Hugur og hönd - 01.06.1995, Qupperneq 47
heimilisiðnaður hefur átt samstarf
við um árabil. Slíkar sýningar hafa,
að sögn Gerðar Hjörleifsdóttur
verslunarstjóra, verið drjúgur þáttur
í starfseminni í áranna rás. Með
þeim hefur verið leitast við að kynna
listafólk, vekja athygli á verkum þess
og hvetja það til dáða.
Tvær sýningar hafa verið haldnar
á vegum verslunarinnar nú á haust-
dögum. Sýningin „Kristallar í textíl-
verkum“ var haldin í Ráðhúsi
Reykjavíkur dagana 22. september -
4. október. Að henni stóðu, auk
Islensks heimilisiðnaðar, þýska
sendiráðið, Goethe-Institut og
félagið Germania. XX - TEX nefnist
hópurinn sem þarna sýndi verk sín,
og sækir hann sér íyrirmyndir í
kristalla í náttúrunni. Um er að
ræða hóp þýsks áhugafólks.
Undirstaða verka þessara eru rann-
sóknir í kristallafræði, sem er mikil-
væg rannsóknaraðferð til greiningar
á ýmsum föstum efnum. Talsmaður
hópsins setti sig í samband við
Gerði Hjörleifsdóttur og sá hún um
alla framkvæmd sýningarinnar.
Dagana 20. október - 4. nóvem-
ber var síðan haldin sýning í versl-
uninni á peysum Ásdísar Birgis-
dóttur textílhönnuðar. Ásdís hefur
lokið námi í textílhönnun frá
Myndlista- og handíðaskóla Islands.
Handprjónaðar peysur Ásdísar hafa
birst á ýmsum vettvangi á
undanförnum árum. Fyrir verslun-
ina Islenskan heimilisiðnað hefur
hún einnig hannað peysuuppskriftir
sem aðeins eru til sölu þar. Hún
sækir fyrirmyndir sínar í þjóðlegar
hefðir. Búningar miðalda, klömbru-
hleðslur og litbrigði landsins verða
henni kveikja að nýjum verkum í
hefðbundið efni, íslensku ullina.
Það hefur verið ómetanlegt fyrir
handverksfólk og hönnuði að fá
tækifæri til þess að koma verkum
sínum þannig á framfæri, að stutt sé
við bakið á þeim og að framleiðsla
þeirra sé kynnt í aðlaðandi um-
hverfi.
Asdís er lesendum Hugar og
handar að góðu kunn, en upp-
skriftir hennar birtust í blaðinu árið
1987, í fyrra og einnig nú í ár.
Gréta E. Pálsdóttir
Tvœr afpeysum Ásdísar Birgisdóttur á sýningunni.
Frá sýningu XX-Tex hópsins í Rafhúsi Reykjavíkur.
47