Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 27 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Eldri borgarar í Borgarnesi héldu sitt árlega Aðventumót í pútti fimmtudaginn 13. desember sl. í Eyjunni í Brákarey. Til leiks mættu 25 manns, 13 karlar og 12 konur. Var það 89. æfing hópsins á árinu og hefur mæting verið mjög góð allt árið. Fjórir félagar hlutu viðurkenningu fyrir 100% mæt- ingu á tímabilinu október til des- ember; Valur Thoroddsen, Indriði Björnsson, Þorbergur Egilsson og Magnús E. Magnússon. Hlutskarpastur í Aðventu- mótinu án forgjafar í karlaflok- ki var Indriði Björnsson með 58 högg. Í öðru sæti var Guðmundur Bachmann með 61 högg og þriðja sætinu deildu bræðurnir Guðmun- dur og Þorbergur Egilssynir með 63 högg. Árni Ásbjörn Jónsson vann kep- pni með forgjöf á 53 höggum. An- nar varð Ágúst M. Haraldsson með 55 högg og þriðji Magnús E. Mag- nússon með 57 högg. Anna Ólafsdóttir var hlutskör- pust í kvennaflokki án forgjafar með 59 högg. Ásdís B. Geirdal var önnur með 61 högg og Lilja Ó. Ólafsdóttir þriðja einnig með 61 högg. Guðrún Helga Andresadótti stóð efst í kvennaflokki með fogjöf á 53 höggum. Jónína B. Ingólfs- dóttir var önnur með 54 högg og Guðrún B. Haraldsdóttir þriðja einnig með 54 högg. Veitt voru verðlaun fyrir flest einpútt á innanhúsæfingum í haust. Hlutskarpastur varð Þorbergur Egilsson með 295 pútt eða 13 að meðaltali á æfingu. Hann vann einnig „þristabanann“ fyrir flesta 36 holu hringi án vítis. Fór hann alls 9 hringi án vítis á 22 æfingum eða 41% hringjanna. Pútthópur Borgarbyggðar hyggst mæta vel undirbúinn í púttmótin á koman- di ári. ii/kgk Aðventumót FEBBN í pútti Þorri keppenda á Aðventumóti FEBBN í pútti. Ljósm. Heba Fjeldsted. Sara Björk Gunnarsdóttir lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu og leik- maður Wolfsburg í Þýskalandi var útnefnd Íþróttamaður ársins 2018 af Samtökum íþróttafréttamanna, en kjörinu var lýst í liðinni viku. Þetta var í sjöunda sinn sem Sara Björk komst á topp tíu listann og sagðist hún vera ánægð með að hafa loks náð titlinum Íþrótta- maður ársins. Júlían J.K. Jóhanns- son, kraftlyftingamaður varð í öðru sæti og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður í því þriðja. Þá varð Valdís Þóra Jónsdóttir kylf- ingur úr Leyni á Akranesi í ellefta sæti í kjöri Íþróttamanns ársins, en hún var valin kvenkylfingur ársins. Samtök íþróttafréttamanna veittu nú í sjöunda sinn viðurkenningu til þjálfara ársins og var það Kristján Andrésson þjálfari sænska lands- liðsins í handbolta sem hlaut þann heiður. Viðurkenning til liðs ársins fór til landsliðs Íslands í golfi sem varð Evrópumeistari á árinu, en Valdís Þóra var einmitt hluti þess auk þeirra Birgis Leifs Hafþórs- sonar, Ólafíu Þórunnar Kristins- dóttur og Axels Bóassonar. Hreinn í Heiðurshöllina Hreinn Halldórsson var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ. Hann er átjándi einstaklingurinn sem ÍSÍ útnefn- ir í höllina. Hreinn Halldórsson er fæddur 1949 og hóf fljótlega að leggja stund á kúluvarp. Árangur hans vakti snemma athygli og gaf Ómar Ragnarsson honum viður- nefnið, „Strandamaðurinn sterki“ en það viðurnefni átti eftir að fest- ast við Hrein. Árið 1976 var Hreinn kjörinn Íþróttamaður ársins í fyrsta sinn, en það ár bætti hann Íslands- metið í kúluvarpi og keppti á Ól- ympíuleikunum í Montreal. Árið 1977 vann Hreinn sitt fræknasta afrek þegar hann varð Evrópu- meistari innanhúss í San Sebastian á Spáni. Þar kastaði hann kúlunni 20,59 metra og skákaði meðal ann- ars Geoff Capes, margföldum Evr- ópumeistara og Vladislaw Komar, pólska Ólympíumeistaranum frá 1972. Hreinn varð um leið fyrsti Íslendingurinn til að verða Evr- ópumeistari í frjálsíþróttum í 27 ár. Sama ár bætti Hreinn Íslands- metið í kúluvarpi þegar hann kast- aði 21,09 metra á móti í Stokk- hólmi, met sem stóð í þrettán ár. Á Ólympíuleikunum í Moskvu árið 1980 hafnaði Hreinn í 10. sæti. Hann lagði síðan kúluna á hilluna árið 1982. mm/ Ljósm. ÍSÍ Sara Björk er Íþróttamaður ársins Hópur íþróttafólks sem tilnefndur var í kjörinu um Íþróttamann ársins. Strandamaður sterki, Hreinn Halldórsson, var valinn í Heiðurshöll ÍSÍ. Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona er Íþróttamaður ársins 2018. Körfuknattleikssambandið er búið að festa leikdaga í átta liða úrslit- um Geysisbikars karla og kvenna í körfunni. Í karladeildinni mætir Skallagrímur ÍR mánudaginn 21. janúar klukkan 19:15. Í kvenna- deildinni mætir Stjarnan Skallgrími sunnudaginn 20. janúar klukkan 14 og sama dag mæta Haukar Snæfelli klukkan 19:15. mm Leikdagar í Geysisbikarnum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.