Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1995, Blaðsíða 28

Hugur og hönd - 01.06.1995, Blaðsíða 28
LISTAKOT Listakot var opnað með tilheyrandi pompi og pragt í mars síðastliðn- um, en vikurnar þar á undan voru miklar vinnuvikur því að þó hús- næði Listakots að Laugavegi 70 sé ekki sérlega stórt, var þar að mörgu að huga, og margt sem þurfti að laga, breyta og bæta áður en hægt væri að hefja þar list- munasölu. Það var því í nógu að snúast fyrir listakonurnar tíu, sem auk þess að vinna að list sinni vinna flestar einhverja aðra vinnu líka. En allar dreymdi um stað til að koma list sinni og handverki á framfæri og þess vegna var vinnan þeim ánægjuleg þó að stundum væru allar þreyttar. Það var ekki eingöngu vinna við húsnæðið sem þurfti að inna af hendi, heldur var líka margt sem þurfti að athuga í sambandi við allan almennan rekstur búðarinnar og samkomulag á milli listakvennanna sem að Listakoti standa. Það voru því Lista- og handverksfólki til mikillar gleði virðist fólk í auknum mæli leita sér að handgerðum munum, bæði til eigin nota og þá ekki síð- ur til gjafa, enda er úrvalið stöðugt að aukast. Hand- verkshús eru víðs vegar um land og margir listamenn bjóðafólki að versla við sig á vinnustofum sínum. A Laugavegi 70 í Reykjavík er lítið listmunahús sem heitir Listakot. Þar hafa 10 listakonur framleiðslu sína til sölu. margir fundir haldnir og margt rætt áður en komist var að niðurstöðu, sem þó er auðvitað ekki endanleg því að þegar farið er út í svona samstarf, þá er stöðugt verið að laga ýmislegt og færa til betri veg- ar. En í aðalatriðum er samstarfinu þannig háttað að á mánaðarlegum fundum er skipting allrar vinnu á- kveðin, bæði við afgreiðslu í búð- inni, útstillingar í glugga og þrif. Reynt er að skipta þessari vinnu sem jafnast á milli allra. Það sem selt er í búðinni er skráð í bók og skrifað hver gerði hlutinn sem seldur var. Um mánaðamót er síð- an salan tekin saman og fær hver greitt fyrir það sem hún seldi. 5% af sölunni renna í sameiginlegan sjóð sem er notaður til þess að borga rafmagn, hita, síma, um- búðapappír og þess háttar. Húsa- leiga skiptist jafnt á allar. Þannig er reynt að halda öllum kostnaði í lágmarki, til þess að hægt sé að 28

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.