Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017 Laugardaginn 28. janúar var Íslensk-Bandaríska ehf. (oftast nefnt Ís-Band) með stórsýningu á nýjum Fiat og Jeep bílum í Mosfellsbæ. Það var fjöldi gesta að prófa bíla hjá þeim og var ég meðal þeirra. Bíllinn sem ég prófaði var fjórhjóladrifinn Fiat Panda Cross, tveggja strokka bíll með 900cc. vél sem skilar 90 hestöflum. Þarf mikið til að festa bílinn í snjó ef farið er rólega Prufuaksturinn hjá mér var óvenju stuttur í kílómetrum, en alls ók ég bílnum rétt tæpa 100 km á meðal- hraða upp á 37 km á klukkustund (mest innanbæjar og slóðaakstur í þæfingssnjó). Að keyra svona léttan og fjór- hjóladrifinn bíl í snjó er svolítið sérstakt. Mér fannst hreint ótrúlegt hvað hægt var að komast á bílnum í snjó og þrátt fyrir einbeittan brota- vilja í að festa mig í snjónum tókst mér alltaf að rugga bílnum lausum og halda áfram. Tveggja strokka 900cc. vélin hefur ekki mikið tog til að lulla sér áfram í snjónum og fyrir vikið stoppaði bíllinn alltaf mátulega þegar maður var við það að festa sig (spurning um hvort þetta sé kostur eða ókostur). Í hvert sinn sem ég stoppaði þurfti bara að bakka aðeins og byrja upp á nýtt og þá komst maður alltaf aðeins lengra. Eftir snjóæfingarnar prófaði ég bílinn á holóttum malarvegi og þrátt fyrir að bíllinn sé bæði léttur og stuttur fannst mér glettilega gott að keyra hann á holóttum veginum. Fjöðrunin er ekkert rosa löng, en er að skila vel sínu hlutverki þar sem maður finnur lítið fyrir holum inn í bílinn. Sérstakt hljóð í tveggja strokka vélinni Uppgefin eyðsla á Fiat Panda Cross í blönduðum akstri er 4,9 lítrar á hundraðið, en sennilega er erfitt að ná þeirri eyðslu á blönduðu eldsneyti með etanóli eins og er á flestum bensínsölustöðum. Næstum allir bensínbílar eyða töluvert meiru eldsneyti á etanólblönduðu eldsneyti og þá sérstaklega litlir mótorar, en eyðslan fer oft upp um 0,5–2 lítra á hverja ekna 100 km á íblönduðu bensíni. Bíllinn var prófaður á vegslóða í töluverðum snjó, nokkrar brekkur og mikið af beygjum var á slóðanum þannig að ég var mest í fyrsta eða öðrum gír, skakandi bílnum fram og aftur í sköflum. Þegar ég skilaði bílnum hafði ég ekið 97 km og með- aleyðsla mín var 8,4 á hundraðið. Mér fannst það lítil eyðsla miðað við hvað ég hafði verið að gera á bílnum. Lítil tveggja strokka vélin gefur lítið tog og þarf helst að skipta um gír áður en maður kemur að brekku til að halda ferðinni sem þýðir að vélin þarf helst að vera á góðum snúning og að snúa mikið tveggja strokka vél finnst örugglega mörgum að vélin gefi frá sér sérstakt hljóð. Mín eyðsla var því töluvert langt frá uppgefinni eyðslu, en samt minni en ég hefði haldið að hann hefði átt að eyða við það sem ég var að gera. Vél, drifbúnaður og ýmislegt annað Fimm ára ábyrgð er á öllum Fiat bílum, en Fiat Panda 4X4 er á verði frá 2.890.000, en bíllinn sem prófaður var heitir Cross og kostar 2.990.000. Tveggja strokka bens- ínvélin er 900cc. og á að skila 90 hestöflum, sex gíra beinskiptur. Í Cross bílnum er takki til að bæta aksturseiginleika í torfærum sem er tregðulæsing, einnig er sér- stök stilling til að fara niður mjög brattar brekkur sem virkar eins og bremsa þegar farið er niður. Það hindrar að vélin fari upp á snúning og gefur betra grip á hjólin niður mikinn bratta. Farangursrými er 225 lítrar með sætin uppi, varadekkið er það sem ég kalla aumingi. Sætin frammi í bílnum eru góð, en það er óþægilega þröngt fyrir þrjá fullorðna í aftursætunum. Persónulega hefði mér fundist nóg að þessi bíll væri skráður fyrir fjóra en ekki fimm eins og hann er. Hægt er að nálgast meiri upplýsingar um Fiat á vefsíðunni www.isband.is. Fiat Panda Cross. Myndir / HLJ liklegur@internet.is Hjörtur L. JónssonVÉLABÁSINN Þyngd 1.165 kg Hæð 1.660 mm Breidd 1.640 mm Lengd 3.700mm Bensíntankur 37 lítrar Helstu mál og upplýsingar Margir álitlegir bílar voru á frumsýningunni hjá Ís-Band síðustu helgina í janúar. Miðað við mína reynslu þá eru þessir góðum stað þegar þarf að nota þá. Ekkert meira af tökkum en nauðsynlega þarf. Átti það til að klikka á að renna bílnum úr 1 í bakk Í lítrum talið er farangursrýmið ekki og ef teppið er fjarlægt blasir við varadekksauminginn. - lendinga eða 3 börn undir 12 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.