Hugur og hönd - 01.06.1988, Blaðsíða 18
5.
sammála um að ,,söluvöruframleiðslan“
taki fullmikinn tíma, og þegar þau þurfi
að dreifa kröftum sínum í svo margvísleg
verkefni sem raun ber vitni hljóti það að
tefja fyrir framförum. Þó fmna þau vel
sjálf að þeim miðar áfram, handverkið
verður betra, en þau segjast aldrei munu
komast á tindinn hvað handverkið snert-
ir, til þess vanti hefð og fyrirrennara í
faginu, sem geti miðlað þeim. A litlu
stúdíó-verkstæði eins og þeirra muni
aldrei nást sami handverksárangur og
þar sem hver maður endurtekur sama
handverkið dögum og vikum, jafnvel ár-
um saman, eins og víða er á stórum verk-
stæðum erlendis. Þar er oft röð einstakl-
inga sem vinnur keðjuverkandi að gerð
hvers hlutar og hver tekur við af öðrum.
„Líka spurning hvort það er svo eftir-
sóknarvert að keppa um of við verk-
smiðju-sérhæfingu. Litlu verkstæðin eru
ekki hrædd við að láta handbragðið
sjást,“ segir Sigrún.
„Glerið er svo áhugavert efni,“ heldur
Sigrún áfram af sannfæringu. „Það er
hægt að vinna úr því með mismunandi
aðferðum og við notfærum okkur það.
Þess vegna verður e.t.v. ruglingslegt yfir-
bragð hjá okkur, þegar munirnir eru út-
færðir á mismunandi hátt„En okkar
trú er sú,“ segir Sören, „að það að hafa
ákveðinn stíl geti líka þýtt stöðnun. Hug-
myndin sjálf ræður útfærslunni en ekki
öfugt, þótt tæknilegir möguleikar séu oft
hugmyndagjafar, enda er mikilvægt að
halda forvitninni um möguleika efnisins
vakandi.“
Mýkt
Sören og Sigrún leggja áherslu á að ekki
megi slá slöku við. Þau geri sífellt meiri
kröfur til sjálfs sín um að gera betur, og
í kjölfar þess verður þörf á að eignast
betri verkfæri til þess að hafa fleiri
möguleika í útfærslu og skreytingum og
auka framleiðni. Með þessu skapist
ákveðin þensla en jafnframt þurfi að
gæta þess að stilla rekstrarkostnaði í hóf.
Þetta einkennilega efni gler er blanda
af sandi, sóda og kalki í ákveðnum hlut-
föllum. Og möguleikarnir til úrvinnslu
eru óteljandi. Glermunirnir eru einkar
aðlaðandi og bjóða upp á snertingu.
Okkur langar ósjálfrátt til þess að strjúka
eftir forminu. Einkennilegt, að hart gler-
ið virðist svo mjúkt viðkomu. Ef til vill
er það vegna mýktarinnar í forminu eða
listrænnar tilfinningar sem er á bak við
sköpun hlutanna. Þau Sigrún og Sören
segja okkur að hver gripur þeirra sé
teiknaður og reyndur margsinnis áður en
hann er mótaður endanlega. En þegar
slys verða í sköpuninni hjá þeim, þá næst
oft ýmislegt jákvætt úr því. Ef hugurinn
er opinn þá verða mistökin stundum til
þess að þeim dettur eitthvað nýtt í hug.
„Og það verða mjög oft slys,“ segir Sör-
en hlæjandi.
6.
18
HUGUR OG HÖND