Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Síða 12

Skessuhorn - 03.01.2019, Síða 12
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 201912 Laugardaginn 15. desember síðast- liðinn útskrifaðist Anna Lilja Ás- bjarnardóttir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Anna Lilja var dúx skólans að þessu sinni með 8,3 í meðaleinkunn. Aðspurð hvort nám hafi alltaf legið vel fyr- ir henni segir hún svo ekki vera. „Þegar ég var yngri var ég ekkert sérstaklega góður námsmaður. Ég hætti í menntaskóla þegar ég var 18 ára en byrjaði svo í félagsliðanámi árið 2015 og í FSN árið 2016. Mér gekk strax alveg ágætlega og kom sjálfri mér í raun töluvert á óvart hvað það varðar,“ segir Anna Lilja. Full vinna og tveir skólar Anna Lilja er búsett á Selfossi og var í fjarnámi frá FSN. Hún segist fyrst og fremst hafa valið skólann vegna símats sem þar er í boði. „Það eru engin lokapróf, sem mér finnst henta vel. Svo er töluvert ódýrara að fara í FSN heldur en flesta skóla í bænum og ég átti líka vinkonu í skólanum,“ segir Anna Lilja. Sam- hliða námi hefur hún verið í fullri vinnu á hjúkrunarheimili. „Ég var líka í félagsliðanámi frá Mími skólaárið 2016-2017 svo ég var í fullri vinnu og tveimur skólum,“ segir hún. Anna Lilja segist vera mjög skipulögð enda finnist henni það mikilvægt til að ná árangri. „Ég hefði örugglega ekki getað þetta nema með góðu skipulagi,“ segir hún. „Ég held samt að það sé lang- mikilvægast að maður hafi áhuga á náminu og vilji ná árangri ef það á að ganga eftir. Á þessum tíma- punkti langaði mig að klára stúd- entspróf svo ég lagði mig alla fram við það,“ segir Anna Lilja. Aðspurð hvað taki núna við seg- ist hún ætla að halda áfram að vinna fyrst um sinn en stefnir svo á að sækja um í Sjúkraflutningaskólan- um. „Ég ákvað að klára stúdents- prófið til þess að geta lært sjúkra- flutningar. Ég stefni svo á að fara út í háskóla og læra að verða bráða- tæknir einn daginn,“ segir Anna Lilja. „En það er rosalega gott að vera búin með þennan áfanga og ég ætla aðeins að njóta þess núna,“ bætir hún við. arg Anna Lilja Ásbjarnar- dóttir dúxaði við FSN Anna Lilja Ásbjarnardóttir útskrifaðist með hæstu lokaeinkunn á stúdentsprófi frá FSN. Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari afhenti henni viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Ljósm. tfk Minnisvarði um fyrsta vita á Akra- nesi var formlega vígður fimmtu- daginn 20. desember síðastlið- inn á Akurshól. Sævar Freyr Þrá- insson bæjarstjóri og Gísli Gísla- son hafnarstjóri kveiktu á vitan- um. Að frumkvæði Faxaflóahafna var efnt til samtarfs við Akranes- kaupstað um gerð minnisvarðans en tilefnið er hundrað ára afmæli gamla vitans á Breið. Að lokinni athöfn var gestum boðið til mót- töku í Akranesvita þar sem hljóm- sveitin Ylja flutti ljúfa tóna. Það voru Faxaflóahafnir sem sáu um val á efni sem notað var í mannvirkið og voru það SF smið- ir sem önnuðust uppsetningu og steypu samkvæmt teikningu sem Faxaflóahafnir létu vinna. Fyrir- tækið Liska ehf. vann lýsingar- hönnun mannvirkisins og var það Rafstöðin sem sá um framkvæmd rafmagnsmála. Gísli Jónsson ehf. sá um alla jarðvegsvinnu og Unn- steinn Elíasson hlóð grjóthleðslu sem er við rætur mannvirkisins. BOB vinnuvélar settu upp nýjar undirstöður fyrir skilti sem Bjarni Helgason hönnuður hannaði og Toppútlit prentaði út. Umsjón með framkvæmdinni höfðu starfs- menn Akraneskaupstaðar, Al- freð Þór Alfreðsson rekstarstjóri áhaldahússins og Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri. mm Minnisvarði um fyrsta vitann á Akranesi Vitinn stendur sem næst upprunalega staðnum á Akurshól. Gestir klappa fyrsta ljósmerkinu lof í lófa. Ljósm. Þórður Ólafsson. Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka hlóð undirstöðuna fyrir vitann. Ljósm. Þórður Ólafsson. Halla Margrét Jónsdóttir útskrifað- ist föstudaginn 21. desember síðast- liðinn af náttúrufræðabraut frá Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Halla Margrét var dúx skólans með rúmlega 9,6 í lokaeinkunn. Hún seg- ist þakka velgengninni að hún hafi haft gaman af náminu en sé þó líka dugleg að gera fleira en einungis að læra. „Námið liggur þokkalega fyr- ir mér en ég þarf samt að leggja á mig til að læra og hef alltaf gefið mér tíma á hverjum degi fyrir námið. Ég hef líka alla tíð haft gott bakland sem hefur veitt mér hvatningu og stuðn- ing. En þá er líka mikilvægt að gera það sem manni þykir skemmtilegt,“ segir Halla Margrét í samtali við Skessuhorn. Auk þess að vera í fullu námi var Halla Margrét dugleg að taka þátt í félagslífi innan skólans. Hún var for- maður Tónlistarklúbbs, einn stofn- andi Femínistafélagsins Bríetar í skólanum, tók þátt í söngleiknum Með allt á hreinu og var í Gettu bet- ur liði skólans, svo dæmi séu tekin. Einnig var hún á afreksíþróttasviði FVA fyrstu tvö ár sín við skólann, þar sem hún æfði knattspyrnu með ÍA. „Mér þykir skemmtilegt að hafa mik- ið að gera en ég get þó alveg slakað á líka. Ég á það jafnvel til að taka að mér of mörg verkefni og segi stund- um já við of mörgu í einu,“ segir hún. Halla Margrét hefur einnig lært á píanó í 13 ár og síðastliðinn vetur var hún að kenna á píanó við Tónlistar- skólann á Akranesi auk þess sem hún vann í afleysingum á skólabókasafni FVA. „Ég er nokkuð skipulögð en ég þarf þess líka til að koma öllu að sem ég vil gera,“ segir hún. Stefnir á háskólanám Aðspurð hvað taki við segist Halla Margrét ætla í Háskóla Íslands nú eftir áramót. „Ég stefni á að fara í Háskólann í Reykjavík í haust að læra hugbúnaðarverkfræði. En það er ekki tekið inn í það nám um áramótin svo ég ætla að byrja á að taka nokkra áfanga í HÍ til að undirbúa mig,“ segir hún. „Ég tók áfanga í forritun í FVA og fannst það mjög skemmtilegt. Í kjölfar- ið langaði mig að læra verkfræði, tölvunarfræði eða stærðfræði. Þeg- ar ég skoðaði þetta svo betur og kynnti mér það sem var í boði sá ég strax að hugbúnaðarverkfræði væri tilvalin fyrir mig.“ Aðspurð hvort hún hafi góð ráð fyrir aðra námsmenn segist Halla Margrét hvetja fólk til að finna hvar áhuga- svið þeirra liggur og velja það. „Ég vil endilega hvetja alla til að finna það sem þeim þykir skemmtilegt og leggja sig alla fram við það því þá gengur manni vel. Maður upp- sker eins og maður sáir.“ arg Halla Margrét Jónsdóttir dúxaði í FVA Halla Margrét Jónsdóttir dúxaði við FVA. Hér er hún við útskriftina ásamt Dröfn Viðarsdóttur aðstoðarskólameistara og Ágústu Elínu Ingþórsdóttur skóla- meistara. Ljósm. Myndsmiðjan. Hér er Halla Margrét ásamt Guðrúnu Valdísi systur sinni sem útskrifaðist frá Princeton háskóla á síðasta ári. Ljósm. úr einkasafni.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.