Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 1
Íslensk mjaltaþjónabú setja nýtt heimsmet − Hvergi í heiminum er hlutfallslega eins mikið mjólkað með mjaltaþjónum og hér á landi og er hlutfall búa komið í 41,8% Nú liggur fyrir uppgjör ársins 2016 um mjólkurframleiðslu kúabúa með mjaltaþjóna en uppgjör sem þetta hefur hingað til verið gert annað hvert ár. Nú hefur verið gerð sú breyting á að uppgjörið er gert árlega þar sem útbreiðsla mjaltaþjóna er orðin mjög mikil á Íslandi. Alls voru um áramótin 150 kúabú með mjaltaþjóna í notk- un, en árið 2015 voru þau 135 og voru þessi 150 kúabú með alls 188 mjaltaþjóna sem er fjölgun um 23 mjaltaþjóna á einu ári. Enn einu sinni var sett nýtt met þegar horft er til innvigtunar mjólkur frá mjaltaþjónabúum en hlutfallið fór úr 37,2% árið 2015 í 41,8% árið 2016 og er þetta hlutfall það hæsta sem vitað er um í heimin- um en Ísland hefur setið á þessu heimsmeti nú í tvö ár í röð. Á nýliðnu ári voru þrjár tegundir mjaltaþjóna í notkun hér á landi, þ.e. GEA, Lely og DeLaval. Þetta kemur m.a. fram í umfjöll- un Snorra Sigurðssonar á bls. 42 og 43 í blaðinu í dag. Snorri er sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs dýra- lækninga- og gæðadeildar SEGES í Danmörku og hefur verið pistlahöf- undur Bændablaðsins um árabil. Hæsta hlutfall í heimi Snorri segir að undanfarin ár hafi hlutfall mjólkur frá mjaltaþjónabú- um aukist jafnt og þétt hér á landi. Á síðasta ári nam innvigtun frá þessum búum alls 62,8 milljónum lítra. Það ár var heildarinnvigtunin hér á landi 150,3 milljónir lítra og stóðu mjaltaþjónabúin því undir 41,8% allrar innveginnar mjólkur hér á landi. Þetta hlutfall er einnig það hæsta sem vitað er um í heim- inum. Aukningin á innvigtuninni frá mjaltaþjónabúum landsins var alls 6,5 milljónir lítra á síðasta ári, eða sem nemur 15,7% á einu ári. Telur Snorri að hægt ætti að vera að auka nýtingu þeirra mjaltaþjóna sem nú eru í notkun. Hún er nú að meðaltali um 64,4% sé horft til afurðasemi þess mjaltaþjóns sem mestu skilar á landinu öllu. Þetta hlutfall gæti mögulega farið í um 70% að mati Snorra. Hvert bú með 418 þúsund lítra að jafnaði Að jafnaði var hvert mjaltaþjónabú að leggja inn 418 þúsund lítra á síðasta ári en til samanburðar má geta þess að önnur bú á landinu lögðu inn að jafnaði 181 þúsund lítra. Munurinn eru 238 þúsund lítrar sem er töluverð aukning á milli ára. Bilið í bústærð er því að aukast töluvert og eru mjaltaþjónabúin nú að jafnaði 2,3 sinnum stærri en bú sem nota hefðbundna mjaltatækni. Árið 2015 var þessi munur minni, en þá lögðu mjaltaþjónabúin inn að jafnaði 403 þúsund lítra og önnur bú 190 þúsund lítra. Árið 2016 var hvert mjaltaþjóna- bú með að meðaltali 1,25 mjalta- þjóna (118 bú með 1 mjaltaþjón, 27 bú með 2 mjaltaþjóna, 4 bú með 3 mjaltaþjóna og 1 bú með 4 mjalta- þjóna). Innvigtunin frá hverjum mjalta- þjóni var að jafnaði 334 þúsund lítrar á síðasta ári sem er aukning á milli ára um 5 þúsund lítra. Þrátt fyrir þessa aukningu telur Snorri dagljóst að nýtingu mjaltaþjóna hér á landi megi stórbæta. Enda sé afar mikill munur á milli búanna þegar horft er til innvigtunar frá hverjum mjaltaþjóni að jafnaði. /HKr. Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson, ábúendur að Kaldbak á ofanverðum Rangárvöllum, með snævi þakta Heklu í bakgrunninum. – Sjá umfjöllun um afar sérstaka nafnahefð á sauðfé á bænum á bls. 24 til 26. Mynd / VH 4 30 3. tölublað 2017 • Fimmtudagur 9. febrúar • Blað nr. 484 • 23. árg. • Upplag 32.000 Hrossa- og folaldakjöt selt til Japan Bruggmenning á Íslandi opnar á möguleika fyrir nýja afþreyingu 28-29 Sauðfé er fljótt að læra og skynsamt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.