Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 13
prjón í hvern loftlykkjuboga.
Hér skal bent á, að í hörgarni (líni) er
sterkja sem gerir dúkinn hæfilega stífan
þegar hann þornar án þess hann sé und-
inn upp úr öðru en hreinu vatni. Mjög
heitt vatn ber þó að varast, þar sem það
eyðileggur sterkjuna í líninu.
Um uppruna þessa dúks er það að
segja, að uppskriftin að 72. umferð er að
mestu leyti teiknuð eftir uppskrift sem
birtist í bókinni Prjónabókin, 2. hefti,
sem gefin var út af Handavinnuútgáfunni
í Reykjavík 1948. Þar eru allmargar upp-
skriftir, aðallega að kvenfatnaði, sem
virðast allar vera þýddar úr erlendum
blöðum og bókum. Uppskrift að þessum
dúk, nákvæmlega eins og hún birtist í
Prjónabókinni, hef ég rekist á í enskri
handavinnubók, Weldons Encyclopedia
of Needlework, útgefinni í London lík-
lega á 3. eða 4. áratug aldarinnar, ef
draga má ályktanir af myndum, því út-
gáfuár vantar. Verður að teljast mjög lík-
legt að uppskriftin sé þýdd úr þessari
bók, einnig vegna þess að myndin af
dúknum er hin sama í báðum bókunum.
Sú uppskrift, sem hér birtist, er frá-
brugðin áðurnefndum uppskriftum að
því leyti að hún er teiknuð með prjón-
táknum á rúðupappír, auk þess sem sam-
in hefur verið eins konar blúnda sem
prjónuð er frá og með 72. umferð í stað
þess að fella af eftir 71. umferð og prjóna
lausa blúndu sem saumuð er utan með
dúknum.
Fyrir þá sem fremur kjósa að prjóna
dúkinn í upprunalegri mynd, er hér einn-
ig birt teikning af sérprjónuðu blúnd-
unni. Fitjaðar eru upp 9 lykkjur og
prjónaðar þessar 6 umferðir u.þ.b. 85
sinnum. í byrjun 6. umferðar eru felldar
af 5 lykkjur. Upphaf og endi blúndunnar
þarf að lykkja saman þannig að sam-
skeytin sjáist sem minnst.
í ensku útgáfunni er munstrið á dúkn-
um nefnt dalíumunstur og er það tekið
upp hér.
Sigríður Halldórsdóttir
Ljósmynd: Rut Hallgrímsdóttir.
Samkeppni
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um handunna muni. Markmiðið er tvíþætt: 1) að fá
fram söluhæfa muni; 2) að leita eftir vönduðum munum til sýningar á norrænu heimilisiðnaðar-
þingi 1989.
Munirnir mega vera unnir með hvaða tækni sem er, úr náttúrulegum trefjaefnum, tré, málmum,
gleri, skinni eða öðrum náttúruefnum.
Við mat á hlutunum verður tekið mið af heildarsamræmi lita og forms, frumleika, efnismeðferð,
vinnubrögðum og framleiðslu- og sölumöguleikum.
Þrenn verðlaun verða veitt:
1. verðlaun kr. 50.000
2. verðlaun kr. 30.000
3. verðlaun kr. 20.000
Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir aðra góða gripi. Munum þarf að skila fyrir 1. mars,
merktum með dulnefni og réttu nafni í lokuðu umslagi, til Ingibjargar Sigurðardóttur í versluninni
íslenskur heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, þriðjudaga
kl. 13.30- 18, sími 15500.
S
Heimilisiðnaðarfélag Islands
HUGUR OG HÖND
13