Skessuhorn - 30.10.2019, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 201922
Einn af viðburðum Northern Wave
International Film Festival, alþjóð-
legu kvikmyndahátíðarinnar sem
fram fór í Frystiklefanum um síð-
ustu helgi, var fiskiréttasamkeppn-
in. Á þessum viðburði gátu bæði
heimamenn og gestir keppt um
verðlaun fyrir besta fiskréttinn.
Reynt er að útvega þátttakendum
þann fisk sem þeir þurftu í rétt-
ina sem og annað hráefni. Rétt-
inn útbúa þeir svo heima og full-
elda og eru bæði heitir og kaldir
réttir gjaldgengir. bjóða keppendur
þeim sem mæta á viðburðinn upp á
að smakka og eru gestirnir um leið
dómarar og velja vinningshafana.
Vegleg verðlaun voru í boði og fékk
hver keppandi flösku af íslenska
gininu Himbrima að gjöf.
Fimm aðilar tóku þátt með rétti
sem voru hver öðrum betri. Veitt
voru verðlaun fyrir fyrstu tvö sætin.
Það var Kolbrún Ósk Pálsdóttir frá
Hellissandi sem varð í fyrsta sæti.
Fékk hún sérhannaðan verðlauna-
grip frá Lavalandi í Grundarfirði og
gjafabréf fyrir næsturgistingu fyrir
tvo á Hótel búðum ásamt þriggja
rétta kvöldverði og óvænta gjöf
að auki. Í öðru sæti var björgvin
Lárusson úr Grundarfirði og fékk
hann gjafabréf að upphæð þrjátíu
þúsund krónur á Fiskmarkaðinn
eða Grillmarkaðinn í Reykjavík.
Kvöldinu var þó langt frá því lok-
ið í Frystiklefanum þetta kvöld, en
að fiskiréttakeppninni lokinni tóku
við tónleikar. Á þeim komu fram
þungarokkshljómsveitin Óværa og
AAIIEENN.
þa
Landsmót Æskulýðssambands
Þjóðkirkjunnar, ÆSKÞ, var hald-
ið í Snæfellsbæ um síðustu helgi.
Heppnaðist mótið vel enda mik-
il og góð dagskrá alla helgina. Á
mótið mættu um 240 manns, bæði
unglingar og leiðtogar þeirra, frá
hinum ýmsu æskulýðsfélögum á
landinu. Fjölgaði því heldur betur
í Ólafsvík þessa helgi. Ungmenn-
in gistu í húsnæði grunnskólans og
konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur sáu
um matinn.
Mótið var sett á föstudagskvöld-
inu í félagsheimilinu Klifi af frú Ag-
nesi M. Sigurðardóttur, biskupi Ís-
lands. Fyrr um daginn höfðu krakk-
arnir tekið forskot á sæluna og farið
í ratleik um Ólafsvík. Að setningu
lokinni var farið í sundlaugarpartý
í sundlaug Snæfellsbæjar áður en
farið var að hvíla sig. Krakkarnir
vöknuðu svo snemma á laugardeg-
inum og fengu sér morgunmat áður
en þeir fóru í fræðslu sem fram fór í
Klifi. Eftir hádegi var svo hópastarf
þar sem krakkarnir gátu valið úr
hinum ýmsu hópum sem voru hver
öðrum skemmtilegri. Seinni part-
inn var svo hæfileikakeppni þar sem
fulltrúar æskulýðsfélaganna sýndu
hæfileika sína og voru atriðin hvert
öðru betra. Að þessu sinni var það
æskulýðsfélagið í Snæfellsbæ sem
vann keppnina. Að loknum kvöld-
verði tók svo við kvöldvaka sem
endaði með balli þar sem hljóm-
sveitin Melophobia og DJ Víðir og
Dýrið sáu um fjörið. Lauk mótinu
svo á helgistund í Ólafsvíkurkirkju
þar sem séra Kristján björnsson
vígslubiskup í Skálholti prédikaði
og félagar úr Melophobia sáu um
tónlistina. Það voru því þreyttir
en glaðir unglingar sem héldu af
stað heim á leið eftir vel heppnað
mót þar sem þeir voru sjálfum sér
og öðrum til mikils sóma. Næsta
landsmót verður á Sauðárkróki á
næsta ári.
þa
Kvimyndahátíðin Northern Wave
International Film Festival fór
fram um síðustu helgi. Var þetta í
tólfta sinn sem Dögg Mósesdótt-
ir stendur fyrir hátíðinni, sem nú
var í þriðja sinn í Frystiklefanum í
Rifi. Á hátíðinni var fjölbreytt úr-
val alþjóðlegra stuttmynda, hreyfi-
mynda og videóverka ásamt ís-
lenskum tónlistarmyndbönd-
um. Hátíðin hófst með setningu
á föstudagskvöldinu ásamt því
að fjórar skemmtilegar og mjög
ólíkar stuttmyndir voru sýndar.
Margir fleiri viðburðir en sýning-
ar á myndum voru á hátíðinni og
má þar nefna vinnustofur, fyrir-
lestra, tónleika, fiskréttakeppni og
fleira. Heiðursgestur á hátíðinni
að þessu sinni var einn af fremstu
kvikmyndatökumönnum lands-
ins; bergsteinn björgúlfsson. Tók
hann meðal annars upp myndir
eins og Hross í oss, Kona fer í stríð
og Ófærð og var hann með meist-
araspjall sem stýrt var af Steinunni
Ólínu Þorsteinsdóttur leikkonu en
þau voru bæði hluti af dómnefnd
hátíðarinnar.
Northen Wave IFF hátíðin hef-
ur alltaf lagt áherslu á jafnrétti og
kynjahlutföll og ekki var nein breyt-
ing á því að þessu sinni. Má þar
nefna að síðustu þrjú ár hafa kon-
ur verið í meirihluta í dómnefnd
á hátíðinni auk þess að vera heið-
ursgestir og hafa einnig á hátíðinni
verið haldnar pallborðsumræður
um stöðu kvenna í kvikmyndagerð.
Hátíð sem þessi er frábær viðbót
við menningar og skemmtanalíf
bæjar eins og Snæfellsbæjar og var
dagskrá frá morgni til kvölds. Há-
tíðin endaði svo á því að veitt voru
verðlaun hátíðarinnar og verð-
launamyndirnar og myndböndin
svo sýnd. Mynd hátíðarinnar var
valin Móðurást eftir Ara Allansson,
besta alþjóðlega stuttmyndin var
Provence eftir Kato De boeck og
besta íslenska tónlistarmyndband-
ið var Come Closer eftir borg-
ar Magnason í leikstjórn Hrundar
Atladóttur. þa Dögg Mósesdóttir ávarpar hér gesti á hátíðinni.
Móðurást var valin besta mynd Northern Wave
Keppt um besta fiskrétt-
inn á Northern Wave
Óværa spilaði í lok dagskrár.
Verðlaunahafar í fiskréttakeppninni.
Landsmót Æskulýðssambands
Þjóðkirkjunnar var í Snæfellsbæ