Skessuhorn - 03.01.2019, Síða 13
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 13
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
LJ
Ó
S
M
Y
N
D
: G
U
Ð
R
Ú
N
J
Ó
N
S
D
Ó
TT
IR
15:30 – 17:00 Kjör á Íþróttamanni ársins 2018 í Hjálmakletti
17:00 Kyndilganga frá Hjálmakletti að Englendingavík
Flugeldasýning í Englendingavík að göngu lokinni
Tónlistaratriði - Gestir úr fjöllum mæta - Kakó og smákökur
Flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar Brákar
og Björgunarsveitarinnar Heiðars
Kyndlum verður dreift í göngunni og ekki er
leyfilegt að koma með eigin flugelda á svæðið.
KJÖR Á ÍÞRÓTTAMANNI ÁRSINS
OG ÞRETTÁNDAGLEÐI
Sunnudaginn 6. janúar 2019
BÓKARI ÓSKAST
TIL STARFA
Vegna aukinna verkefna óskar Uppbygging ehf
eftir að ráða bókara til starfa á skrifstofu
félagsins í hálft starf til að byrja með.
Þekking á DK bókunarkerfinu og reynsla í
fjármálastjórnun og launakerfum nauðsynleg.
Upplýsingar á kristinminney80@gmail.com,
eða í síma 771-3366.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Það var mikið um að vera á flug-
vellinum á Rifi laugardaginn fyr-
ir jól. Þá var á ferðinni hópur úr
Félagi flugmanna og flugvélaeig-
enda – AOPA á Íslandi. Þetta fé-
lag einkaflugmanna fagnaði fagn-
aði 70 ára afmæli á árinu.
AOPA stendur fyrir Aircraft
Owners and Pilot‘s Association og
eru það alþjóðasamtök með deild-
ir í 73 löndum. Að sögn Harald-
ar Diego, eins af flugmönnunum
í ferðinni til Rifs, fara þeir reglu-
lega í svona ferðir. „Landið okkar
er einstakt í heiminum og hvergi
fallegra að fljúga um og það finnst
fleirum en okkur heimamönnun-
um. Undanfarið hafa augu manna
heldur betur beinst að Íslandi og
mikilli grósku í einkafluginu hér,
enda hefur félagið og einstaka fé-
lagar staðið fyrir ágætu kynning-
arstarfi á landi og þjóð, bæði á
samfélagsmiðlum sem og í tíma-
ritum. Flugmenn eru „hópdýr“
og finnst gaman saman. Að viðra
vængina saman er nokkuð sem við
gerum tiltölulega oft og að þessu
sinni varð Snæfellsnesið fagra fyr-
ir valinu. Veðrið var prýðilegt alla
leið og stafalogn í Rifi. Flugið frá
Reykjavík og til baka tók allt í allt
um tvo tíma. Alls voru sjö flugvélar
sem fóru með í þetta skipti og með
þeim um 20 manns, ásamt Skugga,
flughundinum mikla.“
Flugmennirnir höfðu samband
við Hópferðabíla Svans Krist-
óferssonar og fór Svanur með þá
í stutta skoðunarferð um næsta ná-
grenni. Þar var komið við og skoð-
uð gamla flugbrautin við Gufu-
skála ásamt því að kíkja á Gufu-
skálamastrið. Einnig kíkti hóp-
urinn í kaffi til Júlíusar Steinars
Heiðarssonar í húsnæði hans á
Hellissandi. Aðspurður um hver
væri tilgangurinn með ferðum sem
þessum sagði Haraldur að lokum:
„Það er alltaf gaman að fara svona
hópflug og kynnast betur stöðum
úti á landi og um leið vekja athygli
á fluginu sem að okkar mati er það
skemmtilegasta sem við gerum.“
þa
Hópferð einkaflugmanna
á Snæfellsnes
Farið var á sjö einkaflugvélum, hér eru þrjár þeirra við flugstöðina í Rifi.
Hluti hópsins á flugvellinum í Rifi, ásamt flughundinum Skugga.
Hefð er fyrir því að Grundarfjarð-
arbær færi nýjustu íbúum bæjarins
gjafir sem koma til með að nýt-
ast vel. Björg Ágústsdóttir bæjar-
stjóri afhenti gjafirnar á gamlárs-
dag en það eru Grundarfjarðar-
bær, heilsugæslan og leikskólinn
sem standa að þessu. Þarna mátti
finna kuldagalla og ullarföt, tann-
bursta, bækur og fleira sem nýtist
börnunum. Gjafirnar hafa verið
gefnar á hverju ári síðan 2006.
tfk
Grundarfjarðar-
bær færir nýjustu
íbúunum gjafir
Rósa Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri ásamt sex af tíu nýjustu íbúunum.