Gríma - 01.09.1940, Blaðsíða 45
5.
Guðmundur eldri skáld í Enniskoti
og nokkrir ættingar hans.
[Handrit Friðriks Ásmundsson-Brekkans].
a. Frá Lækjamóts-bræðrum.
Til aðgreiningar frá öðru skáldi, er síðar bjó í
Enniskoti og líka hét Guðmundur, var Guðmundur
sá, er hér ræðir um, oftast nefndur Guðmundur
eldri, og var kenningarnafnið skáld oftast látið
fylgja,1) því að hann þótti allgóður hagyrðingur,
eins og síðar mun sagt verða. Annars hafði hann
líka viðurnefnið Vídalín, og Guðmundur Vídalín var
hann oftast nefndur af þeim, sem mundu eftir hon-
um í Miðfirði, þegar eg var að alast upp.2)
*) Frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir hefir sagt mér, að Guðmundur
hafi oftast verið kallaður svo, og hafi hann verið í tals-
verðu áliti fyrir skáldskap sinn. Við Enniskot var hann
kenndur lengi eftir að hann var farinn þaðan.
2) Frú Bríet kveðst ekki muna eftir viðurnefninu Vídalín. —
Einn söguraaður minn í Miðfirði taldi, að Guðmundur hefði
verið afkomandi Páls Vídalíns i móðurætt, en eg hygg að
það sé ekki rétt; að minnsta kosti heyrði eg ömmu mína,
dóttur Guðmundar, aldrei geta þess og var hún þó bæði
ættfróð og minnug. Hins vegar kannaðist hún vel við við-
umefnið. Er ekki ólfklegt, að Guðmundur hafi fengið það
við sjóróðra á Suðurlandi,