Feykir - 28.11.2018, Qupperneq 38
2 01 838
Ljúffengir réttir
með lítilli fyrirhöfn
UMSJÓN
Fríða Eyjólfsdóttir
Úr ofninum hjá Nönnu Rögnvaldar
Eins og svo oft áður á matreiðslubóka-
höfundur Íslands, Nanna Rögnvaldardóttir,
forvitnilega matreiðslubók í jólabóka-
flóðinu. Nanna hefur sent frá sér meira en tuttugu vandaðar
matreiðslubækur síðustu tvo áratugi og eru viðfangsefnin afar
fjölbreytileg. Feykir hafði samband við Nönnu í þeim tilgangi að
forvitnast aðeins um nýju bókina.
margar atrennur áður
en ég er ánægð – og svo
er ýmislegt sem ég átta
mig á að bara gengur
ekki. En ég hendi aldrei
neinu, það fer bara á
kvöldverðarborðið hjá
mér þótt ég sé ekki
100% ánægð.“
Hvernig viðtökur hefur
bókin fengið?
„Bókinni hefur verið
tekið afskaplega vel,
satt að segja. Salan
hefur verið góð og ég
hef heyrt í mörgum
sem hafa eignast hana
og eru mjög ánægðir.
Og það er ekki oft
sem eru skrifaðir
alvöru ritdómar um
matreiðslubækur en
ég hef fengið allavega
tvo dóma um þessa og
þeir voru báðir mjög
jákvæðir.“
2 01 8
„Beint í ofninn er
hugsuð fyrir alla sem
vilja elda góðan mat
frá grunni með sem
minnstri fyrirhöfn án
þess að eyða löngum
tíma í eldhúsinu,“ segir
Nanna. „Ég miðaði
við að maður ætti
að geta lokið öllum
undirbúningi á meðan
ofninn er að hitna
og svo er fatinu eða
bakkanum bara stungið
í ofninn og hægt að
fara að gera eitthvað
annað, þótt stundum sé
svo einhverju hráefni
sem þarf styttri tíma
bætt við á miðjum
bökunartímanum.
Og svo er hún líka
fyrir alla sem vilja
ekki endilega rígbinda
sig við uppskriftir
því að hún er uppfull
af hugmyndum og
tillögum um breytingar
og tilbrigði.“
Nú hafa sjálfsagt flestir
upplifað það oftar en
einu sinni að skorta
hugmyndaflug þegar
kemur að því að elda
næstu máltíð og vera
alveg tómur í höfðinu
hvað það varðar, hvað
þá ef um heila bók
væri að ræða. Hvernig
fæðast hugmyndir að
heilli matreiðslubók?
„Hugmyndina fékk
ég, eins og flestar
hugmyndir mínar, af
því að hlusta á fólkið
í kringum mig, hvað
því þætti helst vanta.
Ég ákvað að gera þessa
bók í fyrravetur en átti
þá raunar mikið efni
og hugmyndir sem
passaði inn í hana. Ég
les mjög mikið um
mat og matargerð, á
ansi gott bókasafn og
reyni að fylgjast með
í matarheiminum og
maður er alltaf að
tína upp hugmyndir.
Svo geri ég tilraunir,
stundum heppnast þær
svo vel að uppskriftin
fer nánast óbreytt á bók,
stundum þarf ég að gera
Uppskriftir Nönnu
FYRIR 2
Bakaðar eggaldinsneiðar
Þetta er afskaplega einföld eggaldin-uppskrift og það eina sem
þarf að hafa í huga er að það þarf að skera kartöflurnar í fremur
smáa bita svo að þær nái að steikjast í gegn á sama tíma og það
tekur eggaldinsneiðarnar að verða tilbúnar. Það vildi svo til að
ég átti vel þroskaða kirsiberjatómata á grein þegar ég var að taka
myndina og notaði þá í réttinn og það fyrsta sem mér datt í hug
þegar ég skoðaði útkomuna og sá hvernig tómatarnir komu út
með fagurgrænu mintulaufinu var „þetta er nú bara svolítið
jólalegt“ – þótt það sé annars ekki margt jólalegt við réttinn
eða hráefnið. En auðvitað má alveg eins nota kirsiberjatómata í
lausu eða bara tómatbáta.
1 eggaldin, um 300 g
3 msk olía
1½ tsk kóríanderduft
1 tsk kummin
klípa af chiliflögum
pipar og salt
350 g kartöflur, skornar í litla teninga
250 g kirsiberjatómatar
nokkrar mintugreinar (má sleppa)
Hitaðu ofninn í 210°C. Skerðu eggaldinið í fjórar sneiðar
eftir endilöngu og skerðu „kinnarnar“ af ytri sneiðunum
svo að báðar hliðar séu sléttar. Blandaðu saman 2 msk af
olíu, kummini, chiliflögum, pipar og salti og penslaðu
eggaldinsneiðar á báðum hliðum. Leggðu þær á ofnbakka eða
í stórt, eldfast mót og dreifðu kartöflum og tómötum í kring.
Dreyptu afganginum af olíunni yfir grænmeti og bakaðu í um
25 mínútur. Dreifðu e.t.v. mintu yfir.