Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Side 21

Skessuhorn - 03.01.2019, Side 21
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 21 in, Akranestraktorinn, settur sam- an árið 1918, af Vestur-Íslendingn- um John Sigmundssyni í gamla ís- húsi Þórðar sem sést á myndinni. Einnig fóru samsetningar og próf- anir á traktornum fram í portinu við gömlu verslun Þórðar við Vest- urgötu 48. B.P. – Spennistöð – Sjómannastofan – Akur - Vörubílastöðin Þar sem Hafnarbraut og Suður- gata skerast saman sést afgreiðslu- hús B.P. og er bensíntankur B.P. staðsettur fyrir framan húsið. Þar fyrir aftan sést rafspennistöð, sem enn stendur þarna skammt frá hús- inu nr. 16 við Suðurgötu sem ekki sést á myndinni. Þar fyrir ofan sést í Sjómannaheimilið eða Sjómanna- stofuna, sem var vígð 6. mars 1949. Nú í dag hafa verkstjórar SFA að- stöðu sína í húsinu. Þar fyrir aftan sést gamla Akurshúsið, sögufrægt hús sem, því miður, var rifið um 1951-53. Þar fyrir framan við Ak- ursbraut 2 sést Vörubílastöð Akra- ness, sem var umsvifamikið fyrir- tæki á þessum árum. Fróðá - Hjallhúsið Á þessu svæði var húsið „Fróðá“ byggt um 1935 af Elíasi Bene- diktssyni, netagerðarmanni. Var það í syðri kanti núverandi Akurs- brautar. Húsið var flutt að Vestur- götu 11 um 1950 vegna lagning- ar hinnar nýju götu, Akursbrautar. Sú sögufræga „Fróðá“ er nú vernd- uð í Byggðasafninu; var flutt þang- að 1988. Þarna stutt frá var einnig hið sögufræga „Hjallhús“, upphaf- lega byggt rétt eftir 1870, en rifið um eða upp úr miðri síðustu öld. Myndhöfundar Myndhöfundur er Ólafur Árna- son, og er myndin líklega tekin úr húsi HB & Co um miðja öldina. Hin myndin er tekin af Ragnheiði Þórðardóttur á Grund; einnig um eða upp úr miðri síðustu öld og af nokkrum af þeim húsum sem eru á hinni myndinni, en frá öðru sjónar- horni. Myndin er lagfærð af Þórði H. Ólafssyni, sem hefur einnig ver- ið til aðstoðar við val á myndum. Lengst til vinstri á þeirri mynd sést í afgreiðsluhús B.P. Þá nokk- ur fiskverkunarhús í eigu Heima- skaga; neðst nýja hraðfrystihúsið; við endann á því er lágreist hús, með fimm stórum hleraopum, þar sem sturtað var af vörubílum síld og öðrum fiski, sem var ýmist saltaður eða hertur. Þá kemur gamla íshús- ið og handan götunnar verslun Ax- els Sveinbjörnssonar, hús sem áður voru í eigu Bócó fyrirtækisins, eins og áður var sagt frá. „Nú er hún Snorrabúð stekkur“ Óvíða á landinu hefur útgerð verið stunduð í jafn miklum mæli og yfir svo langt tímabil og hér á Akranesi. Náði hún hámarki, fyrst í tíð Brynj- ólfs biskups Sveinssonar, Skálholts- biskups, en Skálholt var þá höfuð- staður Íslands. Átti Skálholtsstóll a.m.k. í tíð Brynjólfs búð á Akra- nesi. Sú búð mun hafa verið Kross- hús, einmitt þar sem síðar stóð ís- hús Bjarna Ólafssonar og Þórðar Ásmundssonar. Á þeirri tíð er tal- ið að fyrsti vísir að sjávarþorpi hafi myndast á Íslandi, þ.e. hér á Skipa- skaga um miðja 17. öld, enda bend- ir nafnið til þess, sem var áður ein- faldlega „Skagi“. Um það leyti sem myndin var tekin var „líf og fjör í Teigavör“. Vertíðarbátar og togar- ar, auk smærri báta lönduðu reglu- lega metafla. Flutningaskip fluttu afurðirnar á erlenda markaði, auk þess sem þau færðu okkur varning frá framandi stöndum, en ekki þarf að lýsa fyrir Akurnesingum þeim breytingum sem orðið hafa hér á Skaganum á síðustu árum og ára- tugum. Þær minna okkur á Jónas Hallgrímsson, sem forðum orti, af öðru tilefni: „Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs, götuna fram eftir veg?“ Ásmundur Ólafsson tók saman. Hjallhús og Akraneshöfn um miðja síðustu öld. Ljósmynd: Ólafur Árnason. Sigurður Vigfússon, löggiltur vigtarmaður spjallar við Ingimund Ingimundarson, skipstjóra á Keili AK 92 um aflabrögðin. Þeir standa við horn Akranesvogarinnar, sem rekin var af SFA, en Síldarverksmiðjan var öflugt fyrirtæki, sérstaklega á árunum eftir 1960, en þá var myndin tekin (myndhöfundur óþekktur). Verslun Axels Sveinbjörnssonar (Axelsbúð) við Hafnarbraut 8. (Óþekktur myndhöfundur). Þessi mynd er tekin árið 1956. Staðurinn er þar sem núverandi Akursbraut liggur. Húsið Akur fyrir miðri mynd, en það varð að víkja vegna lagningar götunnar. Til vinstri sést í Sjómannastofuna. Frá vinstri er Steinunn Þórðardóttir (1915-2005) frá Grund, Bjarni Ólafsson Árnason rafvirki fæddur 1939 og Árni Halldór Árnason (1915-1991), en Árni var lengi vélstjóri í Heimaskagafrystihúsinu og síðar verslun- armaður í Axelsbúð. Í barnavagninum er yngsti sonur þeirra Guðmundur Árnason fæddur 1956. Þeir feðgar Árni og Bjarni eru að koma af rauðmagaveiðum, en heimili þeirra var neðsta íbúðarhúsið við Suðurgötu (nr.16). Ljósm. Ólafur Frímann Sigurðsson.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.