Skessuhorn - 19.06.2019, Side 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 25. tbl. 22. árg. 19. júní 2019 - kr. 750 í lausasölu
Rauðhærðasti
Íslendingurinn
Hægt að skrá sig
til keppni á
irskirdagar@akranes.is
Írskir dagar verða haldnir
4.-7. júlí 2019
COMBO
TILBOÐ
PYLSA
OG GOS*
COMBO VERÐ:
549KR
Þessi glaðbeitti Skagapiltur hleypur hér út af Akranesvelli eftir að hafa fylgt leikmönnum ÍA og KR inn á völlinn síðastliðinn laugardag. Um næstu helgi er svo von á
fjölmörgum ungum og upprennandi knattspyrnumönnum á Akranesi þegar hið árlega Norðurálsmót fyrir 7. flokk drengja verður haldið í bænum. Ljósm. gbh.
Hópur fólks á Akranesi, sem á það
sameiginlegt að hafa veikst vegna
rakaskemmda og myglu í atvinnu-
húsnæði, hefur ritað landlækni bréf.
Farið er fram á að landlæknisemb-
ættið beiti sér fyrir aðgerðum í heil-
brigðiskerfinu vegna veikinda sem
rekja má til sýkts húsnæðis. Hópur-
inn sér sig knúinn til að fara fram á
þetta þar sem hann stendur frammi
fyrir ráðaleysi sérfræðinga þegar
kemur að veikindum sem rekja má
til rakaskemmda í húsum. „Það eru
jafnvel til læknar sem væna sjúk-
linga um ímyndunarveiki. Kerf-
ið er því máttlaust þegar kemur að
þessu,“ segja viðmælendur Skessu-
horns. Í bréfi þeirra segir meðal
annars: „Við eigum það öll sameig-
inlegt að glíma við veikindi vegna
staðfestra rakaskemmda og myglu á
vinnustað og höfum leitað til lækna
sem búa yfir ólíkri sérfræðiþekk-
ingu í þeirri von að fá leiðbeiningar
og aðstoð við að ná bata. Það hef-
ur oftast, því miður, borið lítinn ár-
angur,“ segir í upphafi bréfsins. Þá
er bent á að mygla sé hið nýja asbest
og beri að meðhöndla sem slíkt.
Í Skessuhorni í dag er rætt við
tvær konur sem eiga það sameigin-
legt að hafa veikst alvarlega af völd-
um rakaskemmda og myglu í hús-
næði sem þær störfuðu í. Vilja þær
upplýsa almenning um veikindin,
lýsa sjúkdómasögu sinni. Veikindi
af völdum húsmyglu eru alvarleg
og vilja þær segja sögu sína ekki síst
til að aðrir geti áttað sig á einkenn-
unum lendi það í þeirri aðstöðu að
vinna í sýktu húsnæði. mm
Sjá nánar bls. 16-17.
Alvarleg veikindi vegna
myglu og rakaskemmda
Vegna mikilla þurrka síðan í byrj-
un maí hefur verið lýst óvissustigi
almannavarna á Vesturlandi vegna
hættu á gróðureldum. Þá var sömu-
leiðis í liðinni viku virkjuð við-
bragðsáætlun vegna hættu á gróð-
ureldum í Skorradal. Óvissustigi er
lýst yfir þegar grunur vaknar um að
eitthvað sé að gerast af náttúru- eða
mannavöldum sem á síðari stigum
gæti leitt til þess að heilsu og ör-
yggi fólks, umhverfis eða byggðar
sé ógnað.
Slökkvilið Borgarbyggðar hélt
fjölmenna æfingu í Skorradal síð-
astliðið föstudagskvöld sem gekk að
óskum. Í Skessuhorni í dag er rætt
við slökkviliðsmenn og Úlfar Lúð-
víksson lögreglustjóra og formann
almannavarnadeildar Vesturlands.
kgk
Sjá nánar bls. 20-21.
Æfðu viðbrögð í Skorradal