Skessuhorn - 30.10.2019, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓbER 2019 31
Knattspyrnukonan Eva María
Jónsdóttir hefur endurnýjað samn-
ing sinn við ÍA til næstu tveggja
ára, eða út árið 2021. Eva María er
fædd árið 1999 og hefur verið mik-
ilvægur hluti af ungu og efnilegu
liði ÍA undanfarin ár. Hún á að baki
44 leiki fyrir ÍA í deild og bikar. Í
þeim leikjum hefur hún skorað sex
mörk.
Sigurður Þór Sigursteinsson,
framkvæmdastjóri KFÍA, lýsti yfir
mikilli ánægju með endurnýjun
samningsins. „Eva María hefur
þrátt fyrir ungan aldur verið lykil-
maður í liði ÍA síðustu ár og er ein
af leiðtogum okkar unga liðs. Það
er mikið fagnaðarefni að hún skuli
hafa framlengt samning sinn við fé-
lagið næstu tvö ár,“ segir Sigurður
Þór.
kgk/ Ljósm. KFÍA.
Snæfellskonur unnu góðan sigur
á Grindavík, 63-66, í hörkuleik í
Domino‘s deild kvenna í körfu-
knattleik. Leikið var í Grindavík
á miðvikudagskvöld. Heimalið-
ið hafði undirtökin lengi vel en í
lokafjórðungnum sneru Snæfells-
konur taflinu sér í vil og höfðu að
lokum sigur.
Snæfell hafði undirtökin í fyrsta
leikhluta, komst mest níu stigum
yfir en leiddi með þremur þegar
leikhlutinn var úti. Grindvíkingar
voru sterkari í öðrum fjórðungi,
komust snemma yfir og leiddu
mest með átta stigum í stöðunni
37-29. Á lokamínútum fyrri hálf-
leiks minnkuðu Snæfellskonur
muninn og aðeins þrjú stig skildu
á milli liðanna í hléinu, 39-36.
Grindavíkurliðið var sterkara
framan af þriðja leikhluta, hélt
alltaf nokkurra stiga forystu en
Snæfell var þó aldrei langt undan.
Hólmarar náðu góðri rispu und-
ir lok leikhlutans og voru aðeins
einu stigi á eftir fyrir lokafjórð-
unginn, 53-52. Í fjórða leikhlut-
anum var Snæfellsliðið einfald-
lega sterkara. Eftir að liðin höfðu
skipst á forystunni í upphafi leik-
hlutans áttu Snæfellskonur góðan
leikkafla. Þær komust sjö stigum
yfir eftir miðjan fjórðunginn og
héldu forystunni allt til loka leiks.
Snæfell hafði þrigga stiga sigur,
63-66.
Chandler Smith var atkvæða-
mest í liði Snæfells með 21 stig,
átta stoðsendingar, sex fráköst og
fimm stolna bolta. Veera Pirttinen
skoraði 18 stig, tók sjö fráköst og
gaf sex stoðsendingar og Emese
Vida skoraði tíu stig og tók tólf
fráköst. Tinna Guðrún Alexand-
ersdóttir var með níu stig, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir sex stig
og sjö fráköst og Helga Hjördís
björgvinsdóttir skoraði tvö stig.
Snæfell hefur fjögur stig í sjötta
sæti deildarinnar eftir fjórar um-
ferðir, jafn mörg og Skallagrímur
og Keflavík í sætunum fyrir ofan.
Næst leikur Snæfell í kvöld, mið-
vikudaginn 30. október, þegar lið-
ið mætir Haukum í Stykkishólmi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Strákarnir í 2. flokki Knattspyrnu-
félags ÍA gera það ekki enda-
sleppt. Eftir að hafa gjörsigrað á Ís-
landsmótinu í sumar, annað árið í
röð, var röðin komin að leikjum í
Unglingadeild UEFA. Dróst lið-
ið á móti Levadia Tallin frá Eist-
landi. Fyrri leikur liðanna fór fram
á Akranesi fyrr í haust og endaði
með 4-0 sigri Skagamanna. Síðari
leikur liðanna fór síðan fram síðast-
liðinn miðvikudag í Tallin. Úrslit-
in þar urðu ævintýraleg; 12-1 sig-
ur Skagastráka sem þar með skráðu
sig á spjöld knattspyrnusögunn-
ar hér á landi. Liðið er því komið
áfram í aðra umferð Evrópukeppn-
innar og mun spila við Derby Co-
unty frá Englandi. Leikirnir verða
spilaðir 6. og 27. nóvember heima
og heiman.
Skemmst er frá því að segja að
strákarnir áttu stórleik í fyrri hálf-
leiknum í Tallin og skoruðu sex
mörk gegn engu. Auk þess átti lið-
ið fleiri álitleg marktækifæri. Stað-
an fór talsvert í taugarnar á einum
leikmanni Levadia sem fékk beint
rautt spjald í byrjun síðari hálfleiks
fyrir að sparka í mótherja. Strák-
arnir héldu svo áfram að sækja
af krafti og bættu við öðrum sex
mörkum áður en yfir lauk. Levadia
Tallinn átti fáar sóknir í leiknum en
fékk eitt sárabótarmark. Liðið átti
samt engin svör við frábærum leik
ÍA sem gerði út um leikinn með
12-1 stórsigri.
Eyþór Aron Wöhler gerði fjög-
ur mörk Skagamanna, Gísli Laxdal
Unnarsson og Aron Snær Ingason
tvö mörk hvor og þeir Sigurður
Hrannar Þorsteinsson, Elís Dofri
G Gylfason, Aron Snær Guðjóns-
son og brynjar Snær Pálsson sitt
markið hver. Samtals endaði rimma
þessara liða því 16-1 fyrir ÍA. Þjálf-
arar liðanna eru þeir Sigurður Jóns-
son og Elinbergur Sveinsson.
mm/ Ljósm. KFÍA.
Jón Páll Pálmason hefur gert
þriggja ára samning við Víking
Ólafsvík um þjálfun meistaraflokks
í Inkasso deild karla í knattspyrnu.
Eins og kunnugt er hætti Ejup Pur-
isevic þjálfun liðsins eftir tímabilið í
sumar og hefur nú tekið við þjálfun
Stjörnunnar í Garðabæ. Samhliða
þjálfun meistaraflokks mun Jón
Páll gegna stöðu yfirþjálfara yngri
flokka hjá Umf. Víkingi/Reyni.
Jón Páll er 37 ára gamall
Hafnfirðingur. Hann hefur
undanfarin sex ár þjálfað í Noregi,
fyrst hjá Klepp í norsku úrvalsdeild
kvenna áður en hann tók við
karlaliði Stord. Áður hafði Jón
Páll einnig þjálfað karlalið Hattar í
2. deildinni og Fylki í Pepsi-deild
kvenna. Þá hefur hann einnig mikla
reynslu úr þjálfun yngri flokka.
mm
Enski knattspyrnumaðurinn Micha-
el Newberry hefur gert nýjan eins
árs samning við Víking Ólafsvík.
Michael er 22 ára gamall og leik-
ur stöðu varnarmanns. Hann gekk
til liðs við Ólafsvíkinga vorið 2018
og hefur undanfarin tvö ár leikið 44
leiki með liði Víkings Ó. í deild og
bikar. „Á þeim tíma hefur Micha-
el sannað sig sem einn besti varn-
armaður deildarinnar,“ segir í til-
kynningu á Facebook-síðu Víkings
Ó.
kgk
Ævintýralega góður árangur
strákanna í öðrum flokki ÍA
Frá upphafi leiksins ytra.
Liðsmynd af heimavelli strákanna í 2. flokki ÍA.
Öflugri á lokamínútunum
Michael Newberry með pennann á
lofti. Ljósm. Víkingur Ó.
Newberry
áfram með
Ólafsvíkingum
Eva María áfram
með ÍA
Jón Páll tekur við þjálfun
Víkings Ólafsvík