Hugur og hönd - 01.06.1995, Síða 45
sér meira að hinum skapandi þætti
munsturgerðar í tölvunni og fært
síðan yfir í vefstólinn af meira öryggi
en áður.
Við kennslu í bindifræði hafa
vefnaðarforrit reynst afbragðs hjálp-
artæki.
I Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands hefur vefnaðarforrit verið not-
að um árabil við bindifræðikennslu
og reynst vel. Fyrir kennarann opn-
ast einföld leið til að útskýra undir-
stöðuatriði bindifræðinnar. Notkun
vefnaðarforrits við kennslu flýtir
jafnframt fyrir skilningi nemenda og
áhugi þeirra er vakinn. Nemendur
eiga yfirleitt auðvelt með að tileinka
sér notkun þess, einnig þeir sem ekki
hafa áður komið nálægt tölvum.
Að síðustu er gaman að geta þess
að hægt er að fá forrit ásamt skafta-
stýringu fyrir vefstóla, þannig að
tölvan stýrir því hvaða sköff hækka
og lækka. Þar með er tölvan farin að
gegna nákvæmlega sama hlutverki
og gataspjöldin gegndu í damask-
vefstól Jacquards fyrir tæplega 200
árum.
Herborg Sigtryggsdóttir
Heimildir:
Vibeke Vestby „Veving og data",
Norsk HUSFLID nr. 4 1985, Oslo,
1985
Solveig Magnusson, „Dator och
vávning VÁV Magasinet nr. 1
1992, Glimákra, 1992
Solveig Magnusson, „IBM eller
Macintosh?..", VÁV Magasinet nr. 3
1993, Glimákra, 1993
Gunilla Petersén, „Frigör din
kreativitet med datorns hjálp", VÁV
Magasinet nr. 3 1994, Glimákra,
1994
Slotnick, Butterfield, Colantonio,
Kopetzky, Slotnick, „Computers &
applications ", Canada, 1989
Ingibjörg Jónsdóttir, vefnaðar-
kennari
Ymsir bæklingar
Lesendur!
Hafið þið athugað að með því að gerast félagar
í Heimilisiðnaðarfélagi íslands fáið þið:
10% afslátt í versluninni Islenskum
Heimilisiðnaði
10% afslátt af námskeiðsgjöldum í
Heimilisiðnaðarskólanum
Ársritið Hug og hönd innifalið
í árgjaldinu
Fréttabréf félagsins og fréttabréf
Handverks - reynsluverkefnis með
upplýsingum um allt sem er á döfinni
varðandi málefni handverksfólks,
um sýningar, kynningar o.fl.
Hvers vegna ekki að slá til? Notfærið ykkur
póstkort sem fylgir þessu blaði til að gerast
félagar eða áskrifendur að Hug og hönd.
Nýir áskrifendur og félagar fá þrjú eldri blöð
af Hug og hönd í kaupbæti.
45