Feykir - 28.11.2018, Síða 29
292 01 8
Öku- og bifhjólakennsla
- Aukin ökuréttindi -
Vörubifreið - Hópbifreið -
Leigubifreið - Eftirvagn
Akstursmat til endurnýjunar
ökuskírteinis
Öll vinnuvélaréttindi
& 892 1790 Birgir og
892 1390 Svavar
Þvottahúsið Perlan
Hvammstanga
Þvotta- og ræstingarþjónusta.
Tökum að okkur heildarlausnir
með þrif, þvott og
línleigu fyrir gistingu.
Þökkum viðskiptin á árinu
og gleðileg jól.
Óskum öllum landsmönnum nær
og fjær gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Selma & Tómas
HÓTEL TINDASTÓLL - MIKLIGARÐUR
info@arctichotels.is / www.arctichotels.is
Sími 453 5002 / 453 6880
Hjá bókaútgáfunni Merkjalæk hafa komið
út þrjár bækur þetta árið; Isländische
Volkssagen aus Húnavatnssýsla, sem
hefur að geyma húnvetnskar þjóðsögur á
þýsku, Vatnsdæla saga á nútímamáli með
nýjum kaflaheitum og með myndum eftir
Guðráð B. Jóhannsson og nú fyrir jólin
er svo spennusagan Út í nóttina nýjasta
afurðin á jólabókamarkaðnum.
Höfundur bókarinnar er Sigurður H.
Pétursson, sem hefur búið og starfað sem
héraðsdýralæknir í Austur Húnavatnssýslu
síðan 1973 en hann stendur einnig að baki
Bókaútgáfunni Merkjalæk sem staðsett er
í Svínadal í Austur-Húnavatnssýslu. Sagan
gerist í afskekktu héraði á Norðurlandi þar
sem Helga, 15 ára, fer af stað úr skólanum
í myrkri og ætlar að ganga heim. Þegar
hún skilar sér ekki heim upphefst mikil
en árangurslaus leit. Hvað varð um Helgu
er spurning sem allir vilja vita svarið við.
Feykir fékk Sigurð til að segja frá sögunni.
Hvernig varð hugmyndin að sögunni Út í
nóttina til? -Hugmyndin kviknaði í kollinum
á mér og þróaðist svo stig af stigi í nokkra
mánuði áður en ég fór að skrifa. Eftir að ég
fór að skrifa breyttist margt í meðförunum
frá því sem það var hugsað upphaflega.
Er hægt að þekkja einhverjar persónur
sögunnar úr raunveruleikanum? -Ef
ein-hver telur sig þekkja ákveðið fólk
sem fyrirmynd að einhverjum persónum í
sögunni er það tilviljun. Ég hef ekki neina
fyrirmynd af persónunum, þær urðu bara til
í kollinum á mér.
Hvað hefur þú unnið lengi við bókina?
Sagan þróaðist hjá mér í nokkra mánuði
áður en ég fór að skrifa. Ég settist við skriftir
í ársbyrjun og lauk við söguna í byrjun
september.
Var eitthvað sem kom þér á óvart við gerð
bókarinnar? -Það sem kom mér helst á
óvart var hvernig hugmyndir komu óbeðnar
og hugurinn varð frjórri við það að setjast
fyrir framan tölvuna og skrifa. Þá breyttist
oft sagan og tók nýja stefnu frá því sem
ég hafði upphugsað áður en ég settist
við tölvuna. Það að vera að skrifa opnar
hugmyndagáttina.
Hefur þú gefið eitthvað út áður? -Ég hef
ekki samið skáldsögu áður en skrifað dálítið
af greinum í Húnvetning sem ég ritstýrði í
fimm ár. En eftirfarandi bækur hafa komið
út hjá okkur, Bókaútgáfunni Merkjalæk:
Bræðravíg á Balkanskaga, 2009, Para-
dísarstræti, 2013, Smalinn, 2014, Hún-
vetnskar þjóðsögur, 2016, Isländische
Volkssagen aus Húnavatnssýsla, 2018,
Vatnsdæla saga, 2018, og Út í nóttina,
2018. /PF
Sigurður með Paradísarstræti sem kom út árið
2013. MYND AF FACEBOOK
Það að vera að skrifa
opnar hugmyndagáttina
BÓKAÚTGÁFA :: Sigurður H. Pétursson sendir frá sér Út í nóttina