Skessuhorn - 30.10.2019, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 20196
Fundu þýfi
og dóp
VESTURLAND: Á þriðju-
daginn í síðustu viku handtók
Lögreglan á Vesturlandi tvo
menn og framkvæmdi hús-
leit í umdæminu. Við leit-
ina fannst ætlað amfetamín
og ýmsir munir sem lögregla
telur vera þýfi, t.d. hljóðfæri,
kreditkort og vegabréf, ásamt
fleiri munum. Munirnir voru
haldlagðir, tveir menn hand-
teknir og færðir til skýrslu-
töku. Mál þetta reis í kjöl-
farið af öðru máli sem áður
hafði komið upp, þegar öku-
maður var stöðvaður á Kjal-
arnesi grunaður um akst-
ur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Í kjölfar þess fékk
lögregla heimild til húsleitar
og handtók tvo menn, sem
fyrr segir. Lögregla vill ekki
tjá sig um hvar í umdæminu
mennirnir voru handteknir
og leitað í húsinu. Málið er
til rannsóknar. -kgk
Á tvöföldum
hámarkshraða
BORGARBYGGÐ: Er-
lendur ferðamaður var
stöðvaður við sannkallaðan
ofsaakstur á Snæfellsnesvegi
á móts við Eldborg mið-
vikudaginn 24. október síð-
astliðinn. Var hann mæld-
ur á hvorki meira né minna
ne 178 km/klst., þar sem há-
markshraði er 90 km/klst.
Lögregla segir að þessi mikli
hraði hafi komið sérstaklega
á óvart í ljósi þess að aksturs-
skilyrði hafi ekki verið góð
þarna kl. 22:30 að kvöldi.
Gerir það brotið í raun enn
alvarlega að sögn lögreglu,
þar sem leyfilegur hámarks-
hraði miðast við bestu akst-
ursskilyrði. Ökumaðurinn
viðurkenndi brot sitt. Hans
bíður ákæra og dómur. -kgk
Rætt um
hrygningar-
stofn lax
LANDIÐ: Kristján Þór
Júlíusson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, boð-
aði í síðustu viku til fund-
ar með fulltrúum Hafrann-
sóknastofnunar og Lands-
sambands veiðifélaga. Til-
efni fundarins var að fara
yfir stöðu villtu laxastofn-
anna en fyrir liggur að lax-
agöngur voru litlar síð-
astliðið sumar auk þess
sem lítið vatn hefur ver-
ið í ánum og aðstæður fyr-
ir uppgöngu laxa og veiði
þannig með versta móti. Á
fundinum fjölluðu fulltrú-
ar Hafrannsóknastofnun-
ar um villtu laxastofnana.
Fram kom að búast má við
að hrygningarstofnar laxa
nú í haust verði almennt
litlir. Nokkrir seiðaárgang-
ar eru í uppvexti í ánum
á hverjum tíma og hafa
mælst þokkalega stórir ár-
gangar í uppvexti í flestum
ám frá hrygningu síðustu
ára. Þá tóku við umræð-
ur en samstaða var um að
fylgjast grannt með þróun
laxastofna og boðað verður
fljótlega til annars fundar.
-mm
Spilamennska
byrjuð
BORGARFJ: Síðastlið-
ið mánudagskvöld lauk
haustmóti bridgefélags
borgarfjarðar. Þar var um
að ræða fimm stök kvöld
sem svo voru samreikn-
uð og þeir sem náðu hæsta
skrorinu á 4 kvöldum af 5
spila aðaltvímenninginn
frítt. Guðmundur Arason
og Elín Þórisdóttir leiddu
mótið eftir fjögur kvöld og
höfðu allnokkurt forskot.
Þetta vissu nýbakaðir feð-
ur, Heiðar baldursson og
Logi Sigurðsson, og settu
allt á fullt á lokakvöldinu.
Skor þeirra var himinhátt
eða 66,3% á meðan Guð-
mundur og Elín lentu í
brasi og komu í mark með
48,3%. Þegar kvöldin voru
samreiknuð kom í ljós að
Heiðar og Logi höfðu
samanlagða prósentu uppá
230,0 en Guðmundur og
Elín 229,8. Peyjarnir spila
því frítt næstu fjögur kvöld.
En að lokakvöldinu: Næstir
Loga og Heiðari á toppnum
voru Viktor björnsson og
Magnús Magnússon, ekki
ritstjóri, með 62,5% og
þriðju urðu Rúnar Ragn-
arsson og Guðjón Karls-
son með 56,7%. Fjórðu
voru Helga Jónsdóttir og
Sveinbjörn Eyjólfsson með
55%. Aðrir minna eins og
svo oft en alls spiluðu 12
pör. Næsta mánudagskvöld
hefst svo aðaltvímenning-
urinn og tekur hann yfir
alla mánudaga í nóvember.
Spilaður verður barome-
ter með forgefnum spilum.
Heimtur löguðust held-
ur síðasta kvöldið þó koll-
heimtur séu enn víðsfjarri,
stefnt er á enn betri heimt-
ur í nóvember.
-ij
Blöð og ber grágrenis. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Maður var í Héraðsdómi Vestur-
lands á föstudag dæmdur í 30 daga
fangelsi fyrir líkamsárás, skilorðs-
bundið til tveggja ára.
Manninum var gefið að sök að
hafa föstudaginn 2. febrúar 2018
slegið annan mann í andlið á Akra-
nesi, með þeim afleiðingum að
hann nefbrotnaði, marðist í kring-
um nefrótina, hlaut glóðarauga á
vinstra auga og þreifieymsli fyrir
nefbeini og nefbrjóski.
Ákærði neitaði sök, lýsti atvik-
um á þann vega að hann hafi aðeins
egnt brotaþola sem síðan hafi ráðist
á sig. brotaþoli viðurkenndi að hafa
átt upptökin að átökunum með
því að hrækja framan í ákærða og
hreyta að honum ókvæðisorðum.
Dómurinn taldi hins vegar fram-
burð brotaþola trúverðugan, þegar
hann sagði ákærða í kjölfarið hafa
slegið sig tvisvar í andlitið. Sá fram-
burður væri enn fremur studdur af
framburði vitna og áverkavottorði
læknis.
Í ljósi þess að brotaþoli átti upp-
tökin að átökunum og að ákærði
var með hreint sakavottorð var mat
dómstólsins að hæfileg refsing væri
30 daga fangelsi. Fullnustu refsing-
ar er frestað og fellur hún niður að
tveimur árum liðnum haldi ákærði
almennt skilorð. Ákærða var einnig
gert að greiða allan málskostnað.
kgk
Líkamsárásin átti sér stað á Akranesi.
Ljósm. úr safni.
Skilorð fyrir líkamsárás
„Samviskuskógur“ í Snæfellsbæ
Íbúum boðið að
kolefnisjafna sig sjálfir
Ákveðið hefur verið að koma upp
sérstöku gróðursvæði í Snæfellsbæ
næsta vor. Hefur það fengið bráða-
birgðaheitið „Samviskuskógur“.
Ætlunin er að koma þannig til móts
við þá íbúa sem hafa hug á að jafna
eða minnka kolefnisfótspor sitt.
Að sögn Kristins Jónassonar, bæj-
arstjóra Snæfellsbæjar, hefur svæði
fyrir ofan gömlu brúna á Hólm-
kelsá verið valið undir skóginn. Þar
geta íbúar Snæfellsbæjar frá og með
næsta vori gróðursett tré í sínu nán-
asta umhverfi og þannig stuðlað að
bæði fallegri bæ og bættri umhverf-
ismenningu. „Okkur þykir mun
skynsamlegra að bjóða fólki upp á
að kolefnisjafna sig sjálft, í stað þess
að borga einhverjum fyrirtækjum
fyrir að gera það fyrir sig. Með því
að vera sjálfur virkur þátttakandi í
kolefnisjöfnun, þá verður maður
meðvitaðri um áhrifin sem maður
hefur á umhverfið sem manneskja,“
segir Kristinn í samtali við Skessu-
horn.
Og viðbrögðin hafa ekki látið
á sér standa, að sögn bæjarstjór-
ans. „Við höfum fengið rosalega
góð viðbrögð við þessu verkefni
frá íbúum Snæfellsbæjar, mjög já-
kvæð,“ segir hann. „Þarna mun
hver og einn stjórna því hvað hann
setur niður, innan þessa afmarkaða
svæðis. Eina krafan sem gerð er
verður um ákveðna vegalengd milli
plantnanna. En val á tegundum eða
hversu mikið hver og einn gróður-
setur verður fólki í sjálfsvald sett.
Þetta verður ekki skipulagt skóg-
ræktarsvæði sem slíkt, heldur bara
svolítið villt og frjálslegt allt sam-
an,“ segir bæjarstjórinn. „Ef þetta
verkefni verður síðan algjört „hit“
þá þurfum við að finna fleiri svæði
undir svona ræktun í framtíðinni,“
segir Kristinn að endingu. kgk