Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1975, Síða 10

Hugur og hönd - 01.06.1975, Síða 10
Því miður veit ég ekki hve gömul né hve útbreidd þyrilgerð var á Islandi, en forn hygg ég að hún hljóti að vera, og vitanlega sprottin af þeirri hvöt mannsins að vinna úr heimafengnu efni hentug áhöld til hjálpar við bústörfin. Klápar, sem notaðir voru við mjaltir, mjólkurgeymslu, skyrgerð, undir saltket, súrmat og yfirleitt flesta geymslu voru allir úr tré, s. s. mjólkurfötur, bakkar, trog, kollur, strokkar, ámur, tunnur o. fl. Þurfti að þvo þetta og hirða vel. Gat því verið gott, meðan burstar í búð voru senni- lega ekki til, að gera sinn bursta sjálfur, úr sterku end- ingargóðu efni. Þessvegna var notað hrosshár, helst tagl- hár í þyrilinn. Hrosshárið var spunnið á halasnældu fremur gróft, eða þá fínt og tvinnað svo. Snúður þurfti að vera góður á bandinu. Byrjað var á að gera uppistöðu úr snöggu sterku bandi eða hörþræði nákvæmlega eins og þegar slyngja átti gömlu rósaleppana (sem góð mynd og frásögn er af í 1. tbl. af „Hugur og Hönd“ 1966), nema uppistaðan að þyrilvefn- um var einlit og helst sem líkust hrosshársbandinu. Uppistaðan var rakin milli tveggja stuðla eða stólbaka og þurfti að vera 2 metrar á lengd. „Höföldin“ voru sett í og þess gætt að skilin rugluðust ekki. Vefja þurfti uppi- stöðuna upp á kefli eða legg öðru megin frá og festa vel, bregða svo yfir rúmstuðul eða eitthvert öruggt hald, ég hef aldrei ofið við fót mér. Síðan er hrosshársbandinu ofið þannig inn í skilin beint af halasnældunni, að hert er á snúð bandsins á fremur stuttu bili, og síðan látinn tvinn- ast í hendi sér rúmlega 5 sm. stúfur af bandinu, honum stungið gegnum skilið og það dregið að. Þá er næst band- stúfur tvinnaður eins og stungið í næsta skil frá sömu hlið og skilið dregið að með fingri. Þetta er endurtekið áfram, þannig að vefurinn verður eins og kögur, allir tvinnuðu endarnir standa út úr uppi- stöðunni öðru megin, en annar jaðarinn er svo sléttur sem unnt er með svo grófu ívafi. Vefa verður þannig í alla uppistöðuna. Verður þetta all óþjált kögur og snýr rösklega upp á sig þegar vefurinn er búinn. Nú er tekið rúmlega 40 cm. langt prik, eins og sópskaft eða hrífuskaft, það tálgað laglega ávallt fyrir endana, og boruð göt með grönnum nafri gegnum prikið u. þ. b. einn cm. frá enda og 2 önnur með tæplega 3ja cm. bili í beina línu upp skaftið, en 2 önnur þvert á skaftið milli þeirra. 1 gat er líka sett á efri enda skaftsins fyrir hanka til að hengja þyrilinn upp. Þá er hrosshárskögrið vafið um gataenda skaftsins og saumað og fest vel með sterkum þræði. Byrjað á að strengja enda vefjarjaðarins yfir neðsta gatið og festa vel í gegn, síðan er vafið áfram og saurnað saman í kantin- um — snúningurinn vafinn af svo skilið liggi rétt — þessu þokað upp skaftið og er fest vel gegnum öll götin á prik- inu. Síðari endi vefjarins á að koma yfir efsta gatið í þessu þétta gata munstri skaftsins. Er þá kominn snotur þyrill og verður það vitanlega æf- ingin, sem lagar þyrilhausinn best. Síðan er þyrillinn þveginn úr sápuvatni og síðast skol- aður i sjóðandi vatni, og ætíð látinn hanga á hlýjum stað, svo hann þorni sem fyrst eftir notkun. Þessir þyrlar voru mjög sterkir og entust svo árum skipti til þvotta á mjólkurílátum. Ég lærði þyrilgerð ung af roskinni konu á næsta bæ við mig, Rósu Tómasdóttur á Litluvöllum í Bárðardal. Vissi ég ekki um aðra, sem kunni þessa handavinnu þá, en hef seinna heyrt að fleiri konur þar um slóðir hafi kunnað þetta á þeim árum. Ingibjörg Tryggvadóttir. 10 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.