Hugur og hönd - 01.06.1988, Síða 27

Hugur og hönd - 01.06.1988, Síða 27
Skautbúningur Sigurðar málara Ef gera ætti breytingartillögum Sigurðar tæmandi skil þyrfti helst að lýsa fyrst ís- lenska faldbúningnum eins og hann tíðk- aðist á 18. og öndverðri 19. öld. Hér er þess enginn kostur, en reynt verður í stuttu máli að greina frá helstu einkenn- um skautbúnings Sigurðar og í hverju veigamestu breytingarnar frá gamla fald- búningnum eru fólgnar. Sigurður breytti höfuðbúnaðinum, faldinum, einna mest. Hann lét sauma tilsniðna úttroðna faldhúfu með lagi sem að nokkru líkti eftir vafða krókfaldinum úr samanbrotnum og nældum tröfum sem tíðkast hafði á 18. öld; var faldur Sigurðar þó mun lægri. Yfir faldinum hafði hann blæju úr hvítu netefni, og átti hún að vera ímynd höfuðdúkanna sem konur báru til forna. Um faldinn neðan- verðan var bundið koffur, höfuðband með ásaumuðum skrautdoppum eða úr samanhlekkjuðum stokkum eingöngu, en koffur (koppur) höfðu konur borið fram á 18. öld. Faldhnútur úr silkiborða var hafður undir blæjunni að aftan til þess að hylja samskeytin á koffrinu; kemur fram í sendibréfi frá 1860 að hann muni einnig vera frá Sigurði runninn. Treyjan, skauttreyjan sem kölluð er, var nú ævinlega svört eins og reyndar oft- ast áður, og eins samfellan, en svo nefnist pilsið við búninginn. Treyjan náði í mitt- isstað, og undir henni var ekki upphlutur, en áður hafði treyjan verið látin „skolla upp á herðum,“ eins og Sigurður orðar það í greininni, svo að skein í upphlutinn fyrir neðan. Engin legging var lengur upp eftir miðju baki, og treyjunni fylgdi ekki heldur kragi eins og verið hafði, heldur náði gull- eða silfursaumuð bald- ýringin á flauelslögðum börmunum aft- ur um hálsinn. Samsvarandi baldýring var á flauelsbryddingum treyjuermanna, en hvít pífa eða blúnda var þrædd undir ermarnar framanverðar og hálsmálið. Stokkabelti var um mittið, gjarnan sprotabelti. Var það einmitt eitt af sér- stökum hugðarefnum Sigurðar að konur tækju aftur upp sprotabelti við skautföt- in, en slík belti höfðu lagst af á 18. öld. A samfellunni var engin svuntubrydd- ing, en ekki er vel ljóst hvort Sigurður hefur fellt hana burtu eða hvort hún hefur verið farin að leggjast af áður. Að neðan var samfellan með útsaumi af ýmsum gerðum. Algengust var ullar- eða siiki- skattering, en einnig var hafður flauels- skurður bryddur stímum eða þá ásaum- aðar stímur eingöngu; ennfremur blómstursaumur og steypilykkja, og auk þess listsaumur er frá leið. Raunar höfðu allar þessar saumgerðir —nema list- saumur — verið notaðar til skrauts neðan á fötum fyrir daga Sigurðar, en breyting- in eða nýjungin fólst í uppdráttunum sem Sigurður lagði til. Hann dró upp bekki á bæði treyjur og samfellur er voru talsvert frábrugðnir þeim munstrum sem áður höfðu tíðkast. í fyrstu virðist Sigurður hafa teiknað svo til eingöngu gríska og býsanska uppdrætti sem hann nefndi svo, en síðar, að ég hygg, gerði hann blóma- bekki einkum með íslenskum blómum og urðu þeir mjög vinsælir. Voru fyrr- nefndu munstrin gefin út 1878, og til stóð að framhald yrði á útgáfunni, en minna varð úr, og liggja blómauppdrættir Sig- urðar enn óbættir hjá garði. Fyrirmyndir að útsaumsmunstrum Svo vikið sé fáum orðum að fyrirmynd- urn sem Sigurður kann að hafa notfært sér við gerð útsaumsmunstranna, þá seg- ir um grísku uppdrættina í útgáfunni 1878 að þeir séu „forngrískir að upp- runa, en sumir þeirra þó ef til vill frá austurlöndum,“ að flestir þeirra haft „verið hafðir hjer á fyrri öldum“ og að þeir finnist „bæði á ýmsum forngripum og í gömlunt íslenzkum handritum.“ Ekki verður í fljótu bragði komið auga á sambærilega bekki þar, ef undan eru skildir bekkur frá 15. öld á blaði í Teikni- bókinni svonefndu í Arnasafni, og annar samskonar en speglaður, skorinn í skáp frá Hólum frá 17. öld. Af mynd í vasabók hans í Þjóðminjasafni íslands frá 1858—1859 sést að Sigurður hefur verið vel kunnugur uppdrættinum í Teiknibók- inni. Hefur hann eflaust stuðst við hann, en trúlega einnig haft til hliðsjónar munstur í erlendum ritum urn skreytilist. Þess má geta að á þessum árum voru slík- ir bekkir nokkuð í tísku á kvenfatnaði er- lendis. Fyrirmynda að býsönsku uppdráttun- urn hefur Sigurður, samkvæmt texta út- 1. Skautbúningur Sigurðar málara Guð- mundssonar. Konan á mvndinni mun vera Þórunn Jónsdóttir (f. 1842, d. 1912), gift 1864 Þorvaldi lækni á Isafirði Jónssyni rit- stjóra Guðmundssonar. Eftir sídd blæj- unnar að dæma er Þórunn í brúðarklæð- um. Ljósmynd: Sigfús Eymundsson. Þjms. mms. 7648. 2. Baksvipur skauttreyju af gerð Sigurðar málara. Rissmynd eftir Sigurð. Þjms. SG: 03:2, Vasabók 1858—9. 3. Samfellubekkur af býsanskri gerð sem Sigurður málari nefndi svo. Mynd, smækkuð, úr Guðrún Gísladóttir (útg.), Um íslenzkan faldbúning með myndum eftir Sigurð málara Guðmundsson (Kaup- mannahöfn, 1878). HUGUR OG HÖND 27

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.