Skessuhorn - 30.10.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 20198
Tók í
hurðarhúna
AKRANES: Lögreglu var
tilkynnt um grunsamleg-
ar mannaferðir á Akranesi á
föstudagskvöld. Sést hafði til
manns aka um götur bæjarins
og taka í hurðarhúna á kyrr-
stæðum og mannlausum bíl-
um. Maðurinn fannst ekki við
eftirgrennslan lögreglu. -kgk
Aðstoð við
búfjárrekstur
HVALFJSV: Verkefni lög-
reglu eru af ýmsum toga. Síð-
astliðinn sunnudag var bókað í
dagbók lögreglu að hún hefði
aðstoðað við búfjárrekstur.
Lögregla lokaði þá Akrafjalls-
vegi rétt á meðan sauðfé var
smalað yfir veginn í hádeginu.
-kgk
Alltaf í þjálfun
VESTURLAND: Lögreglu-
menn á Vesturlandi hafa und-
anfarið verið í skotvopna-
þjálfun og þurfa að henni lok-
inni að þreyta próf, en lög-
reglumenn þurfa próf á bæði
skammbyssu og langvopn.
Auk þess hafa lögreglumenn
verið við handtökuæfingar.
Að sögn aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns eru lögreglumenn um-
dæmisins í stöðugri þjálfun,
allt árið um kring, að frátöld-
um sumarmánuðum. Fram-
undan er síðan tveggja daga
námskeið allra útivinnandi
lögreglumanna umdæmisins
hjá Mennta- og starfsþróunar-
seti lögreglu (MSL). -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
19.-25. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 10.550
Mestur afli: Ebbi AK: 7.258
kg í einum róðri.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 4 bátar.
Heildarlöndun: 243.054 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
68.170 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 9 bátar.
Heildarlöndun: 63.807 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 12.695 kg í tveimur róðr-
um.
Rif: 6 bátar.
Heildarlöndun: 62.134 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
18.649 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 116.059 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
70.760 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Þórsnes SH - STY: 70.760
kg. 21. október.
2. Hringur SH - GRU:
68.170 kg. 23. október.
3. Runólfur SH - GRU:
60.048 kg. 21. október.
4. Sigurborg SH - GRU:
59.865 kg. 23. október.
5. Farsæll SH - GRU: 54.971
kg. 23. október.
-kgk
Óhöpp í
hálkunni
VESTURLAND: Þrjú um-
ferðaróhöpp urðu í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi
á mánudagsmorgun vegna
hálku. Klukkan 7:00 að morgni
varð árekstur á gatnamótum
Esjubrautar og Vogabrautar
á Akranesi þar sem tveir bílar
lentu saman. Önnur bifreið-
in rann í hálku og á hina. Allir
sem í bílunum voru reyndust
vera spenntir í bílbelti og eng-
inn hlaut skaða af. Klukkan
8:00 varð annað óhapp þegar
ökumaður á Akranesi missti
stjórn á bíl sínum í glæra-
hálku með þeim afleiðingum
að hann hafnaði á ljósastaur.
Maðurinn slasaðist ekki en
bíllinn skemmdist. Ljósastaur-
inn er skakkur og var Orku-
veitan látin vita af því. Aðeins
sex mínútum síðar barst lög-
reglu tilkynning um árekstur
á gatnamótum Grundargötu
og Hrannarstígar í Grundar-
firði. Varð sá árekstur sömu-
leiðis vegna þess að ökumað-
ur gat ekki stöðvað bifreið
sína vegna hálku. Áreksturinn
var ekki harður og fólkið í bíl-
unum slapp með minnihátt-
ar meiðsli, að sögn lögreglu.
-kgk
Grjóthrun úr
Múlafjalli
HVALFJSV: Á slaginu 7:00
í gærmorgun hringdi veg-
farandi í neyðarlínu og til-
kynnti um grjóthrun á Hval-
fjarðarvegi. Hafði grjót hrun-
ið úr Múlafjalli nálægt botnsá
og voru stærstu steinarnir á
veginum á stærð við fótbolta.
Vegagerðin var upplýst um
málið og sendi mannskap á
vettvang til að hreinsa grjótið
af veginum. -kgk
Skemmdur
Skátaskáli
SKORRADALUR: Tilkynnt
var um innbrot í Skátaskál-
ann í Skorradal um kaffileytið
á sunnudag. Rúða hafði verið
brotin og átt við stormjárn á
öðrum glugga. Engu var stolið
úr skálanum en lögregla telur
ljóst að einhver hafi farið inn
í skálann þó ekkert hafi verið
tekið. Engin för sáust í snjón-
um fyrir utan skálann við eft-
irgrennslan lögreglu. Af þeim
sökum telur lögregla að inn-
brotið hafi ekki verið framið
á sunnudag, heldur sé lengra
síðan. -kgk
Sá ekki út
BORGARNES: Lögregla
hafði afskipti af ökumanni í
borgarnesi síðastliðinn laug-
ardag. Sá hafði ekki skafið
nægilega vel af rúðunni sinni
og ók því með skert útsýni.
Ökumanninum var gert að
greiða 20 þús. króna sekt fyrir
athæfið. -kgk
Tjón og
afstunga
DALABYGGÐ: bakkað var
á bifreið í búðardal síðdegis á
föstudag og sá sem það gerði
lét sig síðan hverfa af vett-
vangi. Lögreglu tókst að hafa
upp á þeim sem bakkaði bíln-
um. Sá taldi sig ekki hafa vald-
ið neinu tjóni og hafi því ekið
á brott. -kgk
Leiksólinn Akrasel á Akranesi
sótti nýverið um ERASMUS+
styrk ásamt skólum í sex öðrum
löndum; Noregi, Ítalíu, búlgar-
íu, Grikklandi, Tyrklandi og Pól-
landi. Styrkurinn fékkst og fer
leikskólinn með forystu í verk-
efninu sem ber heitið Wonders of
waist (WOW). „Áherslur í verk-
efninu eru umhverfismennt, end-
urvinnsla, endurnýting og fleira.
Akrasel er grænfánaleikskóli og
er verkefnið sniðið að umhverf-
isstarfi með börnunum og aðal
áherslan lögð á umhverfismennt,“
segir Anney Ágústsdóttir, leik-
skólastjóri í Akraseli, og bætir því
við að hver og einn þátttökuskóli
flétti sínum áherslum inn í verk-
efnið. „Leikskólinn Akrasel mun
bæta við áherslu á heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna og reyna að
leggja áherslu á góða umgengni
við umhverfið og samfélagið allt.
Allar þátttökuþjóðirnar sem ekki
hafa grænfána hafa skuldbund-
ið sig að sækja um hann samhliða
þessu verkefni.“
Áhersla á endurnýtingu
og að minnka rusl
Verkefnið hófst formlega vikuna
21. – 24. október með upphafs-
fundi í Akraseli þar sem fulltrúar
allra ofangreindra þátttökuþjóða
mættu. „Þar var verkefnum skipt
niður og sett saman tímaáætlun.
Næsti fundur verður í Konin í Pól-
landi. Allir þátttökuskólarnir ætla
að fara yfir efni sem notuð eru dag-
lega og skilgreina hvað sé endur-
vinnanlegt og hvað ekki, hvaða efni
eru lífræn, náttúruleg og umhverf-
isvæn og hver ekki. Þá settu allir
niður lista yfir efni sem á að reyna
að minnka í umhverfinu,“ segir An-
ney. „Akrasel ætlar m.a. að reyna
að minnka notkun á bleium, papp-
írshandþurrkum og blautþurrk-
um og leggja áherslu á að nýta all-
an mat og molta það sem ekki er
notað.“ Í Akraseli hefur lífrænn út-
gangur verið jarðgerður/moltaður
frá opnun skólans árið 2008. „Sú
vinna heldur áfram og ormarnir
okkar verða settir í öndvegi í þess-
ari vinnu. Ormamolta er afurð sem
verður til þegar ánamaðkar (hau-
gormar) eru notaðir til að brjóta
niður lífrænar leifar. Þetta er fljót-
legasta leiðin til að breyta lífrænum
úrgangi í nýtanlega næringu fyr-
ir plönturæktun t.d. matjurta- eða
blómarækt,“ segir Anney.
arg/ Ljósm. aðsendar.
Eins og margir vita halda draug-
ar til á byggðasafninu í Görðum á
Akranesi og af því tilefni verður há-
tíðin Veturnætur haldin þar (fyrir
þá sem þora) í þriðja skipti fimmtu-
daginn 31. október frá klukk-
an 19:30-21:30. „Þetta er ævaforn
skandinavísk hátíð sem fáir þekkja
þó í dag, svo þetta er eiginlega líka
smá skemmtimenntun í boði okk-
ar þar sem við ætlum að fræða gesti
um hátíðina,“ segir Sigríður Lína
Daníelsdóttir í samtali við Skessu-
horn. Hátíðin var haldin á Íslandi
fyrir þúsund árum og var þessi dag-
ur eiginlega eins og áramót þess
tíma. „Á þessum tíma var til dæm-
is mikið um brúðkaup og alls kon-
ar viðburði en þá taldi fólk tímann í
vetrum og nóttum og þaðan kemur
nafn hátíðarinnar. Þessi viðburður
og samskonar viðburður á Írlandi,
sem nefnist Samhain, eru í raun
grunnurinn af hrekkjavökunni sem
við þekkjum flest, en það eru ekki
margir sem vita það. Hrekkjavakan
á því í raun rætur hingað til Íslands
og Írlands. Það er því við hæfi að
halda hátíðina hér á Akranesi,“ seg-
ir Sigríður.
Þetta kvöld verður byggðasafn-
inu breytt í draugahús, slökkt verð-
ur á ljósum, nema örfáar útvaldar
ljóstírur fá að loga. Það verða á
ferðinn afturgöngur og ýmsar
hræðilegar verur sem hugrökk-
um gæti þótt gaman að rekast á.
„Við bjóðum fólki til okkar í tvær
klukkustundir að ganga um drauga-
húsið og verðum við með frítt sæl-
gæti og auðvitað frítt inn líka,“ segir
Sigríður en hún stendur fyrir hátíð-
inni ásamt Auði Líndal. „Við erum
í raun tvær að standa fyrir þessu
og höfum fengið til liðs við okkur
krakka úr Grundaskóla og nokkra
vini og vandamenn í bænum. Þetta
er í raun samfélagsverkefni og boð-
skapurinn er að það þarf ekki að
kosta mikið að setja saman eitthvað
svona til að brjóta upp hversdags-
leikann,“ segir Sigríður og hvetur
alla sem hafa hugrekki til að koma.
Þá er mælt með því að viðkvæmar
sálir og börn yngri en 12 ára hafi
einhvern eldri og hugrakkari með
í för.
arg
Veturnætur á síðasta ári. Ljósm. Myndsmiðjan.
Veturnætur á Byggðasafninu
á fimmtudaginn
Það er margt fallegt sem náttúran hefur uppá að bjóða.
Akrasel leiðir verkefni
um umhverfisvernd
Krakkar úr Akraseli í leik í Skógrækt-
inni.