Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1995, Síða 23

Hugur og hönd - 01.06.1995, Síða 23
5. Guðrún Vigfúsdóttir ásamt Gunnari Sigurjónssyni, sóknarpresti í Digraneskirkju í Kópavogi. Gísla S. Kristjánssyni, heimsækir verkstæði og skóla aðallega til að kynna sér nýjungar í vefnaðar- kennslu, vefjarefnaframleiðslu og munsturgerð. Ferðin byrjaði í Osló, þar sótti hún tíma í Den kvinnelige Industriskole, þaðan lá leiðin til Sví- þjóðar í Nyckelviksskolan og Hand- arbetets vánners vávskola, síðan til Finnlands og að lokum til Kerte- minde á Fjóni í Danmörku. Guð- rún taldi sig hafa mikið gagn af þess- ari ferð og notfærði sér ýmsar hug- myndir í skólastarfinu. STOFNUÐ VEFSTOFA Þó að Guðrún hafi haft mikla á- nægju af kennslunni blundaði alltaf með henni löngun til að fá aðstöðu til að vefa sjálf, fá útrás íyrir eigin hugmyndir og gera tilraunir. Ekki er ólíklegt að orlofsferðin langa og út- sýni til þess sem var að gerast úti í heimi hafi eflt þessa löngun. Hún leigði sér herbergi úti í bæ, kom sér upp athvarfi fyrir sig og vefstólinn og notaði frítímann til að vefa og gera ýmsar tilraunir með íslenska ull. Svo kom í ljós að konuna í hús- inu langaði til að vefa, þá komu þær öðrum vefstól fyrir í stofunni og Guðrún fékk henni það verkefni að vefa trefla úr íslensku bandi. Trefl- arnir voru sendir í ýfingu til Akur- eyrar, síðan boðnir til sölu, aðallega í Reykjavík. Salan gekk vel og þegar það vitnaðist komu fleiri og óskuðu eftir að fá vinnu. Þar kom að ekki var hægt að troða fleiri vefstólum inn í stofuna en sala og eftirspurn jókst og framleiðslan var orðin fjöl- breyttari. Þá reið á að leysa húsnæðis- vandann. Fjölskylda Guðrúnar festi kaup á húsnæði fyrir vefstofuna og þangað voru vefstólarnir fluttir og keyptir fleiri. Konunum sem höfðu verið að vefa var boðið að gerast hluthafar. Þannig var athvarfið hennar Guðrúnar orðið að dálitlu fyrirtæki sem formlega var stofnað 1962 og hlaut nafnið Vefstofa GuS- rúnar Vigfúsdóttur h.f. Vefstofuna rak Guðrún til hliðar við kennslustarfið, sem var alla tíð hennar aðalstarf. Vefurum fjölgaði smátt og smátt, en flestir voru að- eins í hlutastarfi. Reynt var að hag- ræða vinnunni sem best, t.d. með því að sérhæfa starfsliðið svo að það næði meiri þjálfun og hraða. Aðal- lega unnu konur á vefstofunni, þó bar við að karlar væru þar í vinnu. Guðrún var framkvæmda- og fram- leiðslustjóri fyrirtækisins og sá um alla verkstjórn, auk þess hannaði hún sjálf nær allt sem framleitt var. Það er óhætt að segja að henni hafi ekki verið fisjað saman. En Guðrún leggur áherslu á að þakka megi frá- bæru samstarfsfólki að allt gekk upp, það vann af áhuga og mikilli samviskusemi og var margt afar vel verki farið. Góður starfsandi hafi einnig haft mikið að segja. A vefstofunni var framleiddur margs konar varningur, mest úr ís- lenskri ull, t.d. værðarvoðir, sjöl og treflar (allt ýft á Akureyri þar til ýf- ingarvélin var send til ísafjarðar), borð- og veggrenningar, púðar, vesti, úlpur, stakkar, herrabindi, (saumuð á vefstofunni) og ýmiss konar listvefnaður, m.a. eftir teikn- ingum annarra. Enn er ótalið það sem reikna má með að borið hafi hróður vefstofunnar hæst. Það voru kjólarnir, ofnir úr eingirni, oftast víðir og efnismiklir en þó fisléttir, smekklegir að lit og sniði og klæði- legir flestum. Þetta voru sannkallað- ir samkvæmiskjólar, sparikjólar sem hæfa þóttu við hátíðleg tækifæri, enda voru engar konur með konum (sbr. menn með mönnum) sem um þessar mundir áttu ekki handofmn kjól eða kjóla frá Guðrúnu Vigfús- dóttur að skarta í. Rekja má upphaf kjóla- og fata- framleiðslunnar til þess að vefstofan tók að sér verkefni fyrir Sigríði Bjarnadóttur kjólameistara. Ofm voru fyrir hana efni sem hún hannaði sjálf úr ull, hör og bómull og saum- aði fatnað úr. Kjólaframleiðsla vef- stofunnar hófst stuttu eftir að þessu verkefni lauk. Guðrún fékk Agnesi Aspelund, starfsstúlku vefstofunnar, til liðs við sig að sauma nokkra kjóla til prufu úr ullareinskeftudúk. Það féll allt í ljúfa löð, „enda leikur allt í höndunum á Agnesi vinkonu minni", segir Guðrún. Kjólarnir flugu út og nú var ofið og saumað af krafti. Þetta mun hafa verið í kring- um 1970. Islenskur heimilisiðnaður í Reykjavík sá um sölu kjólanna. Árið 1976 var haldin eftirminni- leg tískusýning á kjólum Guðrúnar á Hótel Sögu í Reykjavík. Margir kjólar voru ofnir og saumaðir á vef- stofunni af þessu tilefni, með það markmið í huga að gera glæsilega 23

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.