Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1975, Síða 28

Hugur og hönd - 01.06.1975, Síða 28
{***»»« Handbragð við sigurlykkju Þórður Tómasson: SigurLykkja og SLgurknútur Ekki er fjarska langt til þess að rekja, að margir hér- lendir menn kunnu góð skil á því, hvað bjó að baki orð- unum sigurlykkja og sigurhnútur, en nú mun sú fræði að mestu í fyrnsku fallin. Hvergi minnist ég þess að hafa séð til fullrar hlýtar lýsingu á þessum bandhnútum eða hversu með skyldi fara. Uppruna þeirra er vafalaust að leita aftur í grárri forneskju. Hér verður reynt að draga saman flest- ar tiltækar heimildir um þess gömlu töfrabrögð alþýðu- lækninga. A verksviði kvenna var að efna til sigurlykkju og sig- urhnúts. Heimildir gefa til kynna, að notkun þeirra til lækninga hafi verið þekkt um allt land. Vænta mætti, að meðferð þeirra hefði fallið undir þau töfrabrögð, sem ráð- ist var gegn í galdraofsókn 17. aldar. Um það skortir heimildii', þótt Olafur Davíðsson heimfæri raunar sigur- lykkju undir signingabann í konungsbréfi gegn galdri eða kukli frá tíð Kristjáns IV. I Ferðabók Eggert Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, sem út kom í Sórey 1772, getur um sigurlykkju sem læknisráð við þeirri búfjárveiki, sem þar er nefnd „at hlaupa under“ og alþekkt var undir nafninu undirflog: „Þeir sem álíta þessa veiki yfirnáttúrlega, nota jafn vanhugsuð ráð gegn henni, sem sé, bera sérkennilegan hnút (eins og krampa- hnúta), nefndan sigurlykkju, í kross yfir malirnar".1) Hér er rétt að nema staðar við tilvitnaða krampahnúta. í hinni miklu dönsku orðabók, sem kennd er við Dahlerup, segir um krampahnúta; „Snúra, band með hnútum, sem bundið er um lim, sem haldinn er krampa eða gigt og álitið geta læknað þjáninguna.“ Vísað er til danska fræðimannsins ísrael Levin (1810—1883), sem taldi þetta „mjög algengt út um byggðirnar og hér í Kaupmannahöfn.“ Þetta læknis- ráð var einnig vel þekkt í Svíþjóð. Varla mun svo, að Ferðabókin eigi við það, að sigur- lykkja sé sama og krampahnútur, heldur mun vísað til þessa til að tengja hana alþekktri danskri hnútalækningu. Hér væri þá ekki alveg úr vegi að minna á lukkuhnútinn, sem stundum kom óvart á saumþráð eða band hjá kon- um, og var því aðeins lukkuhnútur, að hann raknaði sjálf- krafa, er í var tekið. Ólafur Davíðsson greinir frá sigurhnút og sigurlykkju í riti sínu íslenskar skemmtanir (Khöfn, 1888-92, bls. 351) og vitnar þar í Jón Ólafss. Grunnvíking úr Orðabók hans: „J. Ól. segir líka, að unglingar skemmti sér með því að leysa og binda sigurhnúta og sigurlykkjur, sem hann held- 1) Útg. 1772, I. bls. 211-12 — Þýðing mín Þ. T. 28 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.