Hugur og hönd - 01.06.1995, Síða 30
PAPPIRSGERÐ
NOKKUR ORÐ UM
SÖGU PAPPÍRSINS
I meira en 3000 ár notuðu Egyptar
papýrus til að skrifa á. Fornleifa-
fræðingar telja að áhöld til papýrus-
gerðar sem fundist hafa geti jafnvel
verið um 4500 ára gömul.
Egyptar skáru papýrusstöngulinn
í þunna strimla. Þeir voru flatdr út
með því að hamra þá og pressa með
steináhöldum og síðan lagðir í
bleyti. Því næst voru strimlarnir
lagðir samsíða á flata steina. Annað
lag var sett ofan á, en nú voru
strimlarnir látnir snúa þvert á þá
sem fyrir voru.
Þegar búið var að pressa arkirnar
margoft var hægt að skrifa á þær. Eg-
yptar bjuggu einnig til sandala, báta,
segl og mottur úr papýrusplönt-
unni.
Notkun papýruss náði nokkurri
útbreiðslu í löndunum við Miðjarð-
arhafið, þar sem hann var í notkun
til u.þ.b. 1000 e.Kr., en hann náði
aldrei fótfestu í Mið- og Norður-
Evrópu. Þar notuðu menn bókfell
(skinn) eða pergament, sem var dýr-
ara en betra að skrifa á og entist bet-
ur. Hinn eiginlegi pappír sem tók
við af bókfellinu barst til okkar frá
Kína.
Kínverski pappírinn var búinn til
úr plöntutrefjum, sem bundust
saman og mynduðu þunnt, slétt og
mjúkt efni, vel til þess fallið að skrifa
á. Sagan segir að Kínverji nokkur
við hirðina, T'sai Lun, hafi fyrstur
manna fundið upp aðferð til að búa
til pappír úr plöntutrefjum um árið
105 e.Kr. Fornleifafundir sýna þó að
líklega hafi frumstæð aðferð við
pappírsgerð verið þekkt í nokkur
hundruð ár þegar T'sai Lun datt
niður á sína aðferð.
T'sai Lun tók gömul fiskinet og
reipi og barði þau í sundur í renn-
andi vatni svo að úr varð mauk eða
kvoða. Hann dreifði úr kvoðunni á
þéttriðna bambusmottu og leyfði
vatninu að renna af. Síðan pressaði
hann kvoðuna með því að setja farg
ofan á og lét hana síðan þorna. Þeg-
Pappír, í þeirri mynd sem við
þekkjum hann, er ný uppfinn-
ing efmiðað er viðþann tíma
sem hinn siðmenntaði maður
hefur lifað ájörðinni. Aður en
menn lærðu að gera pappír var
notast við ýmislegt til að skrifa
á. Má þar nefna leirtöflur,
silkiklúta og steina. Síðar lœrðu
menn að verka skinn til að
skrifa á og Egyptar rituðu á
papýrus.
ar kvoðan var orðin þurr var hún
orðin að örk sem hægt var að losa af
bambusmottunni.
Kínverjar áttuðu sig fljótlega á að
hægt var að nota ýmsar gerðir
plöntutrefja til pappírsgerðar. Silki-
trefjar voru mikið notaðar í fyrstu,
en þegar pappírsgerðarlistin var orð-
in útbreidd var það of dýrt efni svo
að finna varð önnur ráð. Kínverjar
urðu fyrstir til að nota tuskur og
taularfa til pappírsgerðar. Þeir hafa
löngum verið sjálfum sér nógir og
nýjum hugmyndum og menningar-
straumum deildu þeir lítt með öðr-
um þjóðum. Það varð því ekki fyrr
en um árið 755 e.Kr. að leyndar-
dómar pappírsgerðarlistarinnar
urðu kunnir Aröbum. Aðferðir Kín-
verja voru vel þegnar af Aröbum og
ekki leið á löngu þar til kínverska
pappírsgerðarlistin varð þekkt í öll-
um Miðjarðarhafslöndum.
Aðstæður í Evrópu urðu síðan til
þess að hráefni varð annað en Kín-
verjar notuðu. Fyrir valinu varð
bómull, hör og hálmur. Þegar farið
var að prenta bækur á pappírinn og
þörf fyrir hráefni jókst fóru Evrópu-
menn að eins og Kínverjar forðum
og notuðu úrsérgengin klæði og
dúka til framleiðslunnar.
Arið 1150 var fyrsta pappírsmyll-
an sett á stofn á Spáni og árið 1490
í Englandi. Á Norðurlöndum var
farið að framleiða pappír fyrir alda-
mótin 1600 og í Ameríku hófst
framleiðsla 1688. Sten Bille setti á
stofn fyrstu pappírsmyllu í Dan-
mörku árið 1575.
Sú aðferð að búa til pappír úr
lörfum var einmuna óþrifaleg, ef
ekki beinlínis heilsuspillandi. Drusl-
urnar voru látnar rotna í vatni svo
vikum skipti og síðan rifnar í
smábúta. Þá vinnu höfðu aðallega
konur og börn með höndum. Körin
með rotnandi efnisbútum voru síð-
an flutt til myllunnar sem gerði
kvoðu til pappírsgerðar úr innihald-
inu.
Eftir því sem tímar liðu og tækni
fleygði fram urðu vinnubrögð þró-
aðri og vélvæddari. Um miðja 19.
öld fóru menn að nota tré til papp-
írsframleiðslu og þá var hráefnis-
vandamálið leyst — eða hvað?
Nú, meira en 100 árum síðar, er
hráefnisvandamálið aftur á döfinni,
einfaldlega vegna þess, að skógar
jarðar þola ekki þann ágang sem sí-
fellt aukin neysla krefst. Gæði jarðar
eru ekki eins sjálfsögð og óendanleg
og okkur er gjarnt að halda. Við eig-
um sjálfsagt öll langt í land á þroska-
brautinni. Og meðan við leyfum
okkur að nota pappír sem einnota
borðtuskur rista áhyggjurnar varla
djúpt.
30