Skessuhorn - 19.06.2019, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 201922
Á Snorrastöðum í Kolbeinstaða-
hreppi hafa feðgarnir Kristján Ágúst
Magnússon og Magnús Kristjáns-
son unnið að fjósbyggingu í vet-
ur. Blaðamaður Skessuhorns sótti
þá feðga heim í liðinni viku en þá
höfðu þeir lokið við að heyja deg-
inum áður. „Við byrjuðum síðast
svona snemma í heyskapnum fyrir
tveimur árum og þá náðum við að
slá þrisvar sinnum,“ segir Kristján,
bóndi á Snorrastöðum, um hey-
skapinn. „Þetta vor er það besta sem
ég man eftir síðan ég flutti hingað
árið 1992 og veturinn einstaklega
þægilegur líka. Það var bara snjór
í mánuð og nánast frostlaus jörð.
Hins vegar er orðið ansi þurrt núna
hjá okkur. Ég hef til dæmis aldrei
séð svona lítið vatn í ánni á þess-
um tíma árs. Úthagi er einnig far-
inn að fölna, eins vel og hann leit út
í vor. Svo er birkiskógurinn hérna,
sem lýgur nú aldrei að manni, hann
var sprunginn út 18. maí. Það hefur
aldrei gerst fyrr,“ bætir Kristján við
og segir jafnframt að gott væri að fá
smá rigningu fyrir gróðurinn.
Eftir stutt spjall um heyskap
og veðrið var farið í nýja fjósið og
blaðamanni sýnd nýbyggingin.
Framkvæmdir gengu
vonum framar
„Við förum í þessar framkvæmd-
ir á dimmasta tíma ársins,“ byrj-
ar Kristján frásögn sína. „Það voru
ýmsar ástæður fyrir stækkuninni. Í
fyrsta lagi var gamla fjósið orðið úr-
elt og í öðru lagi var elsti sonurinn
tilbúinn til þess að koma með okk-
ur inn í búskapinn. Það var því auð-
veldara að taka ákvörðun vitandi af
næstu kynslóð til að taka svo við
búinu þegar þar að kemur.“
Framkvæmdir við jarðvinnu hóf-
ust í september á síðasta ári og fyrsta
steypa rann í mótin 10. nóvem-
ber. Steypuvinna, frágangur á þaki,
gluggum og hurðum lauk svo að
mestu leyti 22. maí síðastliðinn.
Byggingin er 777 fermetra viðbygg-
ing við 559 fermetra nautaeldis- og
fjárhús sem byggt var 2009. Samtals
mun því nýja fjósið á Snorrastöðum
verða 1.336 fermetrar að stærð.
„Við vorum í góðu samstarfi við
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
þar sem hann Sigurður Guðmunds-
son var mín önnur hægri hönd í
þessu. Að auki fengum við fína fjár-
mögnun frá bankanum sem sýndi
strax jákvæð viðbrögð. Við sömdum
svo aftur við BM Vallá, sem reisti
fjárhúsin árið 2009. Þeir skiluðu því
verki virkilega vel af sér og kom eig-
inlega ekkert annað til greina en að
fá þá aftur,“ segir Kristján.
Byggingin er byggð úr forsteypt-
um einingum með límtréssperrum
og yleiningum í þaki. „Við vorum
alltaf ákveðin í því að hafa steypt hús
og halda sama stílnum á bygging-
unum. Það voru undirverktakar frá
Sjamma ehf. á Akranesi sem komu
og reistu húsið og við sömdum svo
við þá í beinu framhaldi um að gera
þakið. Við keyptum allt efni og þeir
sáu um uppsetningu. Við vorum í
rauninni með sömu smiðina allan
tímann. Okkur líkaði svo ofboðs-
lega vel við þessa menn; bæði þægi-
legir, fljótir og gerðu allt vel. Ég
reiknaði alltaf með einhverjum töf-
um en þeir eru hérna í nánast fimm
mánuði, á dimmasta tíma ársins, að
reisa húsið, sem er enginn tími fyrir
svona stóra byggingu,“ segir Krist-
ján ánægður með hvernig til hefur
tekist við framkvæmdina.
Betri aðstæður fyrir
skepnurnar
nú þegar verktakar hafa skilað af
sér verkinu fer allt á fullt hjá þeim
hjónum, Kristjáni og Branddísi,
ásamt syni þeirra Magnúsi, að mála
veggi og setja upp innréttingar en
Kristján fer þó hægt í setja einhver
föst tímamörk. „Ég ætla ekki að
vera með stórar yfirlýsingar, en mér
þykir nú líklegt að það verði á þessu
ári,“ svarar hann kíminn, spurður
hvenær kýrnar fá að flytja inn á nýja
heimilið. „Þær fá algjöran lúxus
þegar þær koma hingað inn. Hús-
ið er bjart og þær geta nánast legið
hérna í sólbaði frá mars mánuði og
langt fram á haustið. Á gamla staðn-
um voru einungis gluggar á hliðun-
um og svo vifta. Hérna í nýja fjós-
inu verður engin vifta heldur sjálf-
krafa loftræsting. Það verður hægt
Glæsilegt nýtt fjós risið á Snorrastöðum:
„Það verður líklega mun erfiðara
að venja mannskapinn“
Þessi forvitni kálfur vildi
vita hvað blaðamaður
Skessuhorns væri að
bralla í fjósinu.
Feðgarnir á Snorrastöðum, Kristján Ágúst Magnússon og Magnús Kristjánsson,
ásamt hvolpinum Ellu í nýja fjósinu.
Nýja fjósið er 1.336 fermetrar að stærð. Eldborgin blasir svo við í öllu sínu veldi í
hrauninu norðan við bæinn. Ljósm. Magnús Kristjánsson.
Nú hafa verktakar skilað frá sér fjósinu og sjá ábúendur um að mála og setja upp
innréttingar en það verk fer nú á fullt.
Gamla fjósið var komið á undanþágu og munu kýrnar á Snorrastöðum fá
töluverða uppfærslu á sínum aðbúnaði, meðal annars fleti, kodda og sérstaka
klórvél.