Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 1
Íslensk mjaltaþjónabú
setja nýtt heimsmet
− Hvergi í heiminum er hlutfallslega eins mikið mjólkað með mjaltaþjónum og hér á landi og er hlutfall búa komið í 41,8%
Nú liggur fyrir uppgjör ársins
2016 um mjólkurframleiðslu
kúabúa með mjaltaþjóna en
uppgjör sem þetta hefur hingað
til verið gert annað hvert ár. Nú
hefur verið gerð sú breyting á að
uppgjörið er gert árlega þar sem
útbreiðsla mjaltaþjóna er orðin
mjög mikil á Íslandi.
Alls voru um áramótin 150
kúabú með mjaltaþjóna í notk-
un, en árið 2015 voru þau 135 og
voru þessi 150 kúabú með alls
188 mjaltaþjóna sem er fjölgun
um 23 mjaltaþjóna á einu ári. Enn
einu sinni var sett nýtt met þegar
horft er til innvigtunar mjólkur
frá mjaltaþjónabúum en hlutfallið
fór úr 37,2% árið 2015 í 41,8%
árið 2016 og er þetta hlutfall það
hæsta sem vitað er um í heimin-
um en Ísland hefur setið á þessu
heimsmeti nú í tvö ár í röð. Á
nýliðnu ári voru þrjár tegundir
mjaltaþjóna í notkun hér á landi,
þ.e. GEA, Lely og DeLaval.
Þetta kemur m.a. fram í umfjöll-
un Snorra Sigurðssonar á bls. 42
og 43 í blaðinu í dag. Snorri er
sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs dýra-
lækninga- og gæðadeildar SEGES í
Danmörku og hefur verið pistlahöf-
undur Bændablaðsins um árabil.
Hæsta hlutfall í heimi
Snorri segir að undanfarin ár hafi
hlutfall mjólkur frá mjaltaþjónabú-
um aukist jafnt og þétt hér á landi.
Á síðasta ári nam innvigtun frá
þessum búum alls 62,8 milljónum
lítra. Það ár var heildarinnvigtunin
hér á landi 150,3 milljónir lítra og
stóðu mjaltaþjónabúin því undir
41,8% allrar innveginnar mjólkur
hér á landi. Þetta hlutfall er einnig
það hæsta sem vitað er um í heim-
inum. Aukningin á innvigtuninni
frá mjaltaþjónabúum landsins var
alls 6,5 milljónir lítra á síðasta ári,
eða sem nemur 15,7% á einu ári.
Telur Snorri að hægt ætti að vera
að auka nýtingu þeirra mjaltaþjóna
sem nú eru í notkun. Hún er nú
að meðaltali um 64,4% sé horft til
afurðasemi þess mjaltaþjóns sem
mestu skilar á landinu öllu. Þetta
hlutfall gæti mögulega farið í um
70% að mati Snorra.
Hvert bú með 418 þúsund lítra
að jafnaði
Að jafnaði var hvert mjaltaþjónabú
að leggja inn 418 þúsund lítra á
síðasta ári en til samanburðar má
geta þess að önnur bú á landinu
lögðu inn að jafnaði 181 þúsund
lítra. Munurinn eru 238 þúsund
lítrar sem er töluverð aukning á
milli ára.
Bilið í bústærð er því að aukast
töluvert og eru mjaltaþjónabúin nú
að jafnaði 2,3 sinnum stærri en bú
sem nota hefðbundna mjaltatækni.
Árið 2015 var þessi munur minni,
en þá lögðu mjaltaþjónabúin inn að
jafnaði 403 þúsund lítra og önnur
bú 190 þúsund lítra.
Árið 2016 var hvert mjaltaþjóna-
bú með að meðaltali 1,25 mjalta-
þjóna (118 bú með 1 mjaltaþjón, 27
bú með 2 mjaltaþjóna, 4 bú með 3
mjaltaþjóna og 1 bú með 4 mjalta-
þjóna).
Innvigtunin frá hverjum mjalta-
þjóni var að jafnaði 334 þúsund
lítrar á síðasta ári sem er aukning
á milli ára um 5 þúsund lítra. Þrátt
fyrir þessa aukningu telur Snorri
dagljóst að nýtingu mjaltaþjóna hér
á landi megi stórbæta. Enda sé afar
mikill munur á milli búanna þegar
horft er til innvigtunar frá hverjum
mjaltaþjóni að jafnaði. /HKr.
Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson, ábúendur að Kaldbak á ofanverðum Rangárvöllum, með snævi þakta Heklu í bakgrunninum. – Sjá umfjöllun um afar sérstaka nafnahefð á sauðfé
á bænum á bls. 24 til 26. Mynd / VH
4 30
3. tölublað 2017 • Fimmtudagur 9. febrúar • Blað nr. 484 • 23. árg. • Upplag 32.000
Hrossa- og
folaldakjöt selt
til Japan
Bruggmenning á Íslandi
opnar á möguleika fyrir
nýja afþreyingu
28-29
Sauðfé er fljótt að læra
og skynsamt