Fréttablaðið - 03.12.2019, Side 39
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
QOD AFM ÆLIS -DÚNSÆNG
Hlý og létt dúnsæng (650 gr).
90% dúnn, 10% smáfiður. 140x200 cm
100% bómullaráklæði.
25.000 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÁGÆÐA DÚNVÖRUR
Á 25 ÁRA AFMÆLISVERÐI
QOD AFMÆLIS-DÚNKODDI
Þéttur og góður dúnkoddi. 80% hvítur
andadúnn og 20% smáfiður. 50x75 cm.
920 gr. og 100% bómullaráklæði.
8.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
SATIN STRIPE
DÚNKODDI
Þriggja laga dúnkoddi. Efra og neðra
dúnlag með þéttum, hvítum andadún og
smáfiðurkjarna. Bómullarsatínáklæði.
9.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
Hljómsveitin Brain Police hefur farið gegnum toppa og öldudali á tveggja áratuga ferli en heldur enn dampi.
„Hraðinn var gríðarlegur til að
byrja með en svo hefur þetta verið
heldur rólegt síðastliðinn áratug en
samt alltaf eitthvað,“ segir trymb-
illinn Jómbi, Jói Björn Ríkarðsson,
sem stofnaði sveitina þann 12.
nóvember 1998 ásamt þeim Herði
Stefánssyni, Gunnlaugi Lárussyni
og Vagni Leví Sigurðssyni.
„Við spændum vélina af stað fyrir
tuttugu árum og það er helvíti gott
að geta síðan bara látið hana malla
svona eitthvað fram eftir aldri,“
heldur Jómbi áfram.
„Þetta eru ég, Hörður bassaleik-
ari, Gulli gítarleikari og Jens söngv-
ari. Bara besta útgáfan af Brain eins
og hún átti alltaf að vera, þannig
séð,“ segir Jómbi um harðasta kjarn-
ann sem verður í forgrunni afmælis-
tónleikanna á Hard Rock að kvöldi
laugardagsins 28. desember.
Allir vinir í dag
„Þetta verða alvöru Brain Police
tónleikar og við spilum lög sem
spanna allan ferilinn. Þetta verður
keyrt áfram með einhverjum tutt-
ugu lögum plús tveimur upphit-
unarhljómsveitum.
Kristófer Jensson úr Lights on the
Highway verður sérstakur gestur
og mun taka dúett með Jenna og
svona,“ segir Jómbi og bætir við að
allir fyrri meðlimir Brain Police láti
að sér kveða.
„Við verðum með Vagn Leví, og
Búi Bendtsen kemur en hann leysti
Gulla af þegar hann fékk nóg í smá
stund.
Annars hefur þetta ekki verið
neitt gríðarlegt drama og allir eru
vinir að lokum þótt menn hafi
kannski verið fúlir þegar hlutirnir
voru að gerast. Það er ósköp eðlilegt
og allir eru vinir í dag sem skiptir
eiginlega meira máli.“
Æði með Metallicu og
skúffukaka með Slash
Hljómsveitin Brain Police heldur upp á tvítugsafmælið með látum
að kvöldi síðasta laugardags ársins þegar núverandi og fyrrver-
andi meðlimir spæna í gegnum ferilinn frá upphafi til vorra daga.
Hörður, Jómbi, Gulli og Jenni búnir að stilla saman strengi sína árið 2002.
Eldri, jafnvel þyngri, en jafn ferskir eru fjórmenningarnir enn til í tuskið.MYND/HILMIR ARNARSON
Allir eru vinir
að lokum þótt
menn hafi
kannski verið
fúlir á til-
teknum tíma
þegar hlut-
irnir gerast.
Það er ósköp
eðlilegt og
allir eru vinir
í dag sem
skiptir eigin-
lega meira
máli.
Stærðin er ekki allt
Brain Police hitaði upp fyrir Guns
N´Roses í Laugardalnum en Jómbi
segist aðspurður ekki líta á það sem
sérstakan hápunkt.
„Á ferlinum? Nei, en það var rosa-
lega gaman“ hlær hann og útilokar
þó ekki að Gulli gítarleikari hafi
náð vissum hápunkti með því að
stela skúffukökusneið frá Slash.
„Þetta er vissulega eitt af þessum
giggum sem maður gleymir ekkert.
Við hituðum náttúrlega líka upp
fyrir Metallica á sínum tíma sem
var þá kannski einhvern veginn
meiri hápunktur af því að það er í
fyrsta skipti sem við spilum fyrir
framan fleiri þúsund manns,“ segir
Jómbi sem var vanari að telja áhorf-
endurna í hundruðum.
„Ljósin eru slökkt og 15.000
manns ærast þegar við göngum
þarna fyrstir inn á svið. Sem rokk-
stjörnur. Við höfðum aldrei upp
lifað neitt slíkt áður. Þannig að
Guns N´Roses hápunkturinn? Nei,
Metallica var miklu meiri hápunkt-
ur í þessu.“
Jómbi bendir síðan á að eins og í
f leiri tilfellum er það ekki stærðin
sem skiptir mestu máli. „Þau gigg
sem maður mun taka með sér og
muna eftir eru ekki endilega þessi
stóru, eiginlega frekar svona eins og
þegar við vorum ráðnir í einkapartí
og spiluðum þar bara fyrir harða
aðdáendur í heimahúsi.
Það skilur meira eftir sig og
maður finnur nándina svo sterkt.
Þú færð kraftinn beint í æð. Við
gefum af okkur og fáum það bara
beint til baka frá fólkinu. Þann-
ig að það er ekki endilega stærðin
sem skiptir máli,“ segir Jómbi sem
er að gíra sig upp í að gefa og þiggja
á Hard Rock í lok desember.
toti@frettabladid.is
Tvítugsafmæli Brain Police
verður haldið á Hard Rock Café
í Lækjargötu laugardaginn 28.
desember og hefst klukkan 22.
Miðasala er á www.midi.is.
3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð