Fréttablaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 41
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER
Til er undarlega mikið af fólki sem ekki getur hugsað sér að hlusta á tregafulla
tónlist, lesa sorglega bók og enn
síður harmafullt ljóð. Hér í suður-
sveitum Spánar verð ég til dæmis
óþyrmilega var við þá kröfu að allt
eigi að vera hressandi og fjörugt.
Það er svo sem ágætt því ég hef
lítið gaman af sjálfsvorkunn en
harmur, háski og hið svartasta í
sálardjúpunum getur verið ægi
fagurt og forvitnilegt. Reyndar
held ég að allt sé fallegt þegar það
er meðhöndlað af heilindum. En
það á bara ekki allt upp á pall-
borðið. Meira að segja var kvartað
á síðasta ljóðakvöldi í bænum
mínum þegar enginn hafði lesið
upp fjörugt ljóð.
Það þarf svo sem ekki að fara í
suðursveitir eftir svona viðmóti.
Samfélagsmiðlar og sjónvarpið
eru mikið fyrir hvers konar fjör-
meti. Auðvitað er fátt betra en
fölskvalaus gleði en stundum
finnst mér þetta innantóma stuð
líta út eins og verið sé að reyna að
úthýsa depurðinni. En eftir því
sem ég eldist hef ég sífellt minni
þörf á því að láta hafa ofan af fyrir
mér með glansi og látalátum.
Það sem hreyfir mest við mér
á fasbókinni eru oft myndir úr
göngutúrum eða færslur þar sem
einhver hefur fyrir því að deila
reynslu úr sínum gráasta hvers-
dagsleika. Myndir af gardínum í
upptendruðum glugga hrífa mig
stundum meir en myndir úr fríinu
með blómarósum og kokteilum á
fjarlægri strönd.
Ég held nefnilega að hamingjan
komi umbúðalaust, sé sáraein-
föld og finnst jafnvel þar sem síst
má búast við. Og ef hún hverfur
við smá trega þá mætti segja mér
að það hafi verið einhvers konar
fasbókar hamingja.
Fasbókar
hamingja
Skúbb ísgerð
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Ístertur