Skessuhorn


Skessuhorn - 19.06.2019, Side 25

Skessuhorn - 19.06.2019, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 19. jÚnÍ 2019 25 Yngri kynslóðin skoðar hestana, en Dalahestar buðu upp á hestaferðir fyrir börnin á túninu við Silfurtún í Búðardal. Ljósm. sm. Gasblöðrurnar njóta alltaf mikilla vinsælda hjá yngstu kynslóðinni. Ljósm. kgk. Kristfríður Rós Stefánsdóttir, fjallkona í Snæfellsbæ, ávarpar gesti í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Ljósm. af. Klifurfélag Akraness var með klifursýningu á Akratorgi. Hér sígur Þórður Sævarsson niður gamla Landsbankahúsið. Ljósm. ki. Arna Dögg Hjaltalín, fjallkona í Stykkishólmi, gengur inn í Hólmagarð í fylgd fánabera. Ljósm. þe. Ungar stúlkur á Akranesi. Ljósm. ki. Ungar Grundarfjarðarstúlkur skemmtu gestum með söng. Ljósm. sk. Fjölmenni á Akratorgi. Ljósm. ki. Pétur Steinar Jóhannsson var útnefndur Snæfellsbæingur ársins 2019 á hátíðarhöldunum í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Nafn- bótina hlýtur hann m.a. fyrir þrautseigju við útgáfu Sjómannadags- blaðs Snæfellsbæjar í áranna rás. Ljósm. af. Fastur liður er að nammiflugvélin flýgur yfir hátíðarsvæðið í Loga- landi í Reykholtsdal og varpar út karamellum og öðru góðgæti. Engin undantekning var á því í ár. Ljósm. Josefína Morell. Leiktæki í garðinum í Logalandi. Ljósm. Josefína Morell. Nemendur Grunnskóla Borgarness voru með skemmtiatriði í Hatarastíl í Skallagrímsgarði. Atriðið sló í gegn hjá hátíðargestum. Ljósm. glh. Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hélt hátíðarræðu í Skallagrímsgarðinum. Hér er hann ásamt Steinunni Pálsdóttur, sem fékk þann heiður að fá fyrstu sneiðina af Lýðveldis- kökunni í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins. Ljósm. glh. Fjölmenni var í Skallagrímsgarðinum í Borgarnesi á þjóðhátíðardaginn. Ljósm. glh.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.