Bændablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017
Peder Nernæs, sem býr í
Mundheim í Harðangursfirði í
Noregi, er meðal fyrstu kúabónda
þar í landi sem tekur í notkun
sérstaka tegund vatnsdýna fyrir
kýrnar sínar. Hann hefur trú á
að mýkra undirlag gefi dýrunum
betra líf og geti gefið honum arð-
bærari rekstur.
„Ég fjárfesti í vatnsdýnum þegar
ég gerði endurbætur á fjósinu í fyrra.
Áður fyrr var hér básafjós en þegar
ég tók við af föður mínum ákvað
ég fljótt að nútímavæða fjósið. Til
að ná niður kostnaði hef ég ekki
byggt alveg nýtt fjós heldur útbjó
viðbyggingu á fjósið sem fyrir var
þannig að lausagangan með mjólk-
urróbóta og kvíguhlutann er nú í nýju
húsi en ég nota enn eldri hlutann fyrir
fóðurmiðstöð, kálfahlutann, mjólk-
urhúsið og skrifstofuna,“ útskýrir
Peder.
Annar besti kosturinn
Noregur var fyrsta landið í heiminum
sem innleiddi kröfu um undirlag
stórfénaðar og því sést ekki lengur
þar í landi að kýrnar liggi á kaldri
steypu í fjósinu.
„Ég eyddi miklum tíma í að
finna út hvernig ég vildi hafa við-
bygginguna og eitt af því sem ég las
mikið um og kynnti mér voru ólíkar
tegundir undirlags. Í ferlinu las ég
að talið er að sandur sé besta undir-
lagið en það er lítið um góðan sand
hér í Harðangurfirði þar sem ég bý
og það leiðir því til aukavinnu og
sliti á dælubúnaði. Ég er með eigin
sögunarmyllu hér svo ég íhugaði að
nota spæni en færðist frá þeirri hug-
mynd vegna hreinlætissjónarmiða
og þeirrar vinnu sem það krefst, því
skipta þarf því út með jöfnu milli-
bili,“ segir Peder og bætir við:
„Þá var ég kominn yfir í ólík-
ar tegundir af gúmmíundirlagi og
steypulegubása. Næst á eftir sand-
inum, þar sem ég aflaði mér upplýs-
inga, var talað um að vatnsdýnur væri
annar besti valkosturinn. Mér fannst
það hljóma mjög spennandi og þegar
ég komst að því að fyrirtækið sem ég
hafði verslað innréttingar og steypuna
hjá voru einnig með vatnsdýnur í sölu
Auðvelt að setja upp í fjósinu
Verðið á dýnunum var í kringum
1.100 krónur norskar fyrir hvert bása-
pláss. Dýnurnar, sem heita Pacific og
eru framleiddar af franska fyrirtækinu
Bioret Agri, keypti Peder hjá danska
fyrirtækinu Staldmæglerne.
„Ég fékk þær afhentar með tíu
ára ábyrgð en það eru einnig fleiri
heildsöluaðilar sem selja vatnsdýn-
urnar. Rétt eftir að ég hafði geng-
ið frá kaupum við Staldmæglerne
hóf norskur heildsöluaðili að flytja
inn ameríska vatnsdýnu sem heitir
GladQ en hann er einmitt kúabóndi í
Finnøy og hefur sett þær upp hjá sér.
Dýnurnar sem ég fjárfesti í er hægt að
fá í þremur ólíkum breiddum og eru
byggðar upp sem ein samhangandi
rúlla með vasa með vatni fyrir hvert
básapláss,“ útskýrir Peder og segir
jafnframt:
„Til að verja hnén á dýrunum
þegar þau leggja sig niður ligg-
ur rönd með 60 sentímetra breiðu
froðugúmmíi undir dýnunum fremst.
Þegar dýrið hefur lagst niður dreifist
þunginn yfir dýnuna og þau liggja
mjúklega ofan á vatnsvasanum. Það
var mjög einfalt að leggja dýnurnar
sjálfur í fjósinu, við merktum hvar
þær ættu að liggja, rúlluðum út rúll-
unni sem var afhent í réttri lengd fyrir
röðina og skrúfuðum þær fastar með
álskinnum.“
Kýrnar liggja meir en áður
Kýrnar hans Peders liggja sem sagt
á þykkum dýnum/mottum í fjósinu
með vatni í sem dýrin hita sjálf upp
með líkamshita sínum.
„Þetta hefur gengið mjög vel og
engir vatnslekar átt sér stað, í það
minnsta ekki ennþá. Dýrin liggja
mikið, um 14–16 tíma á sólarhring,
og þetta hefur gefið meiri ró í fjósinu.
Ég hef ekki orðið var við nein legu-
sár og ekki eru sjáanlegir hnéskaðar
því undirlagið er svo mjúkt þegar
dýrin leggjast og standa upp. Ég er
sannfærður um að vatnsdýnurnar
séu góðar fyrir dýrin og góðar fyrir
mjólkurframleiðsluna. Ég mæli því
með þessu við aðra kúabændur en
ég vil heldur ekki fullyrða að aðrar
lausnir séu eitthvað verri. Bændur
eru eins og annað fólk og gera gott
úr því sem þeir velja fyrir sig, sjálfur
er ég aðeins varkárari og segi að þetta
kemur vel út hérna hjá mér og ég er
ánægður með valið.“ /ehg
Mundheim í Harðangursfirði í Noregi:
Kýrnar liggja í ró og spekt á vatnsdýnum
UTAN ÚR HEIMI
– VERKIN TALA
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Vicon áburðardreifarar
í ýmsum stærðum.
VERKIN TALA
Vökvaopnun, hallatjakkur, kögglagrind og frædreifibúnaður.
Verðdæmi 1350 lítra fullbúin á kr. 490,000,- án vsk
Til sölu ný 5 hesta kerra
Verð 2.000.000 + VSK
Uppl. Í síma 897 9353