Læknablaðið - feb. 2019, Blaðsíða 20
72 LÆKNAblaðið 2019/105
R A N N S Ó K N
Vinnutengd stoðkerfisvandamál fullorðinna hafa fengið mikla
athygli rannsakenda og rannsóknirnar staðfesta að líkamleg
áreynsla af ýmsum toga eykur líkur á slíkum vandamálum. Tengsl
milli margvíslegs sálræns álags í vinnu og stoðkerfisvandamála
hafa einnig verið staðfest þó orsakasamhengið liggi ekki að öllu
leyti ljóst fyrir.16 Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum
líkamlegrar áreynslu í vinnu á stoðkerfisvandamál ungs fólks
og benda þær í sömu átt og rannsóknir á fullorðnum. Rannsókn
meðal norskra iðn- og starfsnámsnema sýnir til dæmis að vélrænt
vinnuálag eykur líkur á verk í hálsi og herðum á fyrstu árum
þeirra í vinnu8 og rannsókn meðal finnskra 18 ára ungmenna
sem flest voru í skóla sýnir að slíkt álag eykur líkur á bakverkj-
um.17 Báðar rannsóknir sýna hærri líkur meðal stúlkna en pilta.8,17
Kanadísk rannsókn, gerð um síðustu aldamót, sýnir síðan að það
eitt og sér að vinna með skóla er áhættuþáttur fyrir verki í hálsi og
herðum,18 fyrir bakverki,19 og fyrir stoðkerfisverki almennt. Sam-
kvæmt rannsókninni er vinna með skóla stærri áhættuþáttur stoð-
kerfiseinkenna en sumarvinna.20 Íslensk doktorsrannsókn sem
gerð var fyrir hrun, 2007-2008, hnígur í sömu átt og sýnir að 13-17
ára ungmenni sem vinna mikið með skóla eru líklegri til að finna
fyrir stoðkerfisverkjum en þau sem vinna hóflega eða ekkert með
skóla. Á það við um bakverki hjá öllum hópnum en stoðkerfisverki
almennt hjá þeim yngri (13-15 ára) og hjá stúlkum.10
Markmið rannsóknarinnar sem hér er kynnt er að nota gögn
úr spurningakönnun um vinnu 13-19 ára íslenska ungmenna sem
lögð var fyrir í byrjun árs 2018 til að skoða tengsl milli fjögurra
tegunda stoðkerfisvandamála (verkja í vöðvum og liðum, í hálsi
og herðum og í baki auk vöðvabólgu) við umfang vinnu með skóla
eftir þremur lýðfræðiþáttum, kyni, aldri og menntunarstöðu for-
eldra. Miklar breytingar hafa orðið á atvinnuframboði og atvinnu-
háttum hér á landi á síðustu 10 árum, fyrst með efnahagshruninu
2008 og síðan með uppgangi ferðaþjónustunnar á síðustu árum.
Umfang vinnu og störf barna og unglinga sveiflast mjög í takt við
atvinnuframboð og breytingar á atvinnuháttum.10,21 Því er þörf á
nýjum upplýsingum um tengsl stoðkerfisverkja við umfang vinnu
aldurshópsins auk þess sem tengslin hafa ekki áður verið skoðuð
eftir menntunarstöðu foreldra. Sömu aðferðum er beitt og í ís-
lensku rannsókninni sem gerð var fyrir hrun að því undanskildu
að fleiri árgangar eru með nú en var þá.10 Niðurstöður rannsókn-
anna tveggja eru því samanburðarhæfar.22
Efniviður og aðferð
Rannsóknin er hluti af stærri rannsókn um vinnutengda heilsu og
öryggi ungmenna á vinnustað. Rannsóknin beindist að 13-19 ára
ungmennum. Þýði rannsóknarinnar er öll 13-19 ára ungmenni á
Íslandi en úr þeim hópi var valið tilviljunarkennt úrtak 2800 ung-
menna úr Þjóðskrá. Lægri aldursmörkin eru valin vegna þess að
löggjafinn leyfir ungmennum að vinna létt störf frá þeim aldri.23
Hærri aldursmörkin miða við hefðbundin lok framhaldsskóla. Í
rannsókninni er vinna skilgreind sem öll vinna sem laun eru þeg-
in fyrir óháð því hvar hún eru stunduð. Launuð vinna í heimahús-
um fellur því undir rannsóknina, þar með talin barnapössun.
Rannsóknin var framkvæmd í febrúar til apríl 2018 og sá Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmdina. Hringt var í
þátttendur sem náð höfðu 18 ára aldri en forráðamenn þeirra sem
voru undir þeim aldri og leitað eftir samþykki fyrir þátttöku. Sam-
þykki frá bæði forráðamanni og ungmenninu sjálfu var skilyrði
fyrir þátttöku ungmenna undir 18 ára aldri. Þeim sem samþykktu
þátttöku var sendur rafrænn spurningalisti með upplýsingabréfi í
gegnum tölvupóst eða farsímanúmer. Samtals svöruðu 1339 ung-
menni könnuninni og var svarhlutfallið því 48,6%. Þátttaka var
ítrekuð með símhringingum og rafrænni áminningu. Kynjahlut-
fall þeirra sem svöruðu var 54,1% stúlkur og 45,9% drengir.
Mat á einkennum frá stoðkerfi byggir á almennum norrænum
matskvarða um sálfélagslega þætti í vinnu (QPS). Kvarðinn var
hannaður fyrir fullorðna starfsmenn en hefur áður verið notað-
ur við mat á stoðkerfiseinkennum umgmenna.10,24 Spurt er um
hversu oft á síðustu 12 mánuðum svarendur hafa fundið fyrir
sálfélagslegum einkennum á tvíeindum kvarða: oft eða stund-
um/sjaldan eða aldrei. Hér eru fjögur stoðkerfiseinkenni skoðuð;
verkir í liðum og vöðvum, verkir í hálsi og herðum, bakverkir
og vöðvabólga. Umfang vinnu með skóla er mælt með því skipta
þeim svarendum sem voru í skóla (1250, eða 94,6%) niður í þrjá
hópa þeirra sem vinna ekki með skóla (53,6%), vinna hóflega með
skóla (28,9%) og vinna mikið með skóla (17,5%). Fyrri rannsóknir
á vinnu ungmenna hafa sýnt að áhrif umfangs vinnu aldurshóps-
ins á líðan helgast ekki eingöngu af lengd vinnuvikunnar heldur
einnig af sveigjanleika vinnutímans.10,25 Að vinna mikið með skóla
var því skilgreint sem að vinna meira en 12 klukkustundir á viku
og hafa fastan vinnutíma en að vinna hóflega með skóla að vinna
12 klukkustundir á viku eða minna með skóla og/eða að hafa ekki
fastan vinnutíma. Svarendum var skipt niður í þrjá aldurshópa, 13-
15 ára (47,7%), 16-17 ára (30,2%) og 18-19 ára (22,1%). Yngsti aldurs-
hópurinn er enn í grunnskóla en þeir tveir eldri komnir í fram-
haldskóla. Yngri aldursflokkarnir tveir falla undir lög um vinnu
barna og unglinga sem tryggir þeim sérstaka vinnuvernd umfram
fullorðna en elsti aldurshópurinn stendur jafnfætis fullorðnum
hvað vinnuverndarréttindi varðar.23 Svarendum var einnig skipt
í þrjá hópa eftir menntunarstöðu foreldra, börn foreldra sem bæði
hafa grunnskólapróf (6,7%), börn foreldra sem bæði hafa háskóla-
Tafla I. Hlutfall 13-19 ára sem hafa stundum eða oft fundið fyrir stoðkerfiseinkennum á síðustu 12 mánuðum eftir umfangi vinnu með skóla, %.
Einkenni Ekki í vinnu Í hóflegri vinnu Í mikilli vinnu Samtals Kí-kvaðrat próf N
Verkir í liðum og/eða vöðvum 40,7 48,8 46,4 44,0 p = 0,047* 1113
Bakverkur 31,7 42,7 53,6 38,7 p = 0,000** 1116
Verkur í hálsi og herðum 28,8 38,7 44,4 34,4 p = 0,000** 1116
Vöðvabólga 30,8 36,3 44,9 34,9 p = 0,001** 1113*
p≤0,05, **p≤0,01.