Skessuhorn - 30.10.2019, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 2019 25
Gleðifundur
Húsið opnar: 20:00
Borðhald hefst: 20:45
Matur: lambalæri og
meðlæti
Heimabrugguð
skemmtiatriði
Happdrætti
Bjartmar á Norður-Reykjum
Gleðifundur
Ball
Laugardaginn 16. nóvember í Logalandi
Hljómsveitin leika fyrir dansi
Ballið
Hleypt verður inn á ballið
eftir kl. 23:00
Aldurstakmark 16 ára
Miðapantanir
Miðapantanir á Gleðifund eru hjá
Bjarnfríði í Ásgarði í síma: 8657550 eða bjaddam@gmail.com.
Síðasti dagur til að panta er miðvikudagskvöldið 13. nóvember.
Ekki þarf að panta miða á ballið.
Miðaverð
Gleðifundur og ball: 6000 kr
Ball: 3000 kr
Gleðifundarnefnd
Ungmennafélags Reykdæla
Eftir að hafa starfað við trygging-
ar í rúm tuttugu ár og aðstoðað íbúa
borgarbyggðar og nærsveita með
sín tryggingamál, hefur Sólrún Fjóla
Káradóttir skipt um starfsvettvang.
Hún tók algjöra U-beygju í þeim efn-
um og sér nú um að næra nemend-
ur og starfsfólk Menntaskóla borgar-
fjarðar með hollum og góðum mat en
þar starfar hún í mötuneytinu. blaða-
maður Skessuhorns kíkti í heimsókn
í eldhúsið hennar Sólrúnar í mennta-
skólanum í borgarnesi í liðinni viku
og ræddi við hana um breytinguna
og þau jákvæðu áhrif sem hún hefur
haft.
Hrædd við óvissuna
Sólrún hóf störf hjá Menntaskóla
borgarfjarðar í byrjun janúar á þessu
ári og er því núna langt komin með
sína aðra önn og leynir sér ekki ánægj-
an hjá henni á nýja vinnustaðnum.
„Ég er stöðugt að segja við sjálfa mig
hvað þetta var góð ákvörðun hjá mér,
mér finnst þetta alveg æðislegt,“ segir
Sólrún brosandi við blaðamann. „Ég
starfaði hjá VÍS áður en ég kom hing-
að og það kom upp sú staða hjá fyrir-
tækinu að það var ákveðið að loka níu
skrifstofum á landinu og þar á með-
al skrifstofunni hér í borgarnesi,“ út-
skýrir Sólrún.
Tíu dögum frá tilkynningu Vá-
tryggingafélags Íslands um lokun
útibúa á landsbyggðinni, þar á með-
al skrifstofunnar hennar Sólrúnar í
borgarnesi, byrjaði hún að keyra til
Reykjavíkur þar sem hún fékk áfram-
haldandi vinnu hjá tryggingafélaginu.
„Ég áttaði mig fljótt á því að þessi
akstur á milli væri ekki fyrir mig. Ég
var að leggja af stað um klukkan sjö
á hverjum morgni og komin heim
um hálf sex á kvöldin. Þessi breyt-
ing lengdi vinnudaginn minn um
tvo klukkutíma. Eftir um sex vikur
af þessu ákvað ég að hætta hjá VÍS,“
útskýrir Sólrún og spyr blaðamaður í
kjölfarið hvort að það hafi verið auð-
veld ákvörðun? „Í rauninni já. Þessi
ákvörðun var mjög skýr fyrir mér
og lá í loftinu en þetta var hins vegar
mjög stór ákvörðun og stórt skref að
taka. Ég var svolítið hrædd við breyt-
inguna og óvissuna sem fylgdi því
að sleppa takinu á því sem ég þekkti
orðið mjög vel, var góð í og fannst
skemmtileg vinna,“ segir Sólrún um
fyrri vinnu sína hjá VÍS en sjálf hafði
hún unnið einnig fyrir Trygginga-
miðstöðina, og svo aðeins við trygg-
ingar hjá Sparisjóði Mýrasýslu á sín-
um tíma. „Ég hætti þarna eftir 20 ár
á þessum starfsvettvangi og hugsaði
að þetta myndi reddast, sem það svo
gerði,“ bætir hún glöð við.
Fór úr sparifötunum í
strigaskóna
Sólrún var ekki farin að velta fyrir sér
við hvað hún vildi starfa við eftir að
hafa hætt hjá VÍS en vissi að hún vildi
finna sér eitthvað í borgarnesi þar
sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni.
„Ég hætti þarna án þess að hafa eitt-
hvað fast í hendi, en eins og ég segi,
þá vissi ég að þetta myndi blessast allt
saman einhvern veginn.“ segir Sólrún
sem var með góðan stuðning frá fjöl-
skyldunni sinni allan tímann. Starf-
ið hjá Menntaskóla borgarfjarðar var
auglýst mánuði eftir að Sólrún hætti
sinni fyrri vinnu og mætti segja að
það hafi einhvern veginn legið í loft-
inu hjá Skagfirðingnum sem stökk á
tækifærið þegar það bauðst og sótti
um starfið. „Ég stökk af stað um leið
og ég sá starfið auglýst og var í raun
mjög kröfuhörð að fá það, sem bless-
unarlega gekk eftir,“ útskýrir Sólrún
og brosir. „Ég fór nefnilega í Hót-
el- og matvælaskólann í Kópavogi
og lærði mötuneytismatreiðslu á sín-
um tíma svo ég er með rétta menntun
fyrir þetta starf. Ég þurfti bara aðeins
að dusta rykið af svuntunni,“ bætir
hún við og hlær og sagðist strax hafa
farið að fletta upp í gömlum bókum
og rifja upp þekkinguna sem var þeg-
ar til staðar. „Mér finnst æðislegt að
hafa breytt um starf og ég finn fyrir
því ennþá meira í dag hvað þetta var
góð ákvörðun hjá mér. Ég spyr mig
oft af hverju ég var ekki löngu búin
að þessu, að fara úr sparifötunum, í
strigaskóna, setja á mig svuntuna og
vera á hreyfingu. Ég er búin að sitja
á rassinum í 20 ár sem er svo svaka-
lega óheilbrigt, svo er maður hissa að
maður sé stöðugt með vöðvabólgu.
Þetta er ekki flókið dæmi. Nú er ég
farin að finna fyrir vöðvum sem ég
var búin að gleyma að ég væri með
og það er yndislegt tilfinning alveg
hreint,“ segir Sólrún hæstánægð með
hlutskipti sitt.
Nemendurnir nýju
viðskiptavinirnir
Nú lítur Sólrún á nemendur mennta-
skólans sem sína viðskiptavini og segir
það ávallt sitt markmið að útbúa góð-
an og næringarríkan mat fyrir þessa
nýju viðskiptavini sína. „Ég er mjög
meðvituð um að maturinn sem ég
geri sé að færa nemendum og starfs-
fólki skólans orku fyrir daginn. Ég er
ekki mikill rjóma- og smjörkökkur ef
svo má segja. Hérna fá þau hafragraut
og lýsi á morgnanna og svo góðan og
næringarríkan hádegismat,“ útskýr-
ir Sólrún sem hefur fengið góð við-
brögð frá nemendum og starfsfólki
frá því hún hóf störf. „Það er kúnst að
hafa fjölbreytni í máltíðunum þar sem
maður er með hádegismat á hverj-
um virkum degi stóran hluta af árinu.
Aðal atriðið er að hlusta á hvað nem-
endurnir vilja og finnst gott. Vissulega
get ég ekki haft kjúkling í hverri mál-
tíð eins og margir myndu óska eftir,
en ég er alltaf opin fyrir nýjum hug-
myndum. Svo lengi sem þau fá stað-
góðan mat sem þeim finnst gott að
borða, þá er ég glöð,“ bætir hún við.
Auk þess að vera á meiri hreyfingu
í nýja starfinu er Sólrún himinlifandi
með að vera komin með samstarfs-
fólk eftir að hafa starfað tvo áratugi
nokkurn veginn ein fyrir utan nokk-
ur ár hjá sparisjóðnum sem hún lýs-
ir sem dásamlegum tíma. „Þetta er í
fyrsta skipti í langan tíma sem ég er
með vinnufélaga, sem er æðisleg til-
breyting. Ég var meira og minna ein
í vinnunni en núna allt í einu er ég
búin að fara í vinnuferðir, fara á jóla-
hlaðborð og svona. Það er æðislegt að
vera hluti af hópi,“ segir Sólrún glöð
að endingu. glh
Dustaði rykið af svuntunni eftir 20 ár í tryggingum
Sólrún Fjóla Káradóttir skipti um starfsvettvang og er himinlifandi yfir breytingunum
Sólrún Fjóla er glöð með nýju vinnuna hjá Menntaskóla Borgarfjarðar.
Það leynir sér ekki ánægjan í vinnunni
hjá Sólrúnu.
Hér má sjá Marinó Þór, nemanda MB og leikmann Skallagríms í körfubolta, fá sér
hádegismat hjá Sólrúnu.
Sólrún að störfum en hún er afar þakklát fyrir hreyfinguna sem fylgir nýju
vinnunni.