Skessuhorn - 30.10.2019, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 2019 5
Auglýsing um skipulag á Akranesi
Deiliskipulag Skógarhverfis 2. áfangi, breyting á skipulagsmörkum
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi 24. september 2019 að auglýsa breytingu á
deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfanga skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í að norðurhluti 2. áfanga deiliskipulags Skógarhverfis er felldur úr gildi.
Mörk niðurfellingarinnar eru norðan Akralundar 41, Fjólulundar 9-13 og Álfalundar 26.
Deiliskipulag Skógarhverfis áfangi 3B, skólalóð
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi 24. september að auglýsa nýtt deiliskipulag Skógar-
hverfis áfangi 3B, sem er stofnanalóð fyrir leik- og grunnskóla í Skógarhverfi, í samræmi við 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða þriggja hektara skólalóð við Asparskóga. Gert er ráð fyrir ýmsum stofnunum s.s.
leikskóla, grunnskóla og íþróttahúsi. Aðalaðkoma að lóðinni verður frá torgi í norðurhorni Asparskóga.
Afmarkaður er stór byggingareitur fyrir einnar til þriggja hæða byggingar, ásamt kjallara.
Nýtingahlutfall miðast við allt að 10.000 m² heildarbyggingar magn.
Deiliskipulag Skógarhverfis 4. áfangi
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi 24. september að auglýsa nýtt deiliskipulag
Skógarhverfis 4. áfanga, sem nær yfir svæði milli Þjóðbrautar og Asparskóga,
í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í fjórða áfanga er gert ráð fyrir lágri en þéttri byggð fjölbýlishúsa. Meginhluti húsanna verður tveggja
hæða án bílakjallara og lyftu. Fimm hæða hús verður nyrst á skipulagssvæðinu.
Fjöldi íbúða verði á bilinu 89-126.
Tillögurnar verða til kynninga í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu
Akraneskaupstaðar www.akranes.is frá og með 31. október til og með 15.desember 2019.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sé tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við tillögurnar þarf að skila skriflega eigi síðar en 15. desember 2019.
Skila skal ábendingum og athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18
eða á netfangið skipulag@akranes.is
Sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Hunda- og kattaeigendur athugið
Seinni hunda- og kattahreinsun verður laugardaginn 2. nóvember í
þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin)
Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002
er hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín
árlega og er það innifalið í leyfisgjaldi. Gunnar Gauti Gunnarsson
dýralæknir annast hreinsunina.
Kattahreinsun verður frá kl. 9.00 til 12.00
Hundahreinsun verður frá kl. 13.00 til 15.00
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar
(ath. greiða þarf með peningum):
Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólga, hótelhósti og •
hundafár, verð kr. 3.000.
Örmerking hunda og katta, verð kr. 4.500.•
Perlutex ófrjósemistöflur í hunda og ketti, verð kr. 1.500 (uppselt)•
Bólusetning gegn kattafári, verð kr. 3.000.•
Óskráðir hundar og kettir eru velkomnir og geta
eigendur þeirra nálgast skráningargögn á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður í
síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Dalabyggð, fráveita í
Búðardal - Landlagnir
Dalabyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Fráveita í Búðar-
dal – Landlagnir“ sem felur í sér lagningu um 380 m af
skólplögnum, ásamt tveimur brunnum og tengingar við
eldri útrásir.
Kynningarfundur verður haldinn 6. nóvember kl. 13:00
á skrifstofu Dalabyggðar.
Útboðsgögn verða send rafrænt í tölvupósti. Senda skal ósk um
útboðsgögn á netfangið kristjan@dalir.is. Gögnin verða tilbúin
til afhendingar föstudaginn 1. nóvember og skulu fyrirspurnir
berast í síðasta lagi 8. nóvember.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370
Búðardal, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 12. nóvember n.k.,
en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Laugardaginn 2. nóvember kl. 13
verður þess minnst í Safnahúsinu í
borgarnesi að 110 ár eru liðin frá
fæðingu Páls Jónssonar bókavarð-
ar. Páll arfleiddi Héraðsbókasafn
borgarfjarðar að bókasafni sínu
sem þykir eitt merkasta einkabóka-
safn landsins. bókhlaða Páls verður
opin og þar verða sýndar nokkrar
fágætar bækur úr safni hans í sér-
stökum sýningarskápum. Einnig
verða sýndar bækur sem hann batt
inn. Stutt dagskrá verður við opn-
un sýningarinnar kl. 13 þar sem
sagt verður frá Páli og bókasöfnun
hans. Sýningarstjórn annast Sverr-
ir Kristinsson.
Páll Jónsson var fæddur 1909 að
Lundum í Stafholtstungum en ólst
upp lengst af í Örnólfsdal í Þver-
árhlíð. Átján ára fluttist hann til
Reykjavíkur þar sem hann lagði
stund á verslunarstörf og blaða-
mennsku þangað til hann hóf störf
hjá borgarbókasafni Reykjavík-
ur árið 1953 sem bókavörður. Því
starfi sinnti hann þangað til hann
lét af störfum árið 1980 vegna
aldurs. Auk áhuga síns á bókum
og bókasöfnun hafði Páll mikinn
áhuga á ljósmyndun, en mynd-
ir hans hafa birst víða í bókum og
tímaritum. Tengt ljósmyndaáhuga
Páls, var áhugi hans á ferðalögum
og útivist. Páll var virkur félags-
maður í Ferðafélagi Íslands og sat
í stjórn þess frá 1947 til 1978 er
hann baðst undan endurkosningu.
Páll var ritstjóri Árbókar Ferða-
félagsins frá 1968- 1982 er hann
lét af starfi að eigin ósk. Árið 1980
var Páll gerður að heiðursfélaga
Ferðafélagsins.
Í Pálssafni eru margar afar fágæt-
ar bækur, svo sem biblia laicorum
eða Leikmannabiblía eftir Johann
Auman, sem prentuð var 1599 í
þýðingu Guðbrands biskups. Páll
lagði á það mikla áherslu að safna
íslenskum bókum frá fyrri öldum. Í
safninu eru alls 29 íslenskar bækur
frá 17.öld og elst áritaðra bóka er
erlend latínubók úr eigu brynjólfs
biskups Sveinssonar.
Þess skal einnig getið að margar
af sínum bókum batt Páll inn sjálf-
ur, enda þótti hann meðal bestu
bókbindara landsins.
Opið verður til kl. 16 á opnun-
ardag sýningarinnar og eftir það
13-18 virka daga. Sýningin stendur
fram til 19. nóvember.
-fréttatilkynning
Opnuð sýning í Safnahúsi úr
safni Páls Jónssonar
Ökumaður var stöðvaður þar sem
hann ók um Grundarbraut í Grund-
arfirði laust fyrir kl. 16 síðastliðinn
miðvikudag, grunaður um akstur
undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Strokpróf sem tekið var á mannin-
um svaraði jákvætt og var maður-
inn því handtekinn, færður til blóð-
töku og látinn gefa skýrslu. Að svo
búnu var honum sleppt en hann var
kærður fyrir athæfið. Á fimmtudag
var ökumaður stöðvaður til móts
við Hraunsás í Hálsasveit, grunaður
um ölvun við akstur. Strokpróf sem
tekið var af manninum gaf einnig
merki um neyslu fíkniefna. Maður-
inn var handtekinn og fluttur á lög-
reglustöðina í borgarnesi þar sem
tekið var af honum blóð. Maðurinn
var kærður fyrir akstur undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna og ölvun-
arakstur. Á sunnudaginn var öku-
maður stöðvaður á borgarbraut í
borgarnesi, grunaður um akstur
Ökumenn undir áhrifum í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi
undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Hann var sömuleiðis prófaður með
strokuprófi, sem svaraði jákvætt
fyrir neyslu tveggja efna. Ökumað-
urinn var handtekinn og heimilaði
leit í bíl sínum. Þar fundust ætluð
fíkniefni sem maðurinn sagði vera
kókaín og marijúana. Maðurinn
var handtekinn, gert að gefa blóð-
sýni og færður í fangaklefa en síð-
an sleppt. beðið er eftir niðurstöðu
blóðprufu og einnig rannsóknar á
efnunum. Málið er til rannsóknar.
Á sunnudagsmorgun var ökumað-
ur stöðvaður við N1 í borgarnesi,
grunaður um ölvun við akstur. Var
hann látinn blása og vínandamagn í
útblæstri mældist 0,62 prómill, en
saknæmismörk liggja við 0,50 pró-
mill. kgk