Læknablaðið - feb. 2019, Síða 29
LÆKNAblaðið 2019/105 81
R A N N S Ó K N
28,9%. Sjúkrahúsdánartíðni STEMI-sjúklinga innan 30 daga frá
innlögn var að meðaltali 10,3%. Nokkur munur var á dánartíðni
milli ára, hæst 15% árið 2003, 13,4% árið 2012 og 13,1% árið 2005,
en á þessum árum voru hlutfallslega flestir sjúklingar með grein-
inguna hjartastopp. Flest hin árin var sjúkrahúsdánartíðnin um
8%. Sjúkrahúsdánartíðni NSTEMI-sjúklinga innan 30 daga frá
innlögn var að meðaltali 6,3% en nokkuð mismunandi eftir árum,
eða frá rúmlega 2% árið 2012 og upp í rúmlega 9% árið 2006.
Á árunum 2008-2012 var skráning á heimilisfangi/póstnúmeri
ítarleg svo ekki vantaði upplýsingar um heimilisfang sjúklinga
með STEMI nema í 34 tilvikum (4-11 á ári). Á þessum 5 árum
komu 723 með STEMI af höfuðborgarsvæðinu, eða að meðaltali 71/
100.000 íbúa á ári, og af landsbyggðinni 341 STEMI, eða 58/100.000
á ári. Árið 2012 voru STEMI sjúklingar af landsbyggðinni aðeins
2/100.000 færri en STEMI af höfuðborgarsvæðinu en mestur mun-
ur var árið 2009, eða 22/100.000 færri af landsbyggðinni. Að með-
altali voru 13/100.000 færri sjúklingar á ári með STEMI af lands-
byggð en frá höfuðborgarsvæðinu þessi 5 ár. Með NSTEMI voru að
meðaltali 91/100.000 á ári af höfuðborgarsvæðinu og 66 af lands-
byggðinni. Með hvikula hjartaöng voru að meðaltali 95/100.000 á
ári af Reykjavíkursvæðinu og 70/100.000 á ári af landsbyggðinni.
Munurinn eftir búsetu var um 25 sjúklingar/100.000 á ári að með-
altali, bæði fyrir NSTEMI og hvikula hjartaöng og meiri breytileiki
milli ára en hjá STEMI-sjúklingunum.
Tafla I sýnir breytingar í aldursstöðluðu nýgengi bráðra
kransæðaheilkenna meðal karla og kvenna á árunum 2003-2012
samkvæmt Poisson-aðhvarfsgreiningu. Þegar við átti var notuð
neikvæð tvíliða aðhvarfsgreining. Rúmlega 5% fækkun STEMI-
tilfella á ári varð hjá bæði körlum og konum (p<0,05). Ekki voru
marktækar breytingar hvað þetta varðar hjá sjúklingum með
NSTEMI og hvikula hjartaöng. Vegna þess hve fáir sjúklingar
undir 30 ára aldri voru með STEMI, voru þeir ekki teknir með í
þessari úrvinnslu. Aldurssértækt nýgengi (age-specific incidence)
var kannað hjá mismunandi aldurshópum sjúklinga með STEMI.
Það er tilhneiging til fækkunar á STEMI í flestum aldurshóp-
um, en marktæk breyting um slíkt er þó fyrst og fremst hjá elstu
aldurshópunum, konum 90-99 ára og körlum 70-79 ára og 90-99
ára. Fyrstu þrjú ár rannsóknarinnar koma 168 karlar í hópnum 70-
79 ára með STEMI en síðustu þrjú ár hennar eru þeir aðeins 78
talsins. Fækkun í þessum aldurshópi síðustu þrjú ár tímabilsins
vegur hvað þyngst í því að meðalaldur STEMI-sjúklinga fer ekki
hækkandi á tímabilinu.
Umræða
Fækkun STEMI en aukning á NSTEMI
Meginniðurstaða þessarar rannsóknar er sú að á árunum 2003-
2012 fækkaði alvarlegustu tilfellum kransæðastíflu, STEMI-til-
fellum, um tæp 36%. Leiðrétt fyrir aldri var um marktæka árlega
fækkun STEMI að ræða hjá báðum kynjum, um 5% (p<0,05) eins
og sést í töflu I. Marktæk fækkun tilfella var aðallega hjá eldri
aldurshópunum þótt tilhneigingar gætti einnig hjá þeim yngri.
NSTEMI-tilfellum fjölgaði um rúm 72% á tímabilinu og við lok
þess var NSTEMI orðið algengasta kransæðaheilkennið. Þannig
var hjartadrep með ST-hækkun, STEMI, algengara en hjartadrep
án ST-hækkana, NSTEMI, í upphafi tímabilsins, en þetta hafði
snúist við í lok þess. Fjölgun NSTEMI var þó ekki tölfræðilega
marktæk.
Á því 10 ára tímabili sem rannsóknin tekur til verða þannig
mjög athyglisverðar breytingar á nýgengi hinna þriggja bráðu
kransæðaheilkenna. Að teknu tilliti til fólksfjölgunar er tilfella-
fjöldinn þó nánast óbreyttur við upphaf og enda tímabilsins.
Fjöldi sjúklinga með hvikula hjartaöng er hinn sami árið 2003 og
2012 eftir að hafa verið rúmlega tvöfalt meiri um miðbik tímabils-
ins. Í upphafi tímabils eru NSTEMI-tilfellin 26,1% af heildarfjölda
bráðra kransæðatilfella en við lok þess 45,2%. Á sama tíma voru
STEMI-tilfellin 47,1% af heildarfjöldanum í upphafi tímabils en
30,6% við lok þess.
Á árinu 2005 fjölgaði TnT mælingum fjórfalt á Landspítala og
sama ár fjölgaði NSTEMI-tilfellum um helming en STEMI- tilfell-
um fækkaði. Líklegt er að einhver hluti sjúklinga sem áður voru
greindir með hvikula hjartaöng á grunni eðlilegs CKMB hafi flust
í NSTEMI-hópinn með tilkomu TnT-mælinga, en það hefur verið
Mynd 3. Meðalaldur sjúklinga með bráð kransæðaheilkenni (STEMI, NSTEMI og
hvikula hjartaöng).
Tafla I. Breytingar á aldursstöðluðu nýgengi STEMI, NSTEMI og hvikullar hjarta-
angar (UA) meðal karla og kvenna 2003-2012.
Karlar
Ný
tilfelli
n
Ný-
gengi-
hlutfall
P Árleg
hlutfalls-
breyting
Árleg
prósentubreyting
(95% öryggisbil)
STEMI 1661 0,94 * -0,055 -5,55 (-3,6 to -7,45)
NSTEMI 1700 1,00 0,004 0,42 (-3,34 to 4,41)
UA 1845 0,99 -0,004 -0,439 (-5,81 to 5,2)
*P < 0,05
Women
Ný
tilfelli
n
Ný-
gengi-
hlutfall
P Árleg
hlutfalls-
breyting
Árleg
prósentubreyting
(95% öryggisbil)
STEMI 672 0,94 * -0,053 -5,34 (-8,30 to -2,27)
NSTEMI 890 ,00 0,006 0,67 (-3,07 to 4,57)
UA 734 0,98 -0,010 -1,07 (-6,31 to 4,45)
*P < 0,05