Hugur og hönd - 01.06.1988, Side 20

Hugur og hönd - 01.06.1988, Side 20
hausts 1987 héldu þau þar einkasýningu sem spannaði verk þeirra frá stofnun „Glers í Bergvík“, 5 ára afmælissýn- ingu. Og þeim var einnig á þessu ári boð- in þátttaka í 18 landa sýningu á vegum banka í Belgíu. Sýningin mun standa frá apríl-júní 1989 og kynna evrópska ný- sköpun glerskúlptúra. Slík boð eru þeim Bergvíkingum mikil hvatning. Loks má bæta því við að þau hjón langar til innan tíðar að halda myndarlega einkasýningu hér heima og sýna þá veggverk og skúlp- túra. Grunnurinn Grunnurinn að íslenskum gleriðnaði er lagður. Við þurfum ekki lengur að sækja allar glervörur okkar til útlanda. Gler- listafólkið okkar í Bergvík sér til þess og hjá því eru aldrei auðar stundir. Það setur markið hátt og ætlar sér mikið. Mark- miðið er að gera sér „mjög gott gler- verkstæði, þar sem fáar tæknilegar hindranir eru fyrir hendieins og þau orða það sjálf. Sérpantanir á verkum, framleiðsla á eigin nytjamunum, undirbúningur sýn- ingaþátttöku, hönnun og tilraunir, allt hefur þetta sinn ákveðna tíma. Sigrún og Sören hafa vakið drjúga at- hygli með verkum sínum. Ekki er nein- um blöðum um það að fletta að hér er hæfileikaríkt fólk á ferð. „Gler í Bergvík“ er ungt fyrirtæki í örri þróun. Arangurinn af starfi þess leiðir í ljós að þar er unnið af mikilli næmi, nákvæmni og atorku. Við vonum, að þetta sé aðeins upphafið. Rúna Gísladóttir 10. 10. Vasi gerður fyrir Hallgrímskirkju í Reykjavík, 1987. 11. Gcerdagur, glermynd unnin fyrir verslunina Epal í Reykjavík, 1988. Verk- ið er eftir Sören og er sniðmynd af sólar- lagi með litum úr náttúrunni og himin- bláminn efstur. Ljósmyndarar: Guðmundur Ingólfs- son, Sigrún O. Einarsdóttir, Sören Larsen, Sigurður Bragason og Rut Hallgrímsdóttir. 20 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.