Hugur og hönd - 01.06.1995, Side 15
Salt- ogpiparstaukar tír hrauni og silfri eftir Hörpu Kristjánsdóttur.
Barnaúlpa úr mokkaskinni eftir Rósu Gísladóttur og Sigríði Guðjónsdóttur.
Verðlaunaafhending fór fram
26. nóvember og var haldin sýning
á verðlaunuðum og athyglisverð-
um tillögum í Gerðarsafni - Lista-
safni Kópavogs, alls 82 tillögum.
Sýningin stóð til 18. desember og
var mjög vel sótt.
Ákveðið var að gefa fleirum
kost á að sjá verðlaunuðu hlutina
19 og voru haldnar sýningar á
þeim víða um land, á Egilsstöðum,
Isafirði, Varmahlíð, Akureyri,
Borgamesi, Hveragerði og Kirkju-
bæjarklaustri á árinu 1995.
Smáverkefnasjóður landbúnað-
arins, Þjóðhátíðamefnd, Skógrækt
ríkisins, Skinnaiðnaður hf. og
Landgræðslusjóður styrktu sam-
keppnina.
Á bak við tillögurnar 410 sem
bárust í samkeppnina voru 178
þátttakendur. Búseta þeirra er sem
hér segir: 90 á höfuðborgarsvæð-
inu, 5 á Reykjanesi, 7 á Vestur-
landi, 14 á Vestfjörðum, 9 á Norð-
urlandi vestra, 17 á Norðurlandi
eystra, 15 á Austurlandi og 21 á
Suðurlandi.
VERÐLAUNAHAFAR,
BÚSETA ÞEIRRA OG
VERÐLAUNAÐAR
TILLÖGUR:
Islenskt tré; minjagripir
Þorsteinn Geirharðsson
Reykjavík
Lagarfljótsormurinn, lítill tréorm-
ur úr birkikvistum, minjagripur
eða leikfang
Hrafnhildur Svava Guðmunds-
dóttir
Garðabæ
“Maddömur”, minjagrip-
ir/nálapúðar, birki rennt og málað,
skreytt með ullarbandi o.fl.
íslenskt tré; nytjahlutir
Hinrik A. Þórðarson
Selfossi
Prjónastokkur úr dökkum rekaviði
Helga Ragnarsdóttir
Vogum
Málaðir tréstafir fyrir börn
Hráefni frá landbúnaði
- ull; minjagripir
Helga og Þórunn Egilson
Reykjavík
Brúður; Grýla og Leppalúði
Alda Sigurveig Sigurðardóttir
Þingeyri
Brúður; Dýrfirðingar, karl og
kerling
Hráefni frá landbúnaði
- ull; nytjahlutir
Ása Ólafsdóttir
Reykjavík
Útsaumur með íslensku ullargarni
eftir mynstrum úr handritum á
Árnastofnun
15