Skessuhorn - 30.10.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 201924
Framkvæmdir við Grunnskólann í borgarnesi hafa staðið yfir
frá því vorið 2018 og var fyrsti áfangi verksins kláraður nú í
skólabyrjun í haust. Í þeim hluta framkvæmdarinnar var salur
og eldhús við skólann, kennslurými fyrir yngsta stig og list-
og verkgreinastofur. Matsalurinn er kærkominn en undanfar-
in ár hafa nemendur þurft að fara yfir á Hótel borgarnes að
borða í hádeginu. „Síðasta vetur var samningnum við hótelið
sagt upp svo þá þurftu foreldrarnir að sjá um þetta og senda
börnin með nesti,“ segir Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri þegar
Skessuhorn kíkti í heimsókn í skólann í síðustu viku.
Allir bekkir eru nú komnir í sínar skólastofur. „Það er þó
nóg eftir og við erum núna að missa heilan gang, sérkennslu-
rými, vinnuherbergi og kaffistofu starfsfólks í frekari fram-
kvæmdir. Við verðum því í limbói í vetur líka. Það er ótrúlegt
hversu vel starfsfólk hefur tekið þessu öllu. Það fylgir þessu
mikið álag,“ segir Júlía.
arg
Fyrsta áfanga við Grunnskólann í Borgarnesi lokið
Útsýnið frá vinnusvæði yngsta stigs er ekki af verri endanum.
Læra saman.
Matsalurinn er kærkomin viðbót við skólann.
Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri nýtur útsýnisins úr matsalnum.
Vel búin heimilisfræðistofa.
Krakkar í nýju textílmenntastofunni.
Spenntir krakkar að hlusta á kennarann útskýra næsta
verkefni í smíðastofunni.
Horft úr glugga af hæð fyrir ofan matsalinn. Ljósm.
Grunnskólinn í Borgarnesi.
Ný myndmenntastofa.
Einbeittir krakkar að læra í nýju kennslustofunni sinni.
Hægt er að opna á milli tveggja kennslurýma.
Fallegt útsýni um stóra glugga í nýja matsalnum.