Xceed og eins eru þrengsli við inn- og útstig. Farangursrými er með því sem best gerist í flokknum. Sjálfskipting er sjö þrepa með tveimur kúplingum og er hún því eldsnögg að skipta bílnum upp og niður. með tveimur kúplingum og er hún því eldsnögg að skipta bílnum upp og niður sem eykur við sportlega aksturseiginleika hans. Þegar bíllinn er í sportstillingu er hann duglegur að gíra niður svo að skiptingar með blöðkum í stýri verða nánast óþarfar. 1,4 lítra vélin er nokkuð spræk með sín 140 hest- öfl en eyðsla var að meðaltali 8,3 lítrar á meðan á reynsluakstrinum stóð sem verður að teljast frekar mikið fyrir þennan stærðarflokk. Brátt fáanlegur sem tengiltvinnbíll Samkeppnin er aðallega Toyota CHR og Mazda CX-30 sem báðir eru fáanlegir með fjórhjóladrifi ólíkt Kia Xceed sem ekki státar af slíku. Ford Focus Active er líka fjöl- skyldubíll sem fengið hefur sams konar stækkun á alla kanta eins og Xceed, og er einnig bara með fram- drifi en grunnverð hans er aðeins 3.690.000 kr. Grunnverð Xceed er 3.990.777 kr, en Toyota CHR er frá 4.463.000 kr. Mazda CX-30 kostar hins vegar frá 4.050.000 kr og er því mun samkeppnishæfari í verði. Kia Cxeed verður þar að auki fáan- legur sem tengiltvinnbíll næsta vor og mun þá kosta 4.390.777 kr. í grunnútfærslu sem verður 141 hestafl. Í Style útfærslu er grunn- verð bílsins 4.790.777 á sérstöku kynningarverði. Þannig kemur hann með 12,3 tommu skjá í mæla- borði og 10,2 tommu upplýsinga- skjá, auk rafstillinga með minni í framsætum, skynvæddum hraða- stilli, þráðlausri farsímahleðslu, JBL-hljómkerfi og ýmsu fleiru. Á því verði eru því ansi góð kaup í þessum bíl þar sem sjö þrepa sjálf- skiptingin er staðalbúnaður. 10 BÍLAR 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R KOSTIR OG GALLAR Kia Xceed 1,4 Grunnverð: 3.990.777 kr Hestöfl: 140/6.000 sn Tog: 242 Nm/1.500-3.200 sn Hröðun: 0-100 km 9,5 sek Hámarkshraði: 200 km Eyðsla bl.ak.: 5,8 lítrar CO2 losun: 135 g/km L/B/H: 4.395/1.826/1.495 mm Hjólhaf: 2.650 mm Dráttargeta: 1.000 kg Eiginþyngd: 1.436 kg Farangursrými: 426 lítrar Dekk/felgur: 235x45/18 n Búnaður n Sjálfskipting n Eyðsla n Ekkert fjórhjóladrif KOSTIR GALLAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.