Hugur og hönd - 01.06.1995, Side 4
TEXTÍLVERK KRISTÍNAR
SCHMIDTHAUSER
Kristín Schnidthanser
Kristín er menntaður hannyrða-
kennari og hefur lengi kennt við
skóla í Reykjavík og á námskeiðum
fyrir handmenntarkennara. Fyrir
mörgum árum fór hún sérstaklega
að fást við útsaum og knipl. Hún
hefur haldið sýningar á verkum sín-
um, þau hafa hlotið góða dóma og
vakið athygli bæði fyrir falleg vinnu-
brögð og frumleika.
Fyrir nokkrum árum varð breyt-
ing á högum Kristínar. Þá flutti hún
og fjölskylda hennar til Sviss. Þar
hafði eiginmanni hennar boðist gott
starf, en hann er verkfræðingur og
Kristín Schmidthauser er nú
búsett í Sviss. Hún var stödd hér
á landi vorið 1995. Notaði þá
greinarhöfundur tœkifærið og
ræddi við hana um það sem hún
er nú að fást við og fékk að skoða
nýjustu textílverk hennar.
tölvufræðingur. Kristín vildi þá
einnig gjarnan fá sér starf utan
heimilis og var svo heppin að fá
vinnu við bókhaldstölvur hjá stóru
ljósmyndafyrirtæki í Zúrich. Það
var þægilegt starf og vel launað. Þeg-
ar hún hafði unnið þar í eitt ár fór
hún alvarlega að hugleiða hvort hún
ætti að halda áfram í tölvuvinnunni,
sem henni fannst næsta einhæf til
lengdar, eða freista þess að hasla sér
aftur völl á því sviði sem hún hafði
menntað sig til, hafði lengst unnið
við og hafði mestan áhuga á, þ.e. á
sviði listrænnar skapandi textíl-
vinnu. Hún ákvað að nýta sér áfram
þá menntun og reynslu sem hún
hafði aflað sér sem textíllistakona og
freista þess að ná lengra á því sviði.
Kristín sagði upp tölvustarfinu og
sótti um inngöngu í hönnunardeild
Kunstgewerbeschule, sem er mynd-
og handmenntarskóli í Zúrich. Hún
var kölluð í viðtal í skólann. Þar
sýndi hún prófgögn sín og sýnis-
horn af textílverkum sínum. Pró-
fessorinn sem ræddi við hana og
skoðaði verk hennar taldi að hún
hefði lítið í þennan skóla að sækja
en sagði henni jafnframt frá hópi
12-14 starfandi textíllistakvenna
sem hefðu aðstöðu þar í skólanum.
Margar þeirra eru þekktar textíllista-
konur í Sviss eða tengjast skapandi
textíliðju sem hönnuðir, við kennslu
eða á annan hátt. Þær halda reglu-
lega sýningar á verkum sínum. Þeim
finnst uppbyggjandi og jákvætt að
hittast, ræða viðfangsefni sín og
starfa saman að ýmiss konar þema-
vinnu í textíl undir handleiðslu eins
prófessorsins við skólann.
Prófessorinn kom með þá hug-
mynd að Kristín sækti um inngöngu
í þennan hóp. Það gerði hún og var
tekin í hópinn, er þar eini útlend-
ingurinn.
Hún segir konurnar hafa tekið sér
4