Hugur og hönd - 01.06.1988, Síða 5

Hugur og hönd - 01.06.1988, Síða 5
Heimilisiðnaðarmót á Hvanneyri Norrænt heimilisiðnaðarmót var haldið á Hvanneyri í Borgarfirði vikuna 10.—16. júlí í sumar. Þetta mót var það fimmta í röðinni. Það fyrsta var haldið í Svíþjóð 1984, síðan í Danmörku 1985, í Noregi 1986, Finnlandi 1987 og í sumar var röð- in komin að Islandi. Hugmyndin að þessum heimilisiðnað- armótum - fjölskyldumótum — kom fyrst fram í nefnd sem starfaði fyrir þing- ið í Danmörku 1983. Hún átti að leggja fram tillögur um aukið samstarf norrænu heimilisiðnaðarfélaganna milli þinga, en þau eru haldin 3. hvert ár. Heimilisiðn- aðarmótin hafa öll verið vel sótt og þótt takast vel. Á Hvanneyri var fólk sem hafði tekið þátt í öllum fyrri mótunum og sýnir það best vinsældir þeirra. Þátttak- endur eru á öllum aldri (hér voru m.a. þrír ættliðir frá Svíþjóð) sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á heimilis- iðnaði. Rúmlega 50 manns tók þátt í mótinu á Hvanneyri. Eins og venja er var boðið upp á námskeið í nokkrum greinum og var reynt að velja greinar sem á einhvern hátt gátu talist sérstæðar fyrir ísland. Hægt var að velja um kennslu í útskurði, íslenskum glitvefnaði, íslenskum út- saumsgerðum, fótvefnaði, spjaldvefn- aði, hrosshársspuna, rósaleppaprjóni og tóvinnu. Til að byrja með voru hóparnir nokkuð misfjölmennir en það jafnaðist dálítið þegar líða tók á vikuna. Margir vildu gjarnan fá kennslu í sem flestum greinum og fluttu sig þá milli hópa. Síðdegis á föstudag var sameiginleg sýning. Þar var margt athyglisvert að sjá og afköstin ótrúleg á svo stuttum tíma. Á daginn var unnið af miklu kappi og á kvöldin skemmtu menn sér vel og af mikilli elju. Þar var ekkert kynslóðabil, börnin voru jafn virk og fullorðna fólkið. En sá háttur var hafður á að hvert land hafði umsjón með einni kvöldskemmt- un. Gefinn var kostur á dagsferð um Snæ- fellsnes. Þennan dag var bjart veður enda almenn ánægja með ferðina. Næsta heimilisiðnaðarmót verður haldið á Sáterglántan í Svíþjóð sumarið 1989. Þátttaka frá Islandi hefur verið mjög lítil en vonandi á það eftir að breyt- ast. Á hverju móti er fjöldi námskeiða sem hægt er að velja um. Kostnaði er reynt að stilla í hóf eins og kostur er. Jakobína Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Elínbjört Jónsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir. 5 HUGUR OG HÖND L

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.