Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1995, Blaðsíða 31

Hugur og hönd - 01.06.1995, Blaðsíða 31
HANDGERÐUR PAPPÍR Auðveldasta leið til að afla hráefnis til pappírsgerðar er að tæma papp- írskörfuna eða taka til handargagns pappír sem annars lenti þar og end- urvinna. Reyndar má nota flestallan pappír. Þó skal forðast þann sem hefur mikinn gljáa. Ljósritunar- pappír (handhægast er að fá hann úr tætara), dagblöð, umslög, miðar, póstkort, plaköt, lottómiðar, eggja- bakkar og umbúðir henta vel. Allur pappír er rifinn í smásnifsi á stærð við frímerki (ca 2 x 2 sm). Síð- an er hann lagður í bleyti í nokkra tíma eða yfir nótt. Áhöld til pappírsgerðar: - Tveir trérammar (annar með neti). - Bali eða kar sem þarf að vera nokkuð stærri (víðari) en ramminn. - Heitt og kalt vatn. - Borðklútar úr gerviefni eða klútar rifnir t.d. úr gömlum lökum til að leggja á milli blautra pappírs- arka. Athugið að þeir þurfa að vera nokkuð stærri en örkin. - Rafmagnskvörn eða svokallað- ur töfrasproti. - Svampur. - Plastdúkur. - Plastsvunta. - Gúmmíhanskar. - Sigti. - Snúra og klemmur. - Pappírspressa (tvær tréplötur og þvingur). ENDURUNNINN PAPPÍR Hvernig útbúa á pappírskvoðu: Taktu hnefafylli af pappírssnifsum sem legið hafa í bleyti og settu þau í rafmagnskvörnina. Bættu vatni út í og láttu kvörnina ganga stuttan tíma í senn, 10-15 sek. tvisvar til fimm sinnum. Ekki má fylla kvörnina nema að u.þ.b. 2/3. A móti 2-3 hnef- um af pappír þarf einn lítra af vatni. Þegar massinn í kvörninni lítur út eins og þunnur grautur (hér eftir kallaður kvoða) er honum hellt í fötu og farið eins að aftur. Kvoðan má ekki vera kekkjótt. Settu vatn í balann eða karið. Fylltu til hálfs. Settu að minnsta kosti fjórar hnefafyllir af kvoðunni út í. Þunnar pappírsarkir fást með því að hafa mikið vatn og lítið af kvoðu. Þykkar arkir fást ef höfð er mikil kvoða í vatninu. Nú er hægt að setja lit og alls konar skraut út í vatnsbaðið. Oft er gott að setja það í kvörnina með kvoðunni. Til dæmis er hægt að nota: - Þurrkaða plöntuhluta (blöð, blóm eða rósir). - Rifin, bleytt gömul póstkort. - Miða, servíettur. - Strá, fræ, krydd. - Þræði, svo sem tvinna og jafnvel fínt prjónagarn. - Laukhýði, grænmeti, ávexti. - Hringina sem koma úr gataran- um. Möguleikarnir eru óteljandi. Notaðu ímyndunaraflið. Taktu nú rammann með netinu (nethliðin á að snúa upp) og leggðu netlausa rammann ofan á. Ramm- anum er nú difið ofan í balann með pappírskvoðunni á þann hátt sem myndirnar sýna: 2 3 Láttu mesta vatnið renna af. Efri ramminn er nú tekinn af (hann er til þess að fá betur formaða kanta) og rammanum með pappírsörkinni er hvolft á klút sem hafður er nokkuð stærri en örkin, t.d. 2-3 sm á kant. Undir klútnum er gott að hafa efni sem dregur vel í sig vatn, svo sem dagblaðabunka. "Dúppið" með svampi ofan á rammann til að losa um örkina. Rammanum er þessu næst lyft af, annar klútur lagður ofan á, síðan ný pappírsörk, þá klút- ur og þannig koll af kolli. Vatn vill gjarnan sullast á borð og gólf. Vinnið því í herbergi sem hef- ur gólfefni sem þolir slíkt, svo sem steingólf, flísar eða gólfdúk. Gott er að vinna úti í garði á góðviðrisdög- um á sumrin. Þegar kominn er dágóður bunki af pappír þarf að pressa mesta vatn- ið úr. Auðvelt er að útbúa pressu úr tveimur vatnsþolnum tréplötum og þvingum. 31

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.