Hugur og hönd - 01.06.1988, Side 32
Hneppt kvenpeysa
Stærð: 38-40.
Sídd: 64 cm.
Efni: Um 650 g af Álafoss flosi, bláum
lit nr 447 og um 50 g af hvítu móhári, 7
tölur og axlapúðar.
Prjónar: Um 70 cm langur hringprjónn,
ermaprjónn og sokkaprjónar nr 4.
Hringprjónn og sokkaprjónar nr 3 Vi.
Prjónfesta: 10x10 cm = 18 lykkjur og
26 umferðir.
Peysan er prjónuð í 5 hlutum. Bak og
boðungar eru prjónaðir upp og ofan en
ermar á venjulegan hátt frá úlnlið og
upp.
Vinstri boðungur. Fitjaðar eru upp 114
lykkjur á prjóna nr 4. Prjónað er slétt
fram og til baka nema á síðustu 6 lykkj-
urnar. Á þær er prjónað perluprjón, 1
slétt og 1 brugðin í báðum umferðum, og
mynda þær kant að neðan. Prjónaðar eru
36 umferðir, endað á brugðinni umferð.
Þá er prjónaður fleygur A með hvítu
munstri sem liggur frá öxl niður á brjóst-
ið. Hvítu doppurnar eru prjónaðar með
aðferð sem segja má að sé sambland af
rósaleppaprjóni (myndaprjóni) og tví-
bönduðu prjóni. Hvíta garnið er undið í
smá-skilhankir og er hver doppa prjónuð
með einni. Við litamótin er báðum þátt-
um brugðið saman eins og í rósaleppa-
prjóni og prjónað til baka með hvíta
garninu í næstu umferð á eftir. Bláa
bandið er tekið á bak við hvítu doppurn-
ar eins og í tvíbönduðu prjóni, en gæta
verður þess að gefa það hæftlega laust.
Að öðru leyti er fleygurinn prjónaður eft-
ir teiknuðu munstri. I 1. umferð eru
prjónaðar 6 lykkjur, þá er snúið við og
bandinu brugðið samtímis um vinstri
prjóninn og prjónað brugðið til baka. 13.
umferð er 6 lykkjum bætt við (prjónaðar
12) og bandið sem brugðið var um prjón-
inn eftir 1. umferð tekið úr með því að
prjóna það með næstu lykkju vinstra
megin við það. Þannig er haldið áfram að
bæta 6 lykkjum við í hverri urnferð frá
réttu, bregða bandinu um prjóninn um
leið og snúið er við og taka það úr í næstu
réttu umferð. Þegar komnar eru 60
lykkjur er fleygurinn minnkaður um 6
lykkjur í hverri umferð frá réttu, þannig
að í síðustu umferðum eru 6 lykkjur á
eins og í þeim fyrstu. Nú eru prjónaðar
6 umferðir á allar lykkjur, í þeirri fyrstu
eru böndin, þar sem snúið var við á
fleygnum, tekin úr. Þá er tekið úr fyrir
hálsmáli í byrjun næstu fimm umferða,
3—2—2—2—1 lykkja, 3 umferðir prjón-
aðar og 1 lykkja tekin úr í viðbót (103
lykkjur á). Prjónaðar eru 8 umferðir,
endað á brugðinni umferð, þá eru komn-
ar 27 umferðir frá fleyg. Síðast eru 9 um-
ferðir perluprjón og fellt af í þeirri 10.
Hægri boðungur. Til þess að prjóna
fleyginn á sama hátt og á vinstri boðungi
er byrjað á hnappagatalista. Fitjaðar eru
upp 103 lykkjur og prjónaðar 4 umferðir
perluprjón. I 5. umferð eru hnappagöt
gerðþannig: 14 lykkjur prjónaðar, síðan
eru til skiptis 2 lykkjur felldar af og 19
lykkjur prjónaðar þar til eftir eru 5 lykkj-
ur, þá eru 2 felldar af og 3 prjónaðar (5
hnappagöt í allt). í 6. umferð eru 2 lykkj-
ur fitjaðar í stað þeirra sem felldar voru
af. Prjónaðar eru 4 umferðir perluprjón
í viðbót og síðan 8 umferðir slétt prjón.
í lok 8. umferðar, sem er brugðin, er 1
lykkja fitjuð, 4 umferðir prjónaðar og
aftur 1 fitjuð í lok 4. umferðar. Síðan eru
fitjaðar 2—2—2—3 lykkjur í lok næstu
fjögurra umferða frá röngu. Eru þá
lykkjurnar orðnar 114. Prjónaðar eru 6
umferðir og síðan fleygur B á sama hátt
og fleygur A á vinstri boðung. Síðast eru
36 umferðir slétt prjón og fellt af.
Bak. Byrjað er á baki eins og vinstri
boðungi og fleygur A prjónaður fyrst,
síðan 6 umferðir slétt prjón að hálsmáli.
I byrjun næstu þriggja umferða frá réttu
er 1 lykkja felld af, prjónaðar 3 umferðir
og 1 lykkja í viðbót felld af (110 lykkjur á).
Prjónaðar 34 umferðir, síðan bætt við 4
lykkjum á sama hátt í lok umferða frá
röngu. Prjónaðar 6 umferðir, þá fleygur
B og síðast 36 umferðir og fellt af.
Ermar. Ermar er hægt að prjóna í hring
en séu þær prjónaðar fram og til baka er
síður hætta á að þær fái aðra áferð en bol-
2
1
t"
æl
E
-i.
:::
sn
h
æ:
]3
L::th
■ •r
n
t
m
B
- —L.-i
-FH-r
tttn
tt
A
32
HUGUROG HÖND