Skessuhorn - 19.06.2019, Qupperneq 3
Hvalfjarðardagar 2019
21. – 23. JÚNÍ
Föstudagur 21. júní
Ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga
Þema í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðadaga 2019 verður töfrar Álfholtsskógar. Myndin verður að vera tekin í júnímánuði
2019. Senda skal myndir á netfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is
Skreyta heimreiðar
Skreyta heimreiðar, póstkassa eða götur, verðlaun veitt fyrir flottustu skreytinguna.
Kl. 12:00-18:00 Sundlaugin að Hlöðum opin
Kl. 12:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið
Kl. 18:00-22:00 Hótel Laxárbakki
Laxárbakki býður heim, gestum boðið að skoða íbúðirnar og aðstöðuna.
Hamingjustund milli kl. 18:00-19:00. Grillveisla og drykkur kr. 2.500. Borðapantanir í síma 551- 2783.
Laugardagur 22. júní
10:00-20:00 Sundlaugin að Hlöðum opin
Glaðningur fyrir börnin.
10:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið
Boðið verður upp á að taka myndir af sér með hermanni í fullum herklæðum og hertrukki frá árinu 1945
á milli kl. 13:00–16:00.
Kl. 11:00-13:00 Hótel Glymur býður upp á dögurð (bröns)
Kaffi, te, safi, brauð og kex, bláberjajógurt, beikon, egg, eggjahræra, brauðréttur, reyktur lax með hunangssósu, skinka,
lifrarpate, kjúklingur, kartöflubátar, rjómasveppasósa, súkkulaðibitakaka. Verð kr. 2.800.
Kl. 12:00 Tónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Ásta Marý Stefánsdóttir sópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari halda ljóðatónleika í Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Á efnisskrá tónleikanna eru norræn ljóð úr ýmsum áttum. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en listamenn þiggja
frjáls framlög með þökkum.
12:00-16:00 Líf í Lundi í Álfholtsskógi
Axlarhringur hlaupinn kl. 12:00 og dregið verður úr þátttakendum og verðlaun veitt.
Fjölskylduratleikur kl. 13:00.
Ganga um svæðið með leiðsögn.
Plöntugreining - dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun veitt.
Víkingabúðir, eldsmiðir, bogsmiðir, sölubás. Gestum býðst að prófa bogfimi, axarkast og tálgun.
Grillað verður teinabrauð og sykurpúðar, ketilkaffi og kakó. Kostar 300 kr. eða frjáls framlög í skógarsjóð.
Kl. 13:00-17:00 Hótel Glymur - Kaffihlaðborð
Kaffi, te, brauðréttir, rjómaterta, súkkulaðiterta, marengsbomba, randalín, kleinur.
Verð fyrir 11 ára og eldri 2.800 kr. 7-10 ára 1.000 kr. og frítt fyrir 6 ára og yngri.
Kl. 13:00-17:00 Þórisstaðir
Sveitamarkaður á Þórisstöðum, fjölbreytt vöruúrval, ath. ekki allir með posa.
Candy floss og krapís.
Hoppukastalar.
Kl. 14:00 - 17:00 Melahverfi við Stjórnsýsluhús
Frumsýning á járnhænunni Belindu eftir Önnu G. Torfadóttur.
Traktora- og fornbílasýning.
Húsdýragarður.
Teymt verður undir börnum.
Froðurennibraut Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Grillveisla kl. 15:00, pylsur í boði SS og kókómjólk í boði MS meðan birgðir endast.
Hoppukastalar
Götu- og sveitabæjagrill. Við hvetjum nágranna í þéttbýli og dreifbýli til að grilla saman og komast í réttu stemninguna
fyrir rjóðursönginn.
Kl. 21:00 Rjóðursöngur í Sparirjóðri í Álfholtsskógi
Orri Sveinn trúbador stjórnar fjöldasöng. Fjölmennum og tökum góða skapið með.
Sunnudagur 23. júní
Kl. 12:00-18:00 Sundlaugin að Hlöðum opin
Kl. 12:00-17:00 Hernámssetrið að Hlöðum opið
Kl. 16:00 Tónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Ragnheiður Ólafsdóttir og hljómsveit. Leikin verða þjóðlög frá ýmsum löndum ásamt kveðskap og frumsömdu efni. Með-
leikarar Ragnheiðar eru Hermann Stefánsson, gítarleikari og Snorri Skúlason, kontrabassi.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
www.hvalfjardarsveit.is Hvalfjarðardagar