Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1988, Qupperneq 39

Hugur og hönd - 01.06.1988, Qupperneq 39
voru skammtaðar þá fór Jón að smíða litla vélhefla sem hann nefndi “dverga". Þeir voru á sínum tíma mjög eftirsóttir og smíðaði Jón um 30 slíka. Nú á seinni árum hefur Jón smíðað töluvert af renndum munum úr kopar, m.a. litla rokka, kleinujárn og laufa- brauðsjárn. Þetta er allt hin mesta völ- undarsmíði. Fyrir um það bil 15 árum sneri hann sér að byssugerð, sem hann telur auðveldari en t.d. rokkasmíði og er hann búinn að smíða um hundrað byssur. Þetta er seinleg vinna því hvert einstakt stykki í byssunni er handsmíðað. Byss- una kallar hann ,,Drífu“. Þó Jón sé byssusmiður hefur hann aldrei skotið neitt kvikt með byssu. Eftir Jón Björnsson liggur ótrúlegt magn hagleiksverka sem bera vitni um einstæða hæfdeika hans og hugvit og enn er hann að, fullur áhuga, þó að kominn sé á níræðisaldur. Viðbrögð hans, þegar haft var samband við hann vegna þessar- ar greinar, sýna það glöggt: ,,Ég sé fyrir mér ótæmandi verkefni, ég brenn í skinninu að framkvæma eitthvað af þeim, get varla sofið vegna hugmynda sem sækja að mér. Ég er til dæmis með hugmyndir um hvernig best sé að útbúa snúningsapparatið ofan á hitaveitugeym- ana í Öskjuhlíð.“ Geta ekki flestir verið sammála um að svona frjó hugsun og lifandi áhugi, eins og Jón Björnsson býr yfir, hljóti að lengja lífið og auðga? Þórir Sigurðsson 1. Smárokkur renndur úr kopar. 2. Kleinujárn og laufabrauðsjárn úr kopar. 3. Vélhefillinn Dvergur. 4. Renndir bikarar úr kopar. Ljósmyndir: Þórir Sigurðsson. FAXAFENI 7 -108 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 8976 - SÍMI (91)687733 TELEX 2105 EPAL IS NNR. 2142-0220 HUGUR OG HÖND 39

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.