Skessuhorn - 30.10.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað var í kvöldmat
hjá þér í gær?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ólafur Vignir Jónsson
Ég fékk pizzu.
Áskell Jónsson
Kjötfarsbollur með rófum og
kartöflum.
Hulda Einarsdóttir
Hakk og spaghetti.
Pálmi Vilhjálmsson
Fiskbúðingur.
Sigurbjörg Helga
Sæmundsdóttir
Kjúklingabringur, svona nachos
kjúklingur.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur sagt upp samningi sínum
við Spánverjann Manuel Rodrigu-
ez. Frá þessu er greint í tilkynn-
ingu á Facebook-síðu Skallagríms.
Manuel tók við þjálfun meistara-
flokks karla í sumar og stýrði liðinu
í fyrstu þremur leikjum vetrarins,
sem allir töpuðust. Áður hafði hann
þjálfað kvennalið Skallagríms með
góðum árangri, frá 2015 til 2017.
Atli Aðalsteinsson, sem verið hef-
ur aðstoðarþjálfari meistaraflokks
karla frá því síðasta vetur, mun taka
við stjórn liðsins, að minnsta kosti
tímabundið þar til annað verður
ákveðið.
kgk
Skallagrímur krækti í fyrstu stig
vetrarins í 1. deild karla í körfu-
knattleik þegar liðið lagði Sel-
foss á útivelli. Leikið var á Selfossi
á mánudagskvöld. borgnesingar
höfðu undirtökin allan leikinn og
unnu að lokum þriggja stiga sigur,
86-89.
Skallagrímur byrjaði leikinn
af miklum krafti og komst í 2-15
eftir miðjan upphafsfjórðunginn.
Þá tóku gestirnir rispu svo ekki
munaði nema fjórum stigum þeg-
ar leikhlutinn var úti, 15-19. Sel-
fyssingar minnkuðu muninn í eitt
stig snemma í öðrum fjórðung en
komust ekki nær. Skallagrímsmenn
tóku völdin á vellinum að nýju og
fóru með ellefu stiga forskot inn í
hálfleikinn, 37-48.
borgnesingar héldu í kringum
tíu stiga forystu allan þriðja leik-
hlutann, þar til í lokin að heima-
menn minnkuðu muninn í sjö stig,
66-73. Snemma í lokafjórðungn-
um komu Selfyssingar sér tveimur
stigum frá Skallagrími og hleyptu
mikilli spennu í leikinn. Skalla-
grímsmenn létu forystuna aldrei af
hendi á lokamínútunum þó gest-
irnir þjörmuðu að þeim. Fór svo
að lokum að borgnesingar sigruðu
með 89 stigum gegn 86.
Hjalti Ásberg Þorleifsson var
stigahæstur Skallagrímsmanna
með 21 stig og sex fráköst að auki.
Kristján Örn Ómarsson skoraði 16
stig, Kristófer Gíslason skoraði 15
stig og tók átta fráköst, Kenneth
Simms var með ellefu stig, 14 frá-
köst og sex stoðsendingar, Davíð
Guðmundsson tíu stig og Marinó
Þór Pálmason átta stig. Almar Örn
björnsson og Arnar Smári bjarna-
son skoruðu þrjú stig hvor og Isia-
iah Coddon tvö stig.
Kristijan Vlodovic var atkvæða-
mestur í liði Selfyssinga með 24
stig, sex fráköst, sex stoðsending-
ar og fimm stolna bolta og Ragnar
Magni Sigurjónsson kom honum
næstur með 17 stig.
Skallagrímur situr eftir leikinn í
sjöunda sæti deildarinnar með tvö
stig eftir fimm umferðir. Næst leika
borgnesingar í deildinni miðviku-
daginn 13. nóvember, þegar þeir
mæta Hamri í borgarnesi.
kgk
Snæfellingar máttu játa sig sigr-
aða gegn Hetti, 95-73, þegar lið-
in mættust í 1. deild karla í körfu-
knattleik á mánudagskvöld. Leikið
var austur á Egilsstöðum.
Snæfell byrjaði leikinn betur og
leiddi fyrstu mínúturnar. Þeir skor-
uðu fyrstu sjö stigin en eftir það
tóku heimamenn við sér og voru
komnir yfir þegar upphafsfjórðung-
urinn var hálfnaður. Þeir áttu síðan
góðan kafla það sem eftir lifði leik-
hlutans og höfðu afgerandi forystu
að honum loknum, 29-15. Heima-
menn juku síðan forskot sitt hægt
en örugglega þar til flautað var til
hálfleiks. Þeir leiddu með 57 stig-
um gegn 33 í hléinu og voru með
unninn leik í höndunum.
Hattarmenn voru áfram sterkari
í síðari hálfleik. Þeir juku forskotið
í þriðja leikhluta og voru 35 stigum
yfir fyrir lokafjórðunginn, 81-46. Í
fjórða leikhluta komu Snæfellingar
aðeins til baka, skoruðu 27 stig gegn
14 og náðu þannig að laga stöðuna
aðeins. Sigur heimamanna var þó
aldrei í hættu. Lokatölur á Egils-
stöðum voru 95-73, Hetti í vil.
brandon Cataldo var atkvæða-
mestur Snæfellinga með 23 stig og
tólf fráköst. Anders Gabriel And-
ersteg skoraði 13 stig, Ísak Örn
baldursson var með tólf stig, Aron
Ingi Hinriksson níu, benjamín
Ómar Kristjánsson sjö og þeir Pa-
vel Kraljic, Dawid Einar Karlsson
og Eiríkur Már Sævarsson skorðu
þrjú stig hver.
Eysteinn bjarni Ævarsson fór
fyrir liði Hattar með 20 stig, níu
fráköst og hvorki fleiri né færri en
sjö stolna blta. David Ramos skor-
aði 19 stig og tók sjö fráköst, Dino
Stipcic var með 15 stig og tíu frá-
köst, Marcus Jarmaine Van skoraði
tólf stig og tók tíu fráköst og Matej
Karlovic skoraði tólf stig einnig.
Snæfellingar hafa tvö stig eftir
fimm umferðir og sitja í áttunda
sæti deildarinnar. Næsti deildar-
leikur liðsins fer fram föstudag-
inn 8. nóvember, þegar liðið mæt-
ir botnliði Sindra austur á Höfn í
Hornafirði.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Skallagrímskonur máttu sætta sig
við tap gegn KR, 68-83, þegar liðin
mættust í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik á miðvikudagskvöld.
Leikið var í borgarnesi.
Gestirnir höfðu yfirhöndina í
fyrsta leikhluta og leiddu með átta
stigum að honum loknum, 17-25.
Þær juku forskotið í ellefu stig í
upphafi annars fjórðungs en þá tók
borgarnesliðið heldur betur við
sér. Með góðum leik tókst Skalla-
grímskonum hægt en örugglega að
minnka muninn í eitt stig, 35-36,
skömmu fyrir hléið. KR-ingar
skoruðu síðustu stig leikhlutans og
leiddu með fjórum stigum í hálf-
leik, 39-35.
Leikurinn var í járnum í þriðja
leikhluta, þar sem liðin fylgdust að
í einu og öllu. Skallagrímskonur
skoruðu 25 stig gegn 21 stigi gest-
anna í leikhlutanum og við hæfi að
staðan væri jöfn fyrir lokafjórðung-
inn, 60-60. Þar réðu KR konur hins
vegar lögum og lofum. Snemma í
leikhlutanum tókst þeim að slíta sig
frá Skallagrími og þær litu aldrei til
baka eftir það. Góður lokasprettur
skilaði KR 15 stiga sigri, 68-83.
Keira Robinson átti stórleik í liði
Skallagríms, skoraði 38 stig, tók tíu
fráköst og gaf fimm stoðsendingar.
Emilie Hesseldal skoraði 14 stig,
tók 14 fráköst og stal fimm boltum.
Maja Michalska var með átta stig,
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði
fjögur og gaf fimm stoðsendingar
og þær Árnína Lena Rúnarsdótt-
ir og Arna Hrönn Ámundadóttir
skoruðu tvö stig hvor.
Í liði KR var Danielle Rodriguez
atkvæðamest með 24 stig, níu stoð-
sendingar og fimm fráköst. Ástrós
Lena Ægisdóttir skoraði 23 stig og
tók fimm fráköst, Sana Orazovic
skoraði 16 stig og tók átta fráköst
og Hildur björg Kjartansdóttir
skoraði tíu stig og tók sjö fráköst.
Skallagrímur situr eftir leikinn í
fjórða sæti deildarinnar með fjögur
stig, jafn mörg og Keflavík og Snæ-
fell í sætunum fyrir neðan. Næst
leika borgnesingar gegn Keflvík-
ingum á útivelli í kvöld, miðviku-
daginn 30. október. kgk
Töpuðu á loka-
sprettinum
Stórleikur Keiru Robinson nægði Skallagrími ekki gegn sterku liði KR.
Ljósm. Skallagrímur.
Sóttu fyrstu stig vetrarins
Hjalti Ásberg Þorleifsson var stiga-
hæstur í liði Skallagríms þegar liðið
sótti fyrsta sigur vetrarins á Selfoss.
Ljósm. Skallagrímur.
Manuel Rodriguez körfuknattleiksþjálfari. Ljósm. úr safni.
Manuel rekinn
frá Skallagrími
Tap fyrir austan